Fréttatíminn - 07.08.2015, Blaðsíða 64
í takt við tímann Silja RóS RagnaRSdóttiR
Gleymir sér við að spila á gítarinn til þrjú á nóttunni
Silja Rós Ragnarsdóttir er 22 ára Vesturbæingur sem er ein þriggja íslenskra stelpna sem komust inn í leiklistarskólann The American Academy of Dramatic
Arts í Hollywood í haust. Í sumar hefur hún verið að vinna á leikskóla á milli þess sem hún gengur á Esjuna og nýtur góða veðursins í Vesturbæjarlauginni.
Staðalbúnaður
Ég kaupi helst föt helst í útlöndum, mikið í H&M
og Topshop. Ég er skósjúk og hef ekki tölu á skó-
pörunum mínum. Ég hef nánast aðeins gengið
í hælaskóm síðan ég var 14 ára enda er ég ekki
hávaxin. Ég á kannski tvö pör af sléttbotna skóm
sem ég nota aðeins í ræktinni eða vinnunni. Gít-
arinn minn fylgir mér líka oft en ég keypti mér
Little Martin gítar um jólin sem er uppáhalds
hluturinn minn.
Hugbúnaður
Ég æfi í World Class og fer þá helst út á Nes. Mér
finnst mjög gott að fara í Hot Yoga og svo hef
ég æft dans síðan ég var sex ára. Í sumar hef ég
mikið farið í Vesturbæjarlaugina að njóta góða
veðursins. Þegar ég er ekki að vinna reyni ég að
hitta vini mína sem mest. Ég dreg þau út á land,
upp á Esju eða við setjumst niður á Súfistann.
Þegar ég skemmti mér fer það allt eftir stemn-
ingunni hvort haldið er á Húrra, Prikið eða b5
en mér finnst skemmtilegast að fara eitthvert að
dansa. Ég lifi fyrir tónlist og gerist oft sek um það
að spila á gítarinn minn til þrjú á nóttunni. Ég
reyni að fylgjast vel með íslenskri tónlist og fer
reglulega á tónleika. Í sumar fór ég loksins að sjá
uppáhaldstónlistarmanninn minn, Damien Rice,
og það var magnað. Ég horfi meira á sjónvarps-
þætti og uppistönd en bíómyndir þegar ég finn
tíma til þess. Ég er Friends-aðdáandi og hef horft
á seríurnar margoft, en núna er ég að fylgjast
með True Detective.
Vélbúnaður
Ég er með Macbook Pro og iPhone 5s. Ég er frek-
ar mikil Apple-manneskja. Það app sem ég nota
mest er ábyggilega Snapchat og svo er Facebook
alltaf opið i símanum mínum. Ég hef reynt að
byrja á Twitter en stunda það helst að læka allt
sem vinir mínir gera.
Aukabúnaður
Ég hef mikinn áhuga á flestum listgreinum. Ég
er mjög mikil félagsvera og finnst best að hafa
nóg að gera. Þegar ég vil slaka á finnst mér best
að teikna, mála eða semja tónlist. Ég er fædd
með leiklistarbakteríuna og er á leiðinni í leik-
listarnám í haust. Mér finnst mjög gaman að elda
góðan mat og ennþá betra að borða góðan mat.
Besta sem ég fæ er humar og nautalund. Ég elska
að ferðast bæði um Ísland og erlendis og reyni að
gera sem mest af því.
tónleikaR ný plata
Hljómsveitin Mógil er að senda frá
sér sinn þriðja geisladisk um þess-
ar mundir og nefnist hann Korr-
író. Mógil skapar einstakan hljóð-
heim og vefur saman klassískri
tónlist, þjóðlagatónlist og djassi
á einstakan hátt. Textar sveitar-
innar eru innblásnir af þjóðsög-
um og náttúru. Sveitin gaf frá sér
geisladiskana Í stillunni hljómar
árið 2011 og Ró árið 2008. Í tilefni
af útgáfunni mun sveitin halda
þrenna tónleika í næstu viku og
verða þeir fyrstu þriðjudaginn
11. ágúst í Versölum, Ráðhús-
inu í Þorlákshöfn, Hafnarbergi
klukkan 20. Daginn eftir, þann
12. ágúst, mun Mógil koma fram
á Jazzhátíð Reykjavíkur í Hörpu
klukkan 22 og verða það eiginleg-
ir útgáfutónleikar. Föstudaginn
14.ágúst spilar sveitin á Berjadög-
um í Ólafsfirði og verða tónleik-
arnir í Ólafsfjarðarkirkju klukkan
20. Meðlimir Mógil eru þau Heiða
Árnadóttir söngkona, Hilmar
Jensson gítarleikari, Kristín Þóra
Haraldsdóttir víóluleikari, Eiríkur
Orri Ólafsson trompetleikari og
Joachim Badenhorst klarinettu-
leikari. Hægt er að kaupa Korr-
író á heimasíðu sveitarinnar www.
mogil.org
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Mógil sendir
frá sér Korríró
Hljómsveitin Mógil spilar á tónleikum í Þorlákshöfn, á Jazzhátíð og í Ólafsfirði í
næstu viku.
64 dægurmál Helgin 7.-9. ágúst 2015