Ægir - 01.01.2014, Blaðsíða 14
14
Fyrirtækin Frjó Quatro og Um-
búðasalan voru sameinuð á
seinnihluta síðast árs undir
nafninu Frjó Umbúðasalan ehf.
Umbúðasalan hefur á undan-
förnum árum sérhæft sig í sölu
á umbúðum, mestmegnis fyrir
sjávarútveg en Frjó Quatro hef-
ur selt fjölbreyttar rekstrarvör-
ur fyrir sjávarútveg, garðyrkju
og kjötiðnað.
Ólafur Erlingur Ólafsson,
framkvæmdastjóri og einn
eigenda sameinaðs fyrirtækis,
leggur áherslu á að faglegur
styrkur fyrirtækisins verði mikill,
nú þegar þau hafa lagt saman
krafta sína.
„Við búum yfir mikilli þekk-
ingu og reynslu í sölu og þjón-
ustu við fyrirtæki í mat-
vælaframleiðslu. Við leggjum
áherslu á fjölbreytt úrval af
umbúðum og vélum fyrir
sjávarútveginn og í raun
matvælaiðnaðinn í
heild. Þar má nefna
pappakassa, plast,
saltfiskkassa,
bakka, íblöndunar-
efni og ferskfisk-
kassa, sem eru allt
í senn sterkir, ein-
faldir að reisa og
með möguleika á
prentun eftir óskum við-
skiptavinarins.“
Við sameininguna
opnast möguleikar til að
auka úrvalið frá birgjum á
þessu sviði, samhliða því
að við fengum öflugan liðs-
styrk er Magni Þór Samsonar-
son hóf nýverið störf hjá fé-
laginu en hann hefur áralanga
reynslu og þekkingu í þjónustu
við sjávarútvegsfyrirtæki.
„Við erum líka með úrval af
tækjabúnaði fyrir sjávarút-
veginn s.s. Fomaco sprautu-
söltunarvélar, Kroma flök-
unarvélar fyrir makríl,
pökkunarvélar, brettavafn-
ingsvélar og fleira.
Í þriðja lagi
má svo nefna
íblöndun-
arefni fyrir
sjávarút-
veginn,
hjálparefni
Harðsnúinn kjarni starfsmanna í Frjó
Umbúðasölunni sem þjónustar við-
skiptavini í sjávarútvegi sem öðrum
matvælagreinum. Frá vinstri: Ólafur
Erlingur Ólafsson, Kristján Kjartans-
son, Magni Þór Samsonarson, Þorkell
Þorkelsson og Páll Pálsson.
Frjó Quatro og Umbúðasalan hafa sameinast:
Fagþekking á öll-
um sviðum mat-
vælavinnslunnar
Fomaco sprautusöltunarvél frá
Frjó Umbúðasölunni.
Þ
jón
u
sta