Ægir - 01.01.2014, Side 17
17
heldur voru veður í Suður-Kína
óvenju slæm í fyrra sem einnig
leiddi af sér samdrátt í fram-
leiðslu á eldisfiski í þessum
heimshluta. Þegar þetta lagðist
saman við stóraukið framboð á
mjöli frá Perú gætti áhrifanna
strax til verðlækkunar á mjöli.
Við vonum hins vegar að þetta
sé ekki komið til að vera heldur
gangi þessar verðlækkanir aftur
til baka, ekki síst í því ljósi að til
lengri tíma litið hefur spurn eft-
ir próteini farið vaxandi al-
mennt og verð á því samhliða
hækkandi,“ segir Jens Garðar.
Miklar breytingar í tækni
hafa orðið í fiskimjölsverksmiðj-
unum hér á landi og meðal
annars segir Jens Garðar aukn-
um gæðum mjölsins að þakka
hvaða stöðu afurðirnar hafi á
mörkuðum. „Framleiðslan hér á
landi hefur sannarlega tekið
stakkaskiptum á síðustu 10 ár-
um í mjöli og lýsi. Dæmi um
það er einmitt hér hjá okkur í
verksmiðju Eskju þar sem við
höfum skipt yfir í framleiðslu
með rafmagni í stað olíu áður.
Það að geta sýnt að fram-
leiðslan er með sjálfbærri orku
er líka atriði sem hjálpar okkur
úti á mörkuðunum. Tækni-
breytingar hafa skilað auknum
gæðum, að ógleymdu góðu
samstarfi við útgerðir skipanna
sem hafa staðið sig vel í að kæla
aflann og koma þannig með
hann í háum gæðum að
bryggju.“
Missum ekki viðskiptavini
Sýnt er að loðnuvertíðin í ár
verður með allra daprasta móti
og sömu sögu er að segja um
vetrarvertíðina í Noregi. „Það
verður mjög áhugavert að sjá
hvort þetta skilar sér í hækk-
andi afurðaverðum á ný. Enn er
of snemmt að segja til um það
og fleira kemur til, s.s. sumar-
kvóti á ansjósuveiðum í Perú og
fleira. En að mínu mati er ekki
ástæða til að óttast að við miss-
um viðskiptavini þrátt fyrir
þessa slöku vertíð hér heima í
ár,“ segir Jens Garðar.
Fiskimjöl frá Íslandi á harðri samkeppni við mjöl úr ansjósu í Perú. Þar var kvóti
stóraukinn, sem skýrir öðru fremur verðlækkanir á afurðamörkuðunum.
Fiskimjölsverksmiðja Eskju á Eskifirði.