Skinfaxi - 01.11.2014, Síða 39
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 39
B ókaútgáfan Tindur hefur gefið út bók-ina Íslensk knattspyrna 2014 eftir Víði Sigurðsson. Er þetta jafnframt 34. árið
í röð sem árbók knattspyrnunnar á Íslandi
kemur út.
Árið 2014 var einstakt í sögu íslenskrar
knattspyrnu. Karlalandsliðið byrjaði frábær-
lega í undankeppni EM 2016 með því að
sigra Tyrki, Letta og Hollendinga og komst í
október í sína bestu stöðu á heimslista FIFA
frá upphafi. Stjarnan varð fyrsta íslenska
félagsliðið í karlaflokki til að spila í fjórum
umferðum í Evrópukeppni og upplifði sann-
kallað ævintýri. Íslendingar áttu markakónga
í Noregi og Hollandi, fyrirliða meistaraliðsins
í kvennaflokki í Svíþjóð og þannig mætti
lengi telja.
Stjarnan varð Íslandsmeistari karla í fyrsta
skipti eftir dramatískan úrslitaleik gegn FH
og Garðabæjarliðið varð tvöfaldur meistari í
kvennaflokki í fyrsta skipti.
Fjallað er ítarlega um Íslandsmótið 2014
í öllum deildum og flokkum. Mest um efstu
deildir karla og kvenna en einnig um neðri
deildirnar og yngri flokkana. Bikarkeppni
karla og kvenna er gerð ítarleg skil og fjallað
um önnur mót innanlands og margt fleira
sem tengist íslenskum fótbolta á árinu 2013.
Í bókinni eru viðtöl við Söru Björk Gunnars-
dóttur, Ingvar Jónsson og Hörpu Þorsteins-
dóttur, fjallað sérstaklega um árangur og
stöðu karla- og kvennalandsliðanna, um
markakónga Íslendinga erlendis, Íslendinga
sem hafa spilað 100 landsleiki og margt
fleira áhugavert.
Í bókinni er m.a. opinberað hvaða leik-
menn áttu flestar stoðsendingar í efstu deild-
um karla og kvenna á árinu en viðkomandi
leikmenn eru verðlaunaðir af bókaútgáfunni
Tindi við útkomu bókarinnar.
Þá er í bókinni afar nákvæm tölfræði um
alla leikmenn í efstu deildum karla og kvenna,
liðsskipanir allra liða í öllum deildum meist-
araflokks koma fram ásamt leikja- og marka-
fjölda, öll úrslit og lokastöður í öllum yngri
flokkum á Íslandsmótinu. Þar má finna hverjir
hafa spilað mest og skorað mest í öllum deild-
um, hvaða íslensku knattspyrnumenn hafa
spilað flesta leiki á ferlinum, hvaða Íslend-
ingar hafa spilað í Meistaradeild Evrópu, og
ótalmargt fleira.
Bókin er 256 blaðsíður og þetta er í annað
skipti sem hún er öll litprentuð. Hún er prýdd
um 350 myndum, m.a. liðsmyndum af sigur-
vegurum í öllum deildum og flokkum á
Íslandsmótinu, ásamt mörgum fleiri liðum
og einstaklingum.
Bókin Íslensk knattspyrna 2014 komin út