Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.11.2014, Qupperneq 39

Skinfaxi - 01.11.2014, Qupperneq 39
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 39 B ókaútgáfan Tindur hefur gefið út bók-ina Íslensk knattspyrna 2014 eftir Víði Sigurðsson. Er þetta jafnframt 34. árið í röð sem árbók knattspyrnunnar á Íslandi kemur út. Árið 2014 var einstakt í sögu íslenskrar knattspyrnu. Karlalandsliðið byrjaði frábær- lega í undankeppni EM 2016 með því að sigra Tyrki, Letta og Hollendinga og komst í október í sína bestu stöðu á heimslista FIFA frá upphafi. Stjarnan varð fyrsta íslenska félagsliðið í karlaflokki til að spila í fjórum umferðum í Evrópukeppni og upplifði sann- kallað ævintýri. Íslendingar áttu markakónga í Noregi og Hollandi, fyrirliða meistaraliðsins í kvennaflokki í Svíþjóð og þannig mætti lengi telja. Stjarnan varð Íslandsmeistari karla í fyrsta skipti eftir dramatískan úrslitaleik gegn FH og Garðabæjarliðið varð tvöfaldur meistari í kvennaflokki í fyrsta skipti. Fjallað er ítarlega um Íslandsmótið 2014 í öllum deildum og flokkum. Mest um efstu deildir karla og kvenna en einnig um neðri deildirnar og yngri flokkana. Bikarkeppni karla og kvenna er gerð ítarleg skil og fjallað um önnur mót innanlands og margt fleira sem tengist íslenskum fótbolta á árinu 2013. Í bókinni eru viðtöl við Söru Björk Gunnars- dóttur, Ingvar Jónsson og Hörpu Þorsteins- dóttur, fjallað sérstaklega um árangur og stöðu karla- og kvennalandsliðanna, um markakónga Íslendinga erlendis, Íslendinga sem hafa spilað 100 landsleiki og margt fleira áhugavert. Í bókinni er m.a. opinberað hvaða leik- menn áttu flestar stoðsendingar í efstu deild- um karla og kvenna á árinu en viðkomandi leikmenn eru verðlaunaðir af bókaútgáfunni Tindi við útkomu bókarinnar. Þá er í bókinni afar nákvæm tölfræði um alla leikmenn í efstu deildum karla og kvenna, liðsskipanir allra liða í öllum deildum meist- araflokks koma fram ásamt leikja- og marka- fjölda, öll úrslit og lokastöður í öllum yngri flokkum á Íslandsmótinu. Þar má finna hverjir hafa spilað mest og skorað mest í öllum deild- um, hvaða íslensku knattspyrnumenn hafa spilað flesta leiki á ferlinum, hvaða Íslend- ingar hafa spilað í Meistaradeild Evrópu, og ótalmargt fleira. Bókin er 256 blaðsíður og þetta er í annað skipti sem hún er öll litprentuð. Hún er prýdd um 350 myndum, m.a. liðsmyndum af sigur- vegurum í öllum deildum og flokkum á Íslandsmótinu, ásamt mörgum fleiri liðum og einstaklingum. Bókin Íslensk knattspyrna 2014 komin út

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.