Fréttatíminn - 07.08.2015, Blaðsíða 14
F F
ramundan er gleði- og baráttu-
ganga Samtakanna´78 sem orð-
in er fastur liður í íslensku sam-
félagi. Jafnframt viljum við minnast
þess að 15 ár eru liðin frá því grunnur
var lagður að starfi FAS – Samtaka
foreldra og aðstandenda sam-
kynhneigðra. Mikið vatn
hefur runnið til sjávar síðan
og viðhorf samfélagsins opn-
ast gagnvart fjölbreytileika
mannlífsins – ekki síst fyrir
ötult starf Samtakanna´78 –
þar sem foreldrar og aðstend-
endur hafa lagt hönd á plóg.
Starfsemi FAS var sjálfs-
prottin og braust fram eftir
baráttugöngu samtakanna
árið 2000. Þörfin var knýj-
andi. Fordómar gagnvart
samkynhneigð og samkyn-
hneigðum höfðu dunið á for-
eldrum í langa tíð – ekki síst
mæðrum og meðal annars
á virtum vinnustöðum. Þeir
fordómar urðu drifkraftur
til að umbreyta sársauka í
þekkingu, fræðslu og gleði.
Frumkvöðlastarf varð til –
sem borið var uppi af eldmóði
kvenna.
Hver varð afraksturinn?
Starf FAS fékk strax fast
skipulag og unnið var mark-
visst að því að ná til aðstand-
enda og samfélags. Lögð
var áhersla á samvinnu við
Samtökin´78 – enda hags-
munamálin sameiginleg.
Hlutverk okkar og markmið
var tvíþætt: Að styðja foreldra og
aðstandendur samkynheigðra, deila
hvert með öðru reynslu okkar styrk
og vonum og vera sterkt bakland
fyrir okkar fólk. Jafnframt var lang-
tímamarkmið að leitast við að hafa
áhrif á viðhorf í samfélaginu með
fræðslufundum og þátttöku í þjóð-
málaumræðu. Strax var hafist handa
við að skipuleggja opna fræðslufundi
sem haldnir voru einu sinni í mánuði
í húsnæði Samtakanna´78. Fundirnir
féllu í góðan jarðveg og sköpuðust
miklar og gagnlegar umræður. Við
vorum sýnileg. Við töldum mikil-
vægt að samfélagið áttaði sig á því
að samkynhneigðir og hinsegin fólk
ættu sterkt bakland. Samkynhneigð
er fjölskyldumál og snertir marga.
Í ræðum og blaðagreinum sýndum
við fram á að með einfaldri tölfræði
mætti færa líkur að því að minnst 5%
þjóðarinnar væru samkynhneigðir
og með þeirra allra nánustu snerti
samkynhneigð 25% þjóðarinnar. Við
vorum staðráðin í að vera þátttakend-
ur í uppbyggingu og mótun viðhorfa
samfélagsins og leggja okkar lóð á
vogarskálina.
Fræðsla er öflugasta vopnið
Vorið 2002 hélt FAS sinn tíunda opna
fræðslufund sem hafði yfirskriftina
„Um samkynhneigð trú og siðfræði“.
Mörgum innan okkar vébanda var
umhugað um afstöðu kirkju og trúar
gagnvart ástvinum okkar og það var
ástæða til. Við hugsuðum lengra.
Formaður FAS, Harpa Njáls, hafði
samband við formann Prestafélags
Íslands (PÍ), sr. Jón Helga Þórarins-
son, árið 2003 og bar upp beiðni um
samstarf með það að markmiði að
efla fræðslu um samkynhneigð – trú
og kirkju. Erindinu var vel tekið og
afraksturinn varð þrjú opin málþing á
vettvangi presta og samkynhneigðra
2004 og 2005. Málþing FAS og PÍ
voru öll skipulögð af FAS og í fram-
haldi safnaði formaður FAS efninu
saman og bjó til útgáfu í Sérriti
Kirkjuritsins 2005. Þarna voru flutt
20 erindi, bæði fræðileg og einnig
reynsla samkynhneigðra og aðstand-
enda. Þetta voru fyrstu skipulögðu
fræðslufundir um samkynhneigð
sem haldnir voru á vettvangi kirkju
og presta og upp úr þessu starfi sem
var að frumkvæði FAS – varð til öfl-
ugur hópur innan prestastéttarinnar
um málefnið. Því skal haldið til haga!
Þá var starfshópur tengdur Biskups-
stofu sem formaður FAS átti sæti í. Hóp-
urinn fékk styrk frá Kristnihátíðarsjóði
til að útbúa fræðslu-
og kynningarefni um trú og sam-
kynhneigð, fyrir presta og starfsmenn
kirkna. Afraksturinn var góður en efnið
fékk samt ekki brautargengi hjá Kirkju-
ráði.
Við lögðum okkar af mörkum við
umræðu og fræðslu um samkyn-
hneigð og hjónabandið – bæði í töl-
uðu máli og blaðagreinum. Þá sendi
FAS áskorun til allra þingmanna sem
einnig var afhent formlega á Alþingi
ásamt greinargerð. Þjóðin stóð nær
heilshugar með hjónaböndum sam-
kynhneigðra og Alþingi samþykkti
löggjöf um jafnan rétt til hjúskapar.
FAS leitaði einnig 2005 samstarfs
við Menntasvið Reykjavíkurborgar
um að efla fræðslu starfsmanna í leik-
og grunnskólum borgarinnar um
samkynhneigð og samkynhneigða.
Viðtökur voru góðar sem leiddi árið
2007 til formlegs samstarfsverkefnis
Menntasviðs með Samtökunum ´78
og FAS. Ekki þarf að fjölyrða um
árangur af því starfi sem síðan hefur
fest sig í sessi og aukið þekkingu og
viðurkenningu í skólum á eðlilegum
fjölbreytileika mannlífsins.
Enn er verk að vinna
Í fullan áratug var starf FAS öflugt og
árangursríkt. Hér hafa verðið nefnd
nokkur dæmi. Við lítum um öxl og
gleðjumst. Nú hafa nýir hópar og
aðstandendur hinsegin fólks stigið
fram – verkefnin eru mörg og starfið
áfram mikilvægt.
Það brennur á mörgum foreldrum
og aðstandendum að prestar þjóð-
kirkjunnar geti neitað að gifta fólk af
sama kyni. Það er ólíðandi að æðsta
stofnun þjóðkirkjunnar ásamt nú-
verandi- og fyrrverandi biskupi leggi
blessun sína yfir slíka mismunun á
grundvelli samviskufrelsis presta.
Það er óásættanlegt að slík mis-
munun séu liðin í þjónustu opinberra
stofnunar. Hvað ef kennarar, læknar
og heilbrigðisstarfsfólk neitaði
fólki um þjónustu á grundvelli kyn-
hneigðar? Það er tímabært að þessu
linni. Alþingi Íslendinga getur ekki
lengur horft framhjá slíku sem telst
brot á mannréttindum. Það er í hendi
löggjafans að tryggja þjónustu án
mismununar – ef kirkjan treystir sér
ekki – verður að taka vígsluréttinn af
þjóðkirkjunni.
Fimmtán ár eru liðin frá því grunnur var lagður að starfi FAS – Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra
Það er ástæða til að fagna – og taka þátt!
Harpa Njáls
stofnandi FAS og fyrsti
formaður
Ingibjörg S. Guð-
mundsdóttir
fyrrum varaformaður og
formaður FAS
14 viðhorf Helgin 7.-9. ágúst 2015
Ef þú hleypur 10 kílómetra notarðu
jafnmikla orku og þarf til að hafa kveikt
á einum ljósastaur í átta klukkustundir
Opið 10-17 alla daga til 30. ágúst.
Leiðarlýsingar á landsvirkjun.is/heimsoknir
Gagnvirkar orkusýningar Landsvirkjunar í Búrfelli
og Kröflu varpa ljósi á orkuna sem býr í öllum hlutum.
Landsvirkjun vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum
orkugjöfum; vatnsafli, jarðvarma og vindi.
Líttu við í sumar.