Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.2014, Side 25

Skinfaxi - 01.11.2014, Side 25
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 25 húsið og sundlaugin komu Öflugt vetrarstarf á Hólmavík „Hvað starfið sjálft innan HSS áhrærir hefur þátttaka fólksins hér á svæðinu verið bara nokkuð góð svona á heildina litið. Hólmavík er ekki stór staður en starf Ungmennafélags- ins Geisla hefur alla tíð verið metnaðarfullt og mikið en á veturna er boðið upp á æfing- ar í nokkrum íþróttagreinum í íþróttahúsinu. Íþróttaskóli hefur verið starfræktur fyrir yngstu börnin og gefist vel í alla staði. Með tilkomu íþróttahússins, sem tekið var í notkun 2004, tók vetrarstarfið stakkaskiptum og það jókst til muna. Krakkar frá Reykhólum eru í meira mæli farin að sækja í þá þjónustu sem í boði er hér á Hólmavík sem er hin besta þróun. Svo hafa aðilar verið koma og sótt í skíða- aðstöðuna sem er afar jákvætt,“ sagði Vignir. Góð reynsla af SamVest Vignir kom að SamVest, samstarfi héraðs- sambanda á vestursvæðinu, sem að hans mati hefur gengið vel. Viðburðir tengdir sam- starfinu hafa verið skipulagðir og hefur það ýtt undir áhuga hjá krökkum á svæðinu. Bylting með íþróttahúsinu - Tilkoma íþróttahússins hlýtur að hafa markað tímamót í starfi ykkar á sínum tíma? „Það var auðvitað mikil bylting fyrir okkur og gerbreytti allri íþróttaaðstöðunni hér á Hólmavík og nærliggjandi byggðir nutu svo góðs af. Byggt var félagsheimili upp úr 1990 sem var lengi notað sem íþróttasalur og gerði sitt gagn en íþróttahúsið gerði gæfu- muninn. Það segir margt um þróunina að þegar ég var ungur voru kenndar íþróttir á ganginum í skólanum. Það hafa því orðið miklar breytingar í þessum efnum á síðustu áratugum, öllum til góðs. Þegar íþróttahúsið og sundlaugin komu urðu straumhvörf, það verður maður bara að segja.“ Meira samstarf við sveitar- félögin - Ef þú horfir fram á veginn, hvernig sérðu framtíðina hjá HSS? „Ég á von á því að starfið eigi bara eftir að eflast og styrkjast í nánustu framtíð. Ýmsar hugmyndir eru uppi um að efla samstarfið við sveitarfélögin. Ég vil meina að ráðning tómstundafulltrúa haustið 2011 hafi verið mikið framfaraspor. Hann var í fyrstu í 10% starfi fyrir héraðssambandið en núna er þessi staða orðin 100% starf. Það sýnir bara að full þörf var orðin fyrir það og hagkvæmt fyrir alla að hafa starfsmann til að hugsa um tóm- stundamál barna og unglinga og ýmislegt annað sem er á hans könnu. Það hafa komið fram hugmyndir um að gera enn betur með ráðningu á íþróttakennurum að skólanum og fá um leið héraðssambandið og félögin að því máli. Að fá manneskju sem gæti verið í fullu starfi og einnig séð um æfingar fyrir félögin og haldið, svo eitthvað sé nefnt, utan um sumarstarf HSS.“ Uppbygging í Selárdal „Ég er bjartsýnn á framtíðina hjá HSS, það þýðir ekkert annað. Nú er að hefjast upp- bygging inni í Selárdal, hjá Skíðafélagi Strandamanna, en þar á að reisa hús núna á næstunni. Það er frábært framtak af þeirra hálfu. Einn hluti af Íslandsgöngunni, svoköll- uð Strandaganga, var haldinn hér á sam- bandssvæðinu í tuttugasta sinn sl. vetur. Með því að fá hús á svæðið okkar inni í Selárdal breytist aðstaða til æfinga fyrir alla til muna og starfið í heild sinni,“ sagði Vignir Pálsson, formaður HSS, í viðtalinu við Skinfaxa.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.