Skinfaxi - 01.11.2014, Blaðsíða 29
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29
ishátíð HSÞ að Laugum
Fjölbreytt starf HSÞ
Héraðssamband Þingeyinga hefur skipað
stóran sess í hjörtum Þingeyinga og stuðlað
að samheldni, félagsþroska og uppbygg-
ingu samfélagsins, sem viðkemur bæði mann-
virkjum og mannauði. Þegar saga sambands-
ins er skoðuð kemur í ljós að starf þess hefur
tekið miklum stakkaskiptum í gegnum tíð-
ina, farið í gegnum hæðir og lægðir, staðið af
sér erfiða tíma og eflst og dafnað.
31 aðildarfélag í dag
Sambandið samanstendur af 31 aðildar-
félagi árið 2014 sem standa fyrir margvíslegri
starfsemi. Þar eru golfklúbbar, hestamanna-
félög, fjölgreinafélög, akstursklúbbur, skák-
félag og skotfélag. Félagar sambandsins eru
3381 og iðkendur 1909. Þar af eru 859 undir
18 ára aldri.
Spennandi tímar
Nú hefur sambandið starfað í heila öld og
nýir og spennandi tímar eru framundan. Það
er á valdi Þingeyinga að sjá til þess að sam-
bandinu takist að starfa og dafna á komandi
árum samfélagi okkar til heilla. Það er í þeirra
höndum að standa vörð um þennan merka
menningararf sem allir eiga saman og sam-
einast í kjörorðunum: „Ræktun lýðs og lands“.
Svipmyndir úr
starfi HSÞ og UNÞ