Fréttatíminn - 07.08.2015, Blaðsíða 57
Tómas R. Einarsson kontra-
bassaleikari og lagahöfundur
er löngu landskunnur, ekki síst
fyrir latín tónlist sína. Þriðju-
daginn 11. ágúst verður tekið
forspil á Jazzhátíð þar sem
heimildarmynd um Tómas
verður frumsýnd í Bíó Paradís
kl 18:00. Í kvikmyndinni
Latínbóndinn kynnumst við
manninum á bak við bassann og
lögin og því hvernig það vildi til
að sveitastrákur úr Dölunum elti
tónlistargyðjuna út í heim og
alla leið til Havana á Kúbu og
sneri loks til baka í heimahagana
með heita og litríka latínveislu
í farangrinum. Leikstjóri er Jón
Karl Helgason og Sigurður G.
Valgeirsson er framleiðandi.
Tómas og gítarleikarinn Ómar
Guðjónsson fagna svo útgáfu
nýs geisladisks á Jazzhátíð sem
nefnist Bræðralag. Við heyrðum
aðeins í Tómasi um samstarf
þeirra “bræðra”. “Ómar tók
við af Davíð Þór Jónssyni sem
hljómamaður í latínsveit minni
2005 og við höfum því spilað
saman í tíu ár. Hann kveikir í
minni músíkölsku taug og er
líka orkumikill og fyndinn og
glimrandi kokkur. Við ætlum að
spila lögin á nýju plötunni okkar,
Bræðralagi. Þetta verður opið tíu
ára samspilsafmæli með hægri
sveiflu, latínu og ballöðum.”
Talið verður í Jazzhátíð Reyk-
javíkur í 26. sinn miðviku-
daginn 12. ágúst og mun
jazzinn duna í Hörpu, heimili
Jazzhátíðar, fram til sunnudags-
ins 16. ágúst. Eins og síðustu ár
mun jazzganga fara niður Lauga-
veg og marka þannig upphaf
Jazzhátíðar en þessi skemmtilegi
siður er fenginn að láni frá vöggu
jazzins í New Orleans.
Fastir liðir á dagskrá Jazzhátíðar
eru daglegar „gleðistundir“ kl.
17.00 á Budvarsviðinu á efstu
hæðum Hörpu, þar sem kynn-
ingar á dagskrárliðum fara fram
og svo “spunastundir” á hverju
Heiða Árnadóttir leiðir Mógil á útgáfutónleikum í Norðurljósum 12.
ágúst. Hún er klassískt menntuð og kemur víða við í starfi sínu. “Ég
er alin upp við að hlusta á jazz. Pabbi minn Árni Ísaksson er mikill
jazz áhugamaður og jazz var mikið spilaður á mínu heimili. Þegar ég
fór í nám við Tónlistarháskólann í Haag var ég fyrst óákveðin hvort
ég ætti að halda áfram í klassískum söng eða fara yfir í jazzsöng. Ég
valdi klassísku leiðina en maður þarf ekki að vera fastur í einu formi
heldur flytja þá tónlist sem maður elskar og finnst skemmtileg.
Mógil hófst í raun þegar ég var í náminu í Haag. Við Joachim
Badenhorst fórum að flytja saman þjóðlög frá ýmsum áttum og
enduðum með því að byrja að semja saman. Við bættust svo þau
Hilmar Jensson, Eiríkur Orri Ólafsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir.
Núna semjum við öll fyrir Mógil og ég hef séð að mestu um texta-
gerð. Mig langaði til þess að hafa mjög íslenska rót í textunum og því
eru þeir flestir undir áhrifum frá íslenskri nátturu og þjóðsögum. Við
höfum samt spilað minna hér heima og mest verið að spila í Belgíu
og Hollandi. Þannig að nú er frábært tækifæri að koma á Jazzhátíð að
hlusta á okkur.” segir Heiða.
Heiða ætlar ekki að missa af tónleikum:
Niescier/Jensson/McLemore.
Það er greinilega mikil gróska í
íslensku jazzlífi því að á Jazzhátíð
í ár eru hvorki meira né minna en
átta tónleikar þar sem flytjendur
fagna nýjum hljómdiski.
Á opnunardegi hátíðarinnar eru
það bassaleikarinn Leifur Gunn-
arsson sem fagnar sinni fyrstu
útgáfu Húsið sefur sem hann lýsir
sem lýrísku og melankólískum
þjóðlagadjassi. Tónlistin er eftir
Leif og er samin við íslensk ljóð.
Mógil sem leidd er af söng-
konunni Heiðu Árnadóttur
fagnar þriðju útgáfu sinni Korríró.
Á fimmtudeginum eru það tríóið
Jónsson & More, leitt af bræðru-
num Ólafi og Þorgrími Jónsso-
num sem ríður á vaðið og fagnar
sinni fyrstu útgáfu No Way Out.
Þríeyki skipað þýska saxofónleik-
aranum Angelika
Niescier, Hilmari Jenssyni
gítarleikara og bandaríska
trommaranum Scott McLemore
fylgir eftir sinni fyrstu útgáfu
Brok-en Cycle þar sem landamæri
jazzins eru könnuð. Ásgeir
Ásgeirsson fær til sín góða gesti
sem eru á nýútkomnum diski
hans Trio. Tónlistin er lýrísk
undir suður-amerískum áhrifum.
Tómas R. Einarsson og Ómar
Guðjónsson fagna sinni útgáfu,
Bræðralag þar sem hægt sving og
latin ræður ríkjum. Á föstu-
deginum stígur fyrst á svið Sunna
Gunnlaugs Trio með nýjan disk
Cielito Lindo og í framhaldi leiða
Sigurður Flosason og Hans
Olding verkefni sitt Projeto Brasil
þar sem þeir taka fyrir þekktustu
höfunda brasilískrar tónlistar.
Breiddin er mikil þar sem hér er
að finna bæði sunginn og leikinn
jazz, frumsaminn jafnt sem
tökulög, bossanova, hefðbundinn
jazz, samtíma jazz og frjálsan
spuna. Að tónleikum loknum
mun hlustendum gefast kostur á
að kaupa diska og fá þá áritaða af
listamönnunum.
Latínbóndinn eignast bróður
Jazzhátíð ómar í Reykjavík í 26. sinn
Ævintýraleg og hlý tónlist
8 útgáfu-
tónleikar á
hátíðinni
Útgáfutónleikar 13. ágúst kl. 21:00.
Útgáfutónleikar miðvikudaginn 12. ágúst kl. 22:00.
Heimildamynd um Tómas R. Einarsson verður for-
spil að Jazzhátíð og gleðin heldur áfram með útgáfu-
tónleikum í Norðurljósasal.
Þegar þú horfir til baka hvað
vakti áhuga þinn á jazztónlist
og hverja telur þú vera þína
helstu áhrifavalda í tónlist?
“Fyrsta skýra minningin er frá
tónleikum með Ellu Fitzgerald
í París vorið 1977. Þar voru líka
stórsveit Counts Basie og tríó
Óskars Peterson en ég tók bara
eftir Ellu, hún plantaði sveifl-
unni í mig og ég fæ enn fiðring
þegar ég hlusta á hana. Helstu
áhrifavaldar mínir myndi ég telja
Niels-Henning Örsted Pedersen
og Red Mitchell á námsárum
en Charlie Haden í dag.” segir
Tómas.
Tómas ætlar ekki að missa af
tónleikum: Kutimangoes.
kvöldi í lok dagskrár kl. 23.00
þar sem flytjendur láta gamminn
geysa óundirbúið fram eftir
kvöldi. Ókeypis er á þessa opnu
viðburði.
Tónleikar á Jazzhátíð verða alls
tuttugu talsins og munu þeir allir
fara fram í Norðurljósum og í
Silfurbergi í Hörpu. Alls munu
hátt í hundrað listamenn koma
fram á hátíðinni, um þriðjungur
þeirra erlendir gestir.
Eins og fyrri ár endurspeglar
Jazzhátíð Reykjavíkur vel
þá breidd og fjölbreytileika
sem rúmast innan hugtaksins
jazztónlist; allt frá tónlist Louis
Armstong í frumbernsku jazzins
til nútímalegs norræns spuna-
jazz. Á einum tónleikum verða
landamæri jazz, þjóðlaga- og
klassískrar tónlistar rannsökuð
og á öðrum eru það landamæri
jazz og brasilískrar hryntónlistar
sem eru viðfangsefnið. Söngjazz
frá sjötta og sjöunda áratugnum
og heimstónlistarveisla. Svo
nokkur dæmi séu tekin.
Jazzhátíð í ár endurspeglar líka
þann sköpunar- og drifkraft sem
ræður ríkjum í íslensku jazzlífi,
en í ár fá tónleikagestir að njóta
átta úgáfutónleika þar sem nýtt
efni verður frumflutt og oftar en
ekki er þar um að ræða eftir-
tektarverð samstarfsverkefni inn-
lendra og erlendra listamanna.
Stjórn Jazzhátíðar þakkar öllum
þeim fjölmörgu listamönnum
sem fram koma á hátíðinni í ár,
styrktaraðilum, bæði opinberum
aðilum sem og úr einkageiranum,
innlendum sem og erlendum,
fagfólki og stjórnendum í Hörpu
og öllum öðrum sem lagt hafa
hönd á plóg við skipulag og
framkvæmd hátíðarinnar í ár.
F.h. stjórnar Jazzhátíðar
Reykjavíkur: Ari Daníelsson
Mógil fagnar útgáfu síns þriðja disks Korríró en þau
hafa hlotið hlýjar móttökur gagnrýnenda sem segja
tónlistina “snerta sálina” vera “ævintýralega og hlýja”
og “landamæralausa snilld”
For a special evening with a view like no other
Best Icelandic produce complemented with a spectacular
panoramic view of Reykjavík and the surrounding horizon.
Kolabrautin is on 4th floor Harpa
Reservations +354 519 9700
www.kolabrautin.is