Ægir - 01.01.2014, Side 8
F
réttir
„Þetta er mikil viðurkenning
fyrir íslenska vísindamenn því
bæði leiðum við þetta samstarf
fyrirtækja og stofnana vítt um
Evrópu og nýtum þá reynslu og
þekkingu sem byggð hefur ver-
ið upp hér á Íslandi á sviði fiski-
rannsókna og fiskveiðistjórn-
unar. Það er mikil samkeppni
um þessa styrki en umsóknin
hlaut 14 stig af 15 mögulegum
og það segir mikið um stöðu ís-
lenskra vísindamanna í alþjóð-
legu vísindasamstarfi,“ segir
dr. Gunnar Stefánsson, prófess-
or við Raunvísindadeild Há-
skóla Íslands sem er vísindaleg-
ur verkefnisstjóri í nýju um-
fangsmiklu fjölþjóðaverkefni
sem 7. rannsóknaráætlun
Evrópu styrkir til næstu
fjögurra ára. Matís og Háskóli
Íslands gegna forystuhlutverki
í verkefninu sem ber heitið
MareFrame en markmiðið með
því er að þróa fjölstofna fisk-
veiðistjórnunarkerfi og finna
leiðir til að auðvelda inn-
leiðingu þess í Evrópu.
Verkefnisstjóri verður dr.
Anna Kristín Daníelsdóttir,
sviðsstjóri hjá Matís. Hlutur Ís-
lands nemur um 275 milljónum
króna en heildarkostnaður við
verkefnið nemur um einum
milljarði króna. Þetta er meðal
stærstu verkefnastyrkja sem
veittir eru í Evrópu á þessu
sviði.
Höfum reynslu og þekkingu fram
að færa
Áhersla verður í verkefninu á
vistvæna, sjálfbæra, félagslega
og hagræna stjórnun. Þetta fel-
ur meðal annars í sér samstarf
við sjómenn, útgerðir og
vinnsluaðila, sem og aðra þá
sem hafa hagsmuni af fyrir-
komulagi fiskveiðistjórnunar.
Þrír af hverjum fjórum fiski-
Íslendingar leiða fjögurra ára evrópskt rannsóknaverkefni
um þróun fiskveiðistjórnunarkerfis:
Viðurkenning
fyrir íslenska
vísindamenn
- segir dr. Gunnar Stefánsson verkefnastjóri
Reynsla Íslendinga á sviði fiskirannsókna
og fiskveiðistjórnunar verður nýtt í
MareFrame verkefninu.
Íslensk
fyrirmynd
Fyrirmynd í MareFrame
verk efninu er íslenska
fiskveiðistjórnunarkerfið en
þó sér í lagi þeir þættir sem
að baki því búa. Þar er átt
við fisiveiðiráðgjöf, þau
gögn og úrvinnsla sem hún
byggir á.
8