Ægir - 01.01.2014, Qupperneq 6
6
Á það hefur verið bent í ræðu og riti að undanförnu að gera þurfi
átak í því að skapa íslenskum sjávarafurðum sterkari ímynd á
erlendum mörkuðum. Á sínum tíma voru ráðandi stór sölufyrirtæki
sjávarafurða en síðan þróuðust sölumálin í fleiri áttir og sér í lagi
stærri fyrirtækin tóku sölumálin sjálf í sínar hendur. Ekki er vafamál
að þau gera vel í sínu markaðsstarfi en þær spurningar hafa skotið
upp kollinum hvort með tímanum hafi sérstaða og ímynd íslenskra
fiskafurða gefið eftir. Vitað er að Norðmenn hafa verið að styrkja sig
á þessu sviði, efla gæðaímynd norskra sjávarafurða. Sem snertir
okkar stöðu á mörkuðum með beinum hætti.
Viðar Garðarsson, ráðgjafi hjá markaðsmenn.is, gerir þessi mál
að umtalsefni í grein í blaðinu Sóknarfæri nýverið. Hann segir
áherslur Norðmanna vera á uppbyggingu vörumerkjavirðis, þ.e.
„Norge - seafood from Norway“. Viðar segir tölur úr
markaðsrannsóknum staðfesta verulegan ávinning Norðmanna af
þessu starfi og nefnir sem dæmi að í Portúgal hafi 25% kaupenda
saltfisks valið þann norska umfram aðra framleiðendur árið 2003 en
árið 2012 var hlutfallið komið í 70%. Viðar bendir einnig á að í
Frakklandi hafi neysla á norskum eldislaxi tvöfaldast á tímabilinu
2000-2010.
Bent er í grein Viðars á að grunninn að faglegu markaðsstarfi
verði að leggja með markaðsrannsóknum sem varpi ljósi á stöðuna
eins og hún er í dag. Rannsaka verði hver vitundin um vörumerki
íslensks fisk sé meðal mismunandi markhópa í mismunandi
löndum. Að sama skapi verði að bera saman ímynd íslenska fisksins
á mörkuðunum og ímynd afurða samkeppnisaðilanna. „Ef ekki er
ljóst hvert á að stefna og ekki er vitneskja um stöðuna er lagt er af
stað verður markaðsstarfið allt ómarkvisst,“ segir Viðar og heldur
áfram:
„Útflytjendur sjávarafurða verða að sýna frumkvæði og
samstöðu og lyfta íslenskum sjávarafurðum á þann stall sem þeim
ber í hugum mismunandi markhópa um heim allan.
Markaðsskrifstofa sjávarútvegsins í eigu útflytjenda, þar sem
markvisst væri verið að byggja upp verðmæti vörumerkja íslensks
sjávarútvegs, þarf að verða að verða að veruleika fyrr en seinna. Það
er glórulaust kæruleysi að sitja aðgerðarlaus hjá og bíða eftir
opinberum aðila og horfa á samkeppnislöndin vinna keppnina um
hið huglæga mat markhópsins.“
Jóhann Ólafur Halldórsson ritstjóri skrifar
Íslenskur fiskur og ímyndin
Út gef andi:
Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Rit stjórn:
Athygli ehf. Hafnarstræti 82, Ak ur eyri.
Rit stjór i:
Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.)
Sími 515-5220. GSM 899-9865.
Net fang: johann@athygli.is
Aug lýs ing ar:
Inga Ágústsdóttir. Sími 515-5206.
GSM 898-8022. Net fang: inga@athygli.is
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Sími 515-5200.
Á skrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 5100 kr.
Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205
ÆG IR kem ur út 11 sinn um á ári.
Eft ir prent un og ívitn un er heim il,
sé heim ild ar get ið.
MAKING MODERN LIVING POSSIBLE
Danfoss hf. • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími: 510 4100 • veffang: www.danfoss.is
Danfoss stjórnbúnaður fyrir íslenskan iðnað
Rofabúnaður • Mjúkræsar • Segullokar
Hitastillar • Hitanemar
Stjórnbúnaður með áratuga reynslu
við íslenskar aðstæður
Hitaliðar •
Þrýstiliðar • Þrýstistillar • Þrýstinemar
R
itstjórn
a
rp
istilll