Ægir - 01.01.2014, Page 11
11
Hjá Þorbirni starfa á milli 350
og 360 manns og eingöngu
bæjarfélagið er stærri vinnuveit-
andi í Grindavík. Fyrirtækið var
stofnað þann 24. nóvember árið
1953. Stofnendur voru fjórir sjó-
menn úr plássinu ásamt eigin-
konum þeirra. Þeir voru Sigurð-
ur Magnússon, Kristinn Ólafs-
son, Sæmundur Sigurðsson og
Tómas Þorvaldsson. Félagið rak
lengstum mjög fjölþætta báta-
útgerð ásamt vinnslu í landi, en
þar var helst um að ræða síldar-,
saltfisks-, og skreiðarverkun auk
rækjuvinnslu á sjó og í landi.
Saltfiskvinnslan var þó lang um-
fangsmesti hluti landvinnslunn-
ar. Félagið efldist og styrktist til
muna 1. júlí árið 2000 þegar
það sameinaðist Fiskanesi hf. í
Grindavík og Valdimar hf. í Vog-
um.
Umtalsvert meiri afli en svipuð
verðmæti
Á árinu 2013 lönduðu skip Þor-
björns hf. 28.119 tonnum að
verðmæti 7.039 milljónir kr. Afli
frystitogara var 18.438 tonn og
afli línubáta 9.684 tonn. Þetta er
umtalsvert meiri afli en á árinu
2012, eða sem nemur tæplega
2.500 tonnum, en verðmæti afl-
ans stóð því sem næst í stað
sem segir sína sögu um afurða-
verðslækkanir.
Eiríkur Tómasson, sonur
Tómasar Þorvaldssonar, eins af
stofnendum Þorbjörns, er for-
stjóri fyrirtækisins en einnig
vinna tvö systkini hans hjá fyrir-
tækinu; Gunnar framkvæmda-
stjóri og Gerður sem er gjald-
keri. Við hittum Eirík að máli á
skrifstofu hans hjá Þorbirni í
glæsilega uppgerðu skrifstofu-
húsnæði í Hafnargötu 12 þar
sem áður voru verbúðir.
Fyrirtækið varð sextíu ára í
nóvember síðastliðnum. Haldið
var upp á tímamótin með mik-
illi fiskiveislu (Fish and chips) að
hætti Breta. Eigendur „Fish and
Chicken“, feðgarnir Hugh og
James Lipscombe, sem reka 38
veitingastaði í og umhverfis
London sáu um eldamennsk-
una, en þeir eru stórir kaupend-
ur að sjófrystum flökum af
frystitogurum fyrirtækisins. Um
800 gestir, starfsmenn, fyrrum
starfsmenn, viðskiptavinir og
velunnarar fyrirtækisins, nutu
veitinganna og tónlistar.
Í gegnum tíðina hefur uppi-
staðan í framleiðslu Þorbjarnar
þó verið saltfiskur. Um áratuga-
skeið hafa stjórnendur fyrirtæk-
isins verið í miklum viðskiptum Vaktin staðin við flökunarvélina.
Saltað ofan í ker.