Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.08.2015, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 07.08.2015, Blaðsíða 14
F F ramundan er gleði- og baráttu- ganga Samtakanna´78 sem orð- in er fastur liður í íslensku sam- félagi. Jafnframt viljum við minnast þess að 15 ár eru liðin frá því grunnur var lagður að starfi FAS – Samtaka foreldra og aðstandenda sam- kynhneigðra. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og viðhorf samfélagsins opn- ast gagnvart fjölbreytileika mannlífsins – ekki síst fyrir ötult starf Samtakanna´78 – þar sem foreldrar og aðstend- endur hafa lagt hönd á plóg. Starfsemi FAS var sjálfs- prottin og braust fram eftir baráttugöngu samtakanna árið 2000. Þörfin var knýj- andi. Fordómar gagnvart samkynhneigð og samkyn- hneigðum höfðu dunið á for- eldrum í langa tíð – ekki síst mæðrum og meðal annars á virtum vinnustöðum. Þeir fordómar urðu drifkraftur til að umbreyta sársauka í þekkingu, fræðslu og gleði. Frumkvöðlastarf varð til – sem borið var uppi af eldmóði kvenna. Hver varð afraksturinn? Starf FAS fékk strax fast skipulag og unnið var mark- visst að því að ná til aðstand- enda og samfélags. Lögð var áhersla á samvinnu við Samtökin´78 – enda hags- munamálin sameiginleg. Hlutverk okkar og markmið var tvíþætt: Að styðja foreldra og aðstandendur samkynheigðra, deila hvert með öðru reynslu okkar styrk og vonum og vera sterkt bakland fyrir okkar fólk. Jafnframt var lang- tímamarkmið að leitast við að hafa áhrif á viðhorf í samfélaginu með fræðslufundum og þátttöku í þjóð- málaumræðu. Strax var hafist handa við að skipuleggja opna fræðslufundi sem haldnir voru einu sinni í mánuði í húsnæði Samtakanna´78. Fundirnir féllu í góðan jarðveg og sköpuðust miklar og gagnlegar umræður. Við vorum sýnileg. Við töldum mikil- vægt að samfélagið áttaði sig á því að samkynhneigðir og hinsegin fólk ættu sterkt bakland. Samkynhneigð er fjölskyldumál og snertir marga. Í ræðum og blaðagreinum sýndum við fram á að með einfaldri tölfræði mætti færa líkur að því að minnst 5% þjóðarinnar væru samkynhneigðir og með þeirra allra nánustu snerti samkynhneigð 25% þjóðarinnar. Við vorum staðráðin í að vera þátttakend- ur í uppbyggingu og mótun viðhorfa samfélagsins og leggja okkar lóð á vogarskálina. Fræðsla er öflugasta vopnið Vorið 2002 hélt FAS sinn tíunda opna fræðslufund sem hafði yfirskriftina „Um samkynhneigð trú og siðfræði“. Mörgum innan okkar vébanda var umhugað um afstöðu kirkju og trúar gagnvart ástvinum okkar og það var ástæða til. Við hugsuðum lengra. Formaður FAS, Harpa Njáls, hafði samband við formann Prestafélags Íslands (PÍ), sr. Jón Helga Þórarins- son, árið 2003 og bar upp beiðni um samstarf með það að markmiði að efla fræðslu um samkynhneigð – trú og kirkju. Erindinu var vel tekið og afraksturinn varð þrjú opin málþing á vettvangi presta og samkynhneigðra 2004 og 2005. Málþing FAS og PÍ voru öll skipulögð af FAS og í fram- haldi safnaði formaður FAS efninu saman og bjó til útgáfu í Sérriti Kirkjuritsins 2005. Þarna voru flutt 20 erindi, bæði fræðileg og einnig reynsla samkynhneigðra og aðstand- enda. Þetta voru fyrstu skipulögðu fræðslufundir um samkynhneigð sem haldnir voru á vettvangi kirkju og presta og upp úr þessu starfi sem var að frumkvæði FAS – varð til öfl- ugur hópur innan prestastéttarinnar um málefnið. Því skal haldið til haga! Þá var starfshópur tengdur Biskups- stofu sem formaður FAS átti sæti í. Hóp- urinn fékk styrk frá Kristnihátíðarsjóði til að útbúa fræðslu- og kynningarefni um trú og sam- kynhneigð, fyrir presta og starfsmenn kirkna. Afraksturinn var góður en efnið fékk samt ekki brautargengi hjá Kirkju- ráði. Við lögðum okkar af mörkum við umræðu og fræðslu um samkyn- hneigð og hjónabandið – bæði í töl- uðu máli og blaðagreinum. Þá sendi FAS áskorun til allra þingmanna sem einnig var afhent formlega á Alþingi ásamt greinargerð. Þjóðin stóð nær heilshugar með hjónaböndum sam- kynhneigðra og Alþingi samþykkti löggjöf um jafnan rétt til hjúskapar. FAS leitaði einnig 2005 samstarfs við Menntasvið Reykjavíkurborgar um að efla fræðslu starfsmanna í leik- og grunnskólum borgarinnar um samkynhneigð og samkynhneigða. Viðtökur voru góðar sem leiddi árið 2007 til formlegs samstarfsverkefnis Menntasviðs með Samtökunum ´78 og FAS. Ekki þarf að fjölyrða um árangur af því starfi sem síðan hefur fest sig í sessi og aukið þekkingu og viðurkenningu í skólum á eðlilegum fjölbreytileika mannlífsins. Enn er verk að vinna Í fullan áratug var starf FAS öflugt og árangursríkt. Hér hafa verðið nefnd nokkur dæmi. Við lítum um öxl og gleðjumst. Nú hafa nýir hópar og aðstandendur hinsegin fólks stigið fram – verkefnin eru mörg og starfið áfram mikilvægt. Það brennur á mörgum foreldrum og aðstandendum að prestar þjóð- kirkjunnar geti neitað að gifta fólk af sama kyni. Það er ólíðandi að æðsta stofnun þjóðkirkjunnar ásamt nú- verandi- og fyrrverandi biskupi leggi blessun sína yfir slíka mismunun á grundvelli samviskufrelsis presta. Það er óásættanlegt að slík mis- munun séu liðin í þjónustu opinberra stofnunar. Hvað ef kennarar, læknar og heilbrigðisstarfsfólk neitaði fólki um þjónustu á grundvelli kyn- hneigðar? Það er tímabært að þessu linni. Alþingi Íslendinga getur ekki lengur horft framhjá slíku sem telst brot á mannréttindum. Það er í hendi löggjafans að tryggja þjónustu án mismununar – ef kirkjan treystir sér ekki – verður að taka vígsluréttinn af þjóðkirkjunni. Fimmtán ár eru liðin frá því grunnur var lagður að starfi FAS – Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra Það er ástæða til að fagna – og taka þátt! Harpa Njáls stofnandi FAS og fyrsti formaður Ingibjörg S. Guð- mundsdóttir fyrrum varaformaður og formaður FAS 14 viðhorf Helgin 7.-9. ágúst 2015 Ef þú hleypur 10 kílómetra notarðu jafnmikla orku og þarf til að hafa kveikt á einum ljósastaur í átta klukkustundir Opið 10-17 alla daga til 30. ágúst. Leiðarlýsingar á landsvirkjun.is/heimsoknir Gagnvirkar orkusýningar Landsvirkjunar í Búrfelli og Kröflu varpa ljósi á orkuna sem býr í öllum hlutum. Landsvirkjun vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum; vatnsafli, jarðvarma og vindi. Líttu við í sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.