Fréttatíminn - 07.08.2015, Blaðsíða 60
Ásgeir Ásgeirsson heldur út-
gáfutónleika í Hörpu þann 13.
ágúst. Ljósmynd/Hari
2015 POSTER/DURATRAN IMAGE CHOICES
Imagery expires December 31, 2015
UNITED STATES OR INTERNATIONAL
VW IMAGE 5
Styles featured: Nolita
*Vera Wang Salon- Available at
select locatons.
VW IMAGE 5
Styles featured: Inanna
VW IMAGE 5
Styles featured: V367
VW IMAGE 1
Styles featured: Inanna
VW IMAGE 2
Styles featured: V430
V
43
0
ST
Y
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
VW IMAGE 3
Styles featured: V368
O
LY
A
S
TY
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
V
36
7
ST
Y
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
IN
A
N
N
A
S
TY
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
N
O
LI
TA
S
TY
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
Sími 587 2123
FJÖRÐUR
Sími 555 4789
SELFOSS
Sími 482 3949
Sólgler með
styrkleika
fylgja kaupum
á gleraugum
í Augastað
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
TónlisT ný plaTa Ásgeirs Ásgeirssonar og úTgÁfuTónleikar í næsTu viku
Tíu mismunandi tríó
Djassgítarleikarinn Ásgeir Ásgeirsson sendi frá sér plötuna Trio á dögunum.
Á plötunni eru lög eftir Ásgeir og þema plötunnar er að hvert lag er leikið af
þremur tónlistarmönnum í senn, en aldrei þeim sömu. Ásgeir segir hug-
myndina hafa komið á kvöldgöngu og sé tilraun til þess að halda hlustandan-
um við efnið. Ásgeir heldur útgáfutónleika í Hörpu fimmtudaginn 13. ágúst.
æ fingarnar ganga vel, en þær eru ekki svo ýkja margar,“ segir Ásgeir Ásgeirsson
djassgítarleikari um útgáfutónleika
sína á fimmtudaginn í næstu viku.
„Ég hef spilað þetta efni með mörgu
af þessu fólki við hin ýmsu tækifæri í
sumar svo þetta hefur svona síast inn,“
segir hann. „Hugmyndin að þessari
plötu kom þegar ég var á göngu eitt
kvöldið. Þá kemur andinn stundum
yfir mann. Mér datt þetta í hug út frá
þeirri pælingu að það koma út fjöl-
margar djassplötur hverju sinni með
tríóum,“ segir hann. Á þeim plötum
er sama bandið að spila öll lögin. Í
poppinu er þetta þannig að það koma
margir hljóðfæraleikarar að hverri
plötu og mig langaði að blanda þessu
aðeins saman. Svo er hlustunin að
breytast svo mikið og alltaf færri og
færri sem hlusta á plötur í heild sinni,
og mig langaði að gera tilraun til þess
að gera plötu sem er eins og playlisti.
Koma áheyrandanum á óvart í hverju
lagi,“ segir Ásgeir sem átti nokkur lög
en samdi svo restina með þessa hug-
mynd að leiðarljósi.
„Þetta eru tríó sem ég hef starfað
með, mislengi og mismikið vissulega
en allt saman fólk sem ég þekki mjög
vel.“ Á plötunni koma fram m.a. píanó-
leikararnir Gunnar Gunnarsson og Karl
Olgeirsson, saxófónleikarinn Haukur
Gröndal og söngvararnir Kristbjörn
Helgason og Stefanía Svavarsdóttir.
„Það var hrein unun að vinna með þessu
fólki, eins og alltaf, og þau pössuðu öll
mjög vel inn í þetta konsept,“ segir Ás-
geir. „Það er ekki erfitt að semja tónlist
ofan í menn eins og Gunnar Gunnars-
son og Hauk Gröndal sem ég hef þekkt
lengi.“
Á útgáfutónleikunum, sem haldnir
verða í Silfurbergi í Hörpu næstkom-
andi fimmtudagskvöld, mun Ásgeir
leika lög af þessari plötu en ekki munu
allir sem komu að gerð hennar koma
fram. „Það er einfaldlega ekki hægt
að ná öllu þessu fólki saman,“ segir
Ásgeir. „Ég er búinn að setja saman
gott band sem spilar með mér þarna.
Kristbjörn er fluttur til útlanda svo
Páll Óskar Hjálmtýsson, sem ég spila
mikið með, ætlar að stökkva í hlut-
verkið af sinni alkunnu snilld. Þetta
verður mjög skemmtilegt,“ segir Ás-
geir Ásgeirsson gítarleikari.
Allar nánari upplýsingar um tón-
leikana má nálgast á www.harpa.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Alþjóðlegi listahópurinn Wiolators heldur árlega sýningu í einhverju heima-
landi meðlimanna.
MyndlisT opnun í HafnarHúsinu
k unstschlager opnar sýninguna Wiolators: Reykjavíkurútgáfan á
morgun, laugardaginn 8. ágúst,
klukkan 15 í Kunstschlagerstofu
Hafnarhússins. Sýningin stendur
til 21. ágúst.
A lþjóðlegi l istahópur inn
Wiolators var stofnaður árið
2011 í Gerrit Rietveld Akademí-
unni í Amsterdam. Hópurinn
hefur tvístrast um alla Evrópu
frá útskrift en heldur nú árlega
sýningu í einhverju heimalandi
meðlimanna. Í fyrra sameinað-
ist hópurinn í sjávarbænum al-
ræmda, Blackpool í Englandi.
Þar urðu verkin fyrir áhrifum af
spákonum, sílíkonbrjóstum og
glansandi auglýsingaskiltum.
Í ár eru Wiolators í Reykjavík
og taka yfir Kunstschlagerstofu
í Hafnarhúsinu. Íslenska útgáf-
an snýst meðal annars um að
aðeins þrír meðlimir Wiolators
komust til Íslands. Þeir eru því
í umboði fyrir fjarverandi með-
limi og fá sendar leiðbeiningar
um hvernig þeir eigi að klára
send verk.
Listamennirnir eru: Emilia
Bergmark, Þórdís Erla Zoëga,
Maria Gondek, Christopher Hol-
loran, Kristinn Guðmundsson,
Peter Sattler, Nadja Voorham og
Andrea Zavala Folache.
Wiolators: Reykjavíkurút-
gáfan opnuð á laugardag
60 menning Helgin 7.-9. ágúst 2015