Ægir - 01.01.2014, Page 12
við sömu ættirnar í Suður-
Evrópu.
Þorbjörn gerir út fjóra, stóra
línubáta og þrjá frystitogara.
„Við ætlum að breyta út-
gerðinni á frystitogurunum og
fækka um einn,“ segir Eiríkur.
Hjá fyrirtækinu starfa 350-
360 manns en ársstörf eru um
280. Þessi munur helgast af tvö-
földu kerfi á frystitogurunum
og að hluta til á línubátunum.
Eiríkur segir að það sé góður
gangur í Grindavík. Þar séu öfl-
ug fyrirtæki, eins og Þorbjörn,
Vísir, Stakkavík og Einhamar og
auk þess hafi bæjarfélagið efn-
ast ágætlega þegar það seldi
hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja.
Eiríkur segir að fyrirtækjunum
hafi einnig borið gæfa til að
starfa saman. Þannig eiga Þor-
björn og Vísir saman fyrirtækið
Haustak sem er með þurrkun á
hausum og beinum. Þar er ver-
ið að setja upp verksmiðju sem
bræðir slóg.
Mikil aukning hefur orðið á
undanförnum misserum á út-
flutningi á ferskum fiski og þar
hefur Þorbjörn einnig látið að
sér kveða. Eiríkur segir þó
stærstan hluta starfseminnar
vera saltfiskvinnslu og vinnslu á
sjófrystum fiski.
„Við veiðum þorsk að mestu
leyti á línubátunum og er hann
unninn í landi en frystitogararn-
ir veiða og vinna aðrar tegundir
að mestu. Spánn, England og
Asía eru stærstu markaðirnar en
við seljum fisk í rauninni út um
allan heim.“
Vonum að stjórnmálamenn sjái
ljósið
Þorbjörn hefur ekki farið
varhluta af afurðaverðslækkun-
um frekar en önnur útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtæki landsins.
„Á síðasta ári var að meðaltali
15-18% lægra verð á sjófrystu
afurðunum en árið á undan en
verðlækkun á saltfiski var um
25%. Ofan í þessar lækkanir
kom síðan þetta háa auðlinda-
gjald sem okkur er gert að
greiða. Þetta var því erfitt ár að
flestu leyti. Það sama er að ger-
ast í uppsjávarveiðunum. Þar er
verðið að lækka verulega en
veiðigjaldið var hækkað,“ segir
Eiríkur.
Hann segir að verðlækkunin
og veiðigjaldið hafi haft alvar-
legar afleiðingar fyrir sjávarút-
veginn og landsbyggðina þar
sem um 80% atvinnugreinar-
innar er. „Við þurfum að leggja
til hliðar öll áform um þróun og
breytingar. Það verður lítið fjár-
fest í svona árferði og rekstur-
inn snýst um að spara og
þjappa saman í starfseminni og
þetta á við um alla í greininni.
En við vonum að stjórnmála-
menn sjái ljósið og geri sér
grein fyrir því að það er ekki
hægt að blóðmjólka greinina.“
Slógið verður að heilsuvörum
Gríðarleg verðmætaaukning á
sér stað innan sjávarútvegsins
með fullnýtingu á sjávarafurð-
um og segir Eiríkur að með til-
komu kvótakerfisins hafi orðið
mikil breyting til hins betra á
því hvernig auðlindin er nýtt.
Auk þess að nýta hausa og bein
í fyrirtækinu Haustaki er Þor-
björn meðeigandi að fyrirtæk-
inu Codland. Það skapar sér sér-
stöðu með því að bjóða upp á
lausnir sem byggja m.a. á sér-
hannaðri verksmiðju sem breyt-
ir afgangs hráefni í heilsutengd-
ar vörur ásamt auðlindarsetri
sem sérhæfir sig í þróun, rann-
sóknum og nýsköpun á sjávar-
tengdum vörum.
Fyrstu heildstæðu lausnina
undir merkjum Codland er að
finna í Grindavík. Þar er staðsett
heilsuvöruverksmiðja sem nýtir
afgangs slóg frá sjávarútvegi og
breytir því í hágæða mjöl og
hrálýsi, ásamt ensímfram-
leiðslu. Við hlið heilsuvörur-
verksmiðjunar er þurrkverk-
smiðja Haustaks sem sérhæfir
sig í þurrkun á fiskhausum og
beingörðum.
Höfum áður séð dimma dali
„Í gegnum þessi 60 ár höfum
við áður þurft að fara í gegnum
dali og suma dimma. Við höf-
um líka átt okkar hæðir og
þannig heldur þetta áfram. En
það þarf að huga endurnýjun á
framleiðslutækjunum og þetta
kemur allt smám saman. Skipin
í útgerð á Íslandi eru öll gömul
og þeim hefur verið vel við
haldið. En rekstrarkostnaður
þeirra er of hár. Í einum bátnum
okkar er aðalvélin t.d. frá 1967.
Það er kominn tími á endurnýj-
un en við verðum að tjalda því
sem til er meðan ástandið er
eins og það er. Næstu verkefni
eru á þessu sviði þegar hagur
fyrirtækjanna leyfir,“ segir Eirík-
ur.
Lítið fjárfest að sinni
„Við þurfum að leggja til hliðar öll áform um þróun og
breytingar. Það verður lítið fjárfest í svona árferði.“
Flökin færast eftir færibandi á
milli vinnslustöðva hjá Þorbirni.
Toghlerar frá Morgére hafa fyrir löngu sannað sig hér á landi. Þeir eru auðveldir í notkun og þarfnast lítils viðhalds.
Álagsfletir eru sérstyrktir fyrir íslenskar aðstæður, skór eru heilsteyptir og ásoðnir á tank sem tryggir lengri endingu.
Í vörulistanum á www.isfell.is er að finna ítarlegar upplýsingar um hlera.
Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna!
Toghlerar
VO3
DELTA
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
www.isfell.is
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður
OF PV3
12