Skinfaxi - 01.11.2014, Síða 40
40 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Reykjavík
Gjögur hf., Kringlunni 7
Arkþing ehf., Bolholti 8, 2. hæð
Bílasmiðurinn hf., Bíldshöfða 16
Blaðamannafélag Íslands, Síðumúla 23,
3. hæð
Efling stéttarfélag, Sætúni 1
Ennemm ehf., Brautarholti 10
Farmanna- og fiskimannasamband
Íslands, Grensásvegi 13
Gull- og silfursmiðjan ehf., Álfabakka 14b
Heilsubrunnurinn ehf., Kirkjuteigi 21
Henson Sports Europe á Íslandi ehf.,
Brautarholti 24
Iceland Seafood ehf., Köllunarklettsvegi 2
Knattspyrnusamband Íslands, Laugardal
Landsnet hf., Gylfaflöt 9
Lögmannafélag Íslands, Álftamýri 9
Löndun ehf., Kjalarvogi 21
Rafstilling ehf., Dugguvogi 23
Rimaskóli, Rósarima 11
Suzuki-bílar hf., Skeifunni 17
Vilhjálmsson sf., Sundaborg 1
Kópavogur
Tölvu- og tækniþjónustan ehf.
Rafmiðlun hf., Ögurhvarfi 8
Garðabær
Geislatækni ehf., Laser-þjónustan,
Suðurhrauni 12c
Raftækniþjónusta Trausta ehf.,
Lyngási 14
Hafnarfjörður
Hagtak hf., Fjarðargötu 13–15
Reykjanesbær
DMM Lausnir ehf., Hafnargötu 91
Reykjanesbær, Tjarnargötu 12
Verkfræðistofa Suðurnesja hf.,
Víkurbraut 13
Verslunarmannafélag Suðurnesja,
Vatnsnesvegi 14
Starfsmannafélag Suðurnesja,
Krossmóum 4
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur,
Krossmóa 4
Grindavík
Ungmennafélag Grindavíkur,
Mánagerði 2
Akranes
Bifreiðastöð Þórðar Þ. Þórðarsonar,
Dalbraut 6
Íþróttabandalag Akraness,
Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum
Runólfur Hallfreðsson ehf., Álmskógum 1
Straumnes ehf., Krókatúni 22–24
Borgarnes
Matstofan ehf., Kjartansgötu 22
Samtök sveitarfélaga Vesturlands,
Bjarnarbraut 8
Eyja- og Miklaholtshreppur, Hofsstöðum
Hellissandur
KG Fiskverkun ehf., Melnes 1
Súðavík
VÁ VEST, félag um vímuefnaforvarnir,
Álfabyggð 3
S iðferðilega séð má segja að til séu tvær leiðir að árangri í því sem kallað er nú-tímasamfélag. Önnur byggist á jákvæðu
hugarfari, sem miðar að því að bæta sjálfan
sig í dag miðað við sjálfan sig í gær. Að verða
betri en aðrir í greininni er eingöngu jákvæð
afleiðing af réttu hugarfari, góðum sjálfsaga
og fleirum jákvæðum eiginleikum sem við
búum yfir. Þessi nálgun hefur reglulega í för
með sér jákvæð áhrif á umhverfið og einstakl-
ingana í því. Hin leiðin byggist á neikvæðu
hugarfari, þar sem allt miðar að því að verða
betri en aðrir. Hæfileikar hvers og eins eru
miðaðir við hæfileika hinna, út frá þeim sem
er „bestur“. Að verða betri og ná árangri með
þessari nálgun hefur reglulega í för með sér
neikvæð áhrif á umhverfið og einstaklingana
í því.
Sem dæmi um jákvæðu útgáfuna dettur
mér í fljótu bragði hug Ólafur Stefánsson
handboltakappi. Hann er alltaf til fyrirmynd-
ar, jákvæður, einbeittur, hvetjandi og yfirleitt
jákvæð áhrifum sem frá honum koma hvar
sem hann kemur.
Sem dæmi um neikvæðu útgáfuna dettur
mér í hug ítalski fótboltakappinn Mario Balo-
telli. Ég ætla ekki að fella dóm yfir manninum
sjálfum, heldur bara segja frá einni mynd sem
ég sá og áhrifin sem hún hefur út á við, þótt
kappinn sé kannski til fyrirmyndar öllum öðr-
um stundum. Þessi tiltekna mynd er tekin á
æfingu hjá liðinu sem hann spilar með. Allir
liðsmennirnir eru önnum kafnir við að gera
armbeygjur, nema Balotelli … sem liggur á
maganum og slakar á. Ég sé þetta viðmót
reglulega á öllum starfsvettvangi, ekki bara í
íþróttum. Þegar einstaklingar fara þá leið, til
að ná árangri, að ætla sér að vera „betri en
hinir“, missa þeir oft tilfinningu fyrir siðferði
gagnvart þeim sem eru „lélegri“ en þeir sjálfir.
Ég hef séð einstaklinga sem hafa orðið svo
góðir að þeim fannst þeir bara ekki lengur
þurfa að lúta sömu reglum og aðrir. Tilvistar-
réttur þeirra á jörðinni vegna hæfileika þeirra
óx svo gríðarlega umfram annarra að þeim
fannst þeir geta komið fram nánast hvernig
sem var og jafnvel gátu metið hverjir aðrir
höfðu tilvistarrétt á jörðinni líkt og þeir …
þekktu sína líka, sko!
Fyrir mér eru ákveðin skilaboð fólgin í því
sem samfélagið sendir með því að hampa
„þeim bestu“ og skilja eftir fátæklega val-
möguleika fyrir hina minna hæfileikaríku.
Frábær leið til að knýja fram árangur, ef hún
ylli því ekki reglulega að ákveðnir einstakl-
ingar fari neikvæðu leiðina með tilheyrandi
neikvæðum áhrifum út á við. „Meistarar“,
sem sýna á afgerandi hátt, með framkomu
sinni, hve miklu betri en aðrir þeir séu, senda
mögulega með þessu háttalagi þau skilaboð
til barnanna okkar að slík framkoma sé eitt-
hvað sem „meistararnir“ eigi rétt á.
Fyrir mér sitja eftir nokkrar hugleiðingar
fyrir hvern og einn.
Er ég mögulega að fara ranga leið að réttu
markmiði?
Er ég mögulega að stýra öðrum ranga leið
að réttu markmiði?
Hver er skiptingin á milli jákvæðra og nei-
kvæðra áhrifa sem ég hef út á við? 80:20?
Hvernig stýrum við aðstæðum dagsdag-
lega þannig að í framtíðinni verði eingöngu
jákvæðar fyrirmyndir sýnilegar?
Kristinn Óskar Grétuson, nefndarmaður
í lýðheilsu- og forvarnanefnd UMFÍ.
Jákvæður eða neikvæður sigurvegari?
Kirkjubæjarklaustur
– Verið hjartanlega velkomin
Íþróttamiðstöð, sundlaug, upplýsinga-
miðstöð og sýningar.
Kristinn Óskar
Grétuson, lýð-
heilsu- og for-
varnanefnd
UMFÍ.