Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.08.2015, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 07.08.2015, Blaðsíða 34
Kötukvæði É Ég er ekki ratvís, raunar langt frá því. Mér gengur að vísu ágætlega að komast leiðar minnar hér á landi en erlendis er leiðavalið ekki upp á marga fiska. Ég hef heldur ekki þróað með mér ratvísi enda er minn betri helmingur með þau mál á hreinu. Ég fylgi frúnni því og treysti því að hún velji rétta leið. Það hefur gengið vel og saman myndum við prýðilegt teymi, til dæmis þegar við leigjum okkur bíl á erlendri grundu. Við erum þá eins og rallökumenn – nema hvað við ökum gætilegar – ég keyri en hún leiðsegir. Þannig höfum við farið land úr landi í Evrópu og Bandaríkin endi- löng, ég við stýrið og hún á kortinu, áður fyrr með börn í aftursætinu en í seinni tíð tvö. Aðeins einu sinni höfum við notfært okkur leiðsögutæki í bíln- um, ljúfa kvenmannsrödd sem segir okkur hvort beygja skuli til hægri eða vinstri og hvaða rani skuli tekinn út úr hringtorgi en það var í Danmörku fyrir nokkrum árum. Við ákváðum að sú góða kona talaði við okkur á dönsku, kunnum ekki við annað á danskri grund. Ferðalagið gekk prýði- lega undir vökulum augum þeirrar dönsku. Þrátt fyrir þetta festum við ekki kaup á slíku leiðsögutæki eftir Danmerkurreisuna, héldum okkur við kortið og kunnáttu raunverulegu konunnar sem við hlið mér sat á ferða- lögum, meðal annars í nýlegri ferð okkar til Frakklands. Eftir nokkurra daga dvöl í París leigðum við okkur bíl enda var ferðinni heitið til Suður- Frakklands til að heimsækja son okkar og tengdadóttur sem dvöldu þar í fríi með börn sín. Þjónustulunduð kona á bílaleigunni bauð mér bíl með leiðsögukerfi, gegn greiðslu að sjálfsögðu, en ég afþakk- aði, vitandi af minni góðu og ratvísu konu við hlið mér. Við lögðum því í hann suður á bóginn með heldur bágt vegakort sem við fengum á bílaleig- unni en nokkurn stuðning af leið- sagnarappi í síma sem tæknisinnaður tengdasonur okkar hafði sett inn áður en við lögðum í hann. Það verður að viðurkennast að meira gagn var að símanum en kort- inu dapra við leiðsögn út úr stórborg- inni inn á rétta hraðbraut í suðurátt, en þangað komumst við klakklaust. Appið gekk hins vegar hratt á raf- hlöðu símans. Hann var því dauður þegar við renndum inn á bensín- stöð við hraðbrautina til að teygja úr skönkum og fá okkur næringu. Tækniþekking okkar dugði ekki til að koma appinu aftur í gang, þótt hlaðið gætum við símann. Við keyptum okkur því almennilegt vegakort af Frakklandi á bensínstöðinni og héldum áfram för. Það var vandræða- laust enda las frúin allar vegmerking- ar af kortinu og ég hlýddi skipunum hennar. Okkur gekk því vel að komast á áfangastað þar sem okkar fólk tók á móti okkur í sumarhlýindunum. Þar dvöldum við vikulangt við yndi og dásemdir, ýmist á sundlaugar- bakka eða í styttri ferðum í fögru um- hverfi. Í einni slíkri ferð heimsóttum við verslun sem meðal annars seldi leiðsögutæki svipaðrar gerðar og við höfðum fengið léð í Danmörku um árið og notið leiðsagnar dönsku konunnar. Við hjónakornin horfðum hvort á annað, vitandi það að við áttum eftir að keyra upp allt það stóra land Frakkland á leið okkar til Parísar, ákváðum að slá til og splæsa í nýja konu til leiðsagnar. Áður en við ákváðum gerð tækisins fengum við þó ráðleggingar sonar okkar sem mun lengra er kominn á tæknivegum en foreldrarnir. Þegar við héldum áleiðis til Parísar í lok heimsóknarinnar syðra setti sonur okkar inn leiðina í nýja undra- tækið, beint á flugvöllinn í París. Við ákváðum að fara í einum rikk síðasta daginn, þótt leiðin væri svipuð í kílómetrafjölda og frá Kópavogi til Egilsstaða, enda vegakerfið allt annað og betra. Síðan völdum við tungu- mál fyrir leiðsögukonuna. Þrátt fyrir frönskunám hjá Vigdísi Finnboga- dóttur í MH á sínum tíma treysti ég mér ekki í franska stúlku. Þess í stað völdum við til leiðsagnar enska konu með því geðþekka nafni Kate. Eftir að hafa kvatt gestgjafa okkar ræstum við bílinn og kveiktum á ensku Kötu í apparatinu á mælaborð- inu. Ljúfmælt hóf hún leiðsögnina en hugur okkar hjóna stefndi sem fyrst á hraðbraut er bæri okkur hrað- byri í átt að frönsku höfuðborginni. Kata virtist þó annarrar skoðunar því leiðsögn hennar var eftir sveitavegum í að minnsta kosti klukkustund, ef ekki lengri tíma, eftir að við héldum af stað. Það var ekki laust við að aðeins væri farið að þykkna í minni konu eftir því sem Kata teymdi okkur lengra og lengra eftir krókaleiðum sveitaveganna, fram hjá öllum hrað- brautarmerkingum. Eftir þriggja kortera akstur hastaði hún beinlínis á Kötu en sú enska virtist ekki taka það nærri sér og beindi mér áfram eftir hlykkjóttum mjónuvegunum. „Hún er nú eitthvað skrýtin, þessi Kata,“ sagði ég samt við raunverulegu konuna sem sat mér við hlið og hafði nú tekið upp vegakortið af Frakklandi. „Skrýtin,“ sagði eiginkona mín, „ég sé ekki betur en hún sé snarvillt.“ Við ákváðum samt að elta Kötu í næsta þorp – og merkilegt nokk – þar blasti við okkur blátt hraðbrautar- skilti sem beindi okkur í hárrétta átt á leið okkar til Parísar. Viðhorf okkar til ensku Kötu snarbreyttist og varð allt annað og vinsamlegra. Við ákváð- um að slíðra sverðin og treysta henni. Hún var traustsins verð enda leiddi hún okkur örugglega á áfangastað og síðasta spölinn var sú ljúfa rödd betri en engin þegar við þræddum þétta borgarumferð í átt að flugvellinum. Þeirri spurningu er hins vegar ósvarað hvort ég kæmist leiðar minnar einn með Kötu í bílnum, án aðstoðar raunverulegu konunnar við hlið mér. Ég stórefast um það. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i 34 viðhorf Helgin 7.-9. ágúst 2015 DrainLine niðurfallsrennur Tilboð 66.900 Hitastýrð sturtu blöndunar- tæki með höfuð- og handúðara með nuddi. 99.900 kr.Frá: THE KNITTING & STITCHING SHOW London 9.- 11. október 2015 Flott hannyrðasýning með mörgu af því nýjasta sem er í boði fyrir handverksfólk. Hægt er að skrá sig á €ölda örnámskeiða hvern dag sem standa yfir í 1-2 klst. Bæði byrjendur og lengra komnir finna eitthvað við sitt hæfi. Innifalið er flug, gisting á 4* hóteli í 2 manna herbergi með morgunmat, 2 daga miði á sýninguna, aðstoð fararstjóra & rúta til og frá flugvelli. BETT SÝNINGIN London 21.–24. janúar 2016 Frábær sýning fyrir alla þá sem hafa áhuga á áhugaverðum lausnum sem hægt er að nýta í skólastarfi. Gist verður á hinu fræga Cumberland hóteli við Oxford Street. Innifalið er flug, gisting í 2 manna herbergi með morgunmat, rúta til og frá flugvelli og rútuferðir á sýninguna í tvo daga. EM 2015 Í KÖRFUBOLTA Berlín 4.-11. september 2015 Lið ársins ásamt íþróttamanni ársins tekur þátt í EM í körfubolta í september. Við erum með frábæran pakka, þar sem innifalinn er miði á alla 15 leikina í riðlinum sem Ísland leikur listir sínar í. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland kemst svona langt í Evrópukeppni og mikill áhugi er fyrir keppninni hér heima. Örfá sæti eru eftir. Innifalið er eftirfarandi: flug, gisting í 7 nætur á 4* hóteli ásamt morgunverði, rúta til og frá flugvelli, fararstjórn & miði á alla 15 leikina í Íslands-riðlinum. GAMAN FERÐIR FYRIR ALLA GAMAN Á TÓNLEIKUM! HOLLAND – ÍSLAND Amsterdam 3.–6. september 2015 UPPSELT 3. september v rð r einn mest spennandi leikur í knattspyrnusögu okkar Íslendinga, en það er viðureign Holl nds og Íslands. Við verðum með stóran hóp af s uðningsmönnum landsliðsins í ferðinni, en því miður er orðið uppselt í þessa ferð. Við stefnum á að setja upp ferðir á alla helstu leiki Íslands svo ekki gleyma að fylgj st með á gaman.is. miðað við 2 í herbergi 96.900 kr.Frá: miðað við 2 í herbergi 209.900 kr.Frá: miðað við 2 í herbergi BORGARFERÐIR Við erum með mikið úrval af alls konar æfinga- og keppnisferðum fyrir alla aldurshópa og íþróttir. Við höfum skipulagt ferðir fyrir bæði félagslið og einstaklinga, hér fyrir neðan eru nokkur dæmi. Það er fátt skemmtilegra en að skella sér á góða tónleika. Það vill svo skemmtilega til að Gaman Ferðir bjóða landsmönnum upp á €ölbreyttar tónl ikaferðir. CUP DENMARK 28.-31. júlí 2016 Frábært fótboltamót fyrir yngri flokka, bæði stelpur og stráka. Mótið er haldið í frábærri aðstöðu í bænum Ishøj, sem er rétt fyrir utan Kaupmannahöfn. Lið koma til þátttöku víða úr Evrópu og skipulagið er til fyrirmyndar. 119.900 kr.Frá: miðað við 2 í herbergi ONE DIRECTION / LONDON 29. september - 1. október 2015 Innifalið er flug til London, gisting í 2 nætur með morgunmat og VIP-miði á tónleikana. 164.900 kr.Frá: miðað við 2 í herbergi U2 / LONDON 3.-5. nóvember 2015 Innifalið er flug til London, gisting í 2 nætur með morgunmat og VIP-miði á tónleikana. 129.900 kr.Frá: miðað við 2 í herbergi MADONNA / LONDON 1.-3. desember 2015 Innifalið er flug til London, gisting í 2 nætur með morgunmat og VIP-miði á tónleikana. 109.900 kr.Frá: miðað við 2 í herbergi SIMPLY RED / LONDON 18.-20. desember 2015 Innifalið er flug til London, gisting í 2 nætur með morgunmat og VIP-miði á tónleikana. BARCELONA GIRLS CUP 11.–12. júní 2016 Alþjóðlegt fótboltamót fyrir stelpur sem haldið er í Santa Susanna sem er við ströndina stutt frá Barcelona. Tveir dagar af fótboltamóti og við þetta er hægt að bæta við æfingum, æfingaleikjum og ýmsum skemmtilegum ferðum, t.d. í vatnagarð og til að skoða Nou Camp. KNATTSPYRNUSKÓLI CHELSEA 17.-21. ágúst 2015 UPPSELT Knattspyrnuskóli Chelsea FC er frábær fótboltaskóli fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára. Það verða námskeið í boði í knattspyrnuskóla Chelsea aftur sumarið 2016. Skráning er hafin. TOUGH MUDDER Tough Mudder er eitt skemmtilegasta hlaup sem þú getur tekið þátt í en þau eru haldin um allan heim og hafa yfir milljón manns lokið slíku hlaupi. Þegar er orðið uppselt í næstu ferð sem farin verður helgina 12.-13. september 2015. Fylgstu með á gaman.is til að sjá tilkynningar um næstu ferð. ÆFINGA - & KEPPNISFERÐIR BARCELONA SUMMER CUP 27. júní–2. júlí 2016 Glæsilegt alþjóðlegt fótboltamót fyrir yngri flokka, bæði stelpur og stráka. Mótið er haldið nálægt Salou sem er stutt frá Barcelona. Ströndin er nálægt og sólin aldrei langt undan á þessu skemmtilega móti. ÆFINGAFERÐ TIL SPÁNAR Seinni partinn í apríl 2016 Ef þú hefur gaman af líkamsrækt og að kynnast & æfa með skemmtilegu fólki þá er þetta eitthvað fyrir þig. Æft er á ströndinni og í æfingasal. Meðal annars er farið í jóga, hugleiðslu og slökun, svo tekur dansinn við þegar kvölda tekur. Gaman Ferðir bjóða upp á spennandi borgarferðir til margra af skemmtilegustu borgum Evrópu og Bandaríkjanna í samstarfi við WOW Air. Sendu okkur póst á gaman@gaman.is og við gerum þér gott tilboð í þína borgarferð. Sérferðir Gaman Ferða eru æði €ölbreyttar og um að gera að skoða úrvalið vel og vandlega & athuga hvort þar leynist einmitt rétta ferðin fyrir þig. 71.900 kr.Frá: LONDON - 2 NÆTUR Flestar helgar í september og október 2015 59.900 kr.Frá: KÖBEN - 2 NÆTUR Flestar helgar í september og október 2015 89.900 kr. BARCELONA - 3 NÆTUR Flestar helgar í september og október 2015 59.900 kr. DUBLIN - 3 NÆTUR 3.-10. sept. / 10.-13. sept. / 17.-20. sept. 2015 Frá:Frá:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.