Ægir - 01.01.2014, Blaðsíða 16
„Verðlækkun á mjöli og lýsi síð-
ustu 12 mánuði er umtalsverð.
Verðlækkunin á lýsi er úr um
2000 dollurum á tonnið niður í
13-1400 dollara og mjölið hefur
lækkað úr um 11 þúsund norsk-
um krónum niður í um 9500
n.kr. Að baki þessari þróun eru
fjölþættar ástæður,“ segir Jens
Garðar Helgason hjá sölufyrir-
tækinu Fiskimiðum á Eskifirði
sem sérhæfir sig í sölu þessara
afurða á erlendum mörkuðum.
Fyrirtækið annast sölu á öllu
mjöli og lýsi sem Eskja á Eski-
firði framleiðir.
Rannsóknir auknar á loðnulýsinu
Hvað lýsið varðar segir Jens
Garðar að uppistaða útflutn-
ings frá Íslandi sé loðnulýsi sem
selt hefur verið í framleiðslu á
fóðri fyrir laxeldi. Vaxandi krafa
hefur verið um að í fóðurfram-
leiðsluna sé notað lýsi með háu
ómegagildi þar sem smásölu-
aðilar í Bretlandi gera ríkar kröf-
ur til þessa þáttar og lofa kaup-
endum sínum ákveðnum
ómegastöðlum í hverju flaki af
laxi. „Núna er svo komið að
ómegastuðlarnir í hverju flaki af
eldislaxi eru orðnir hærri en í
flaki af villtum laxi. Íslenska
loðnulýsið er sannarlega gott
hráefni og hefur verið eftirsótt á
mörkuðum en aftur á móti hef-
ur það ekki eins há ómegagildi
og spurt er eftir í dag og mætir
þar af leiðandi harðri sam-
keppni frá lýsi úr ansjósu frá
Suður-Ameríku. Þetta atriði hef-
ur því haft áhrif á sölu á lýsi að
undanförnu,“ segir Jens Garðar.
Liður í viðbrögðum er að á veg-
um fiskimjölsframleiðenda hér
á landi hefur verið hrint af stað
rannsóknarverkefni á íslensku
loðnulýsi sem ætlað er að leiða
betur í ljós þá kosti og gæði
sem þetta hráefni hefur.
„Með þessari vinnu viljum
við styrkja þá jákvæðu punkta
sem gætu leitt af sér hækkun á
verði á mörkuðum. Staðreyndin
er sú að við höfum ekki haft
nægjanlegar rannsóknir að baki
okkur í markaðssetningu á
þessari vöru og í mörgum til-
fellum hafa kaupendur vitað
meira um hana en við sem selj-
endur. Úr þessum ætlum við að
bæta og herða þannig róðurinn
í markaðsstarfinu,“ segir Jens
Garðar.
Uppsveifla í veiðum í Perú ræður
miklu
Aðra sögu er að segja af verð-
lækkun á íslensku fiskimjöli. Sú
vara er á mörkuðum í sam-
keppni við mjöl frá stórum
framleiðslulöndum á borð við
Perú. Fiskimjöl frá Perú er unnið
úr ansjósu og þar var niður-
sveifla í veiðum í fyrra. Vetrar-
kvótinn þar var um 800 þúsund
tonn en nú um áramótin var
kvótinn hins vegar aukinn í 2,4
milljónir tonna. Þetta segir Jens
Garðar að hafi haft áhrif til verð-
lækkana á mjölmörkuðum.
„Kína og Asíulönd eru stórir
kaupendur á mjöli og þar kom
upp alvarleg sýking í rækjueldi
sem leiddi af sér um 50% fram-
leiðslusamdrátt í fyrra. Auk
Verðlækkunin á mjöli og lýsi:
Fjölþættar ástæður en
vonandi tímabundnar
- segir Jens Garðar Helgason hjá sölufyrirtækinu Fiskimiðum á Eskifirði
Stakkaskipti hafa orðið í fiskimjöls-
verksmiðjum hér á landi síðustu árin
og fjölgað þeim verksmiðjum sem
knúðar eru með rafmagni.
Jens Garðar Helgason, fram-
kvæmdastjóri Fiskimiða ehf. Hann
segist ekki eiga von á að Íslendingar
missi viðskiptavini þrátt fyrir slaka
loðnuvertíð í ár.
M
a
rk
a
ðsm
á
l
16