Ægir - 01.01.2014, Blaðsíða 18
Vélaverkstæðið Þór ehf. í Vest-
mannaeyjum, eða Þór eins og
fyrirtækið er nefnt í daglegu
tali, smíðar búnað fyrir skip og
fiskvinnslur. Það var stofnað
þann 1. nóvember 1964 og
verður því 50 ára í ár. Stofnend-
ur voru Garðar Þ. Gíslason,
Hjálmar Jónsson og Stefán
Ólafsson en árið 2000 breyttist
eigendahópurinn þegar nokkrir
af starfsmönnum keyptu sig
inn í fyrirtækið.
Óhætt er að segja að Véla-
verkstæðið Þór hafi víða komið
við á fimmtíu ára starfsferli. Á
upphafsárunum var nýsmíði
búnaðar fyrir sjávarútveginn
strax fyrirferðarmikil og átti fyr-
irtækið þá í samstarfi við Sig-
mund Jóhannsson sem teiknaði
ýmsar fiskvinnsluvélar, s.s.
flokkunar- og garnhreinsivélar
fyrir humar, færibönd og annan
búnað fyrir fiskvinnsluhús. Enn
þann dag í dag framleiðir Véla-
verkstæðið Þór sleppibúnað
sem Sigmund hannaði og var
fyrst settur um borð í skip hér á
landi árið 1981. Búnaðurinn
hefur í tímans rás þróast í fram-
leiðslu hjá Þór en heita má að
Sigmunds sleppibúnað sé að
finna í flestum skipum og bát-
um hér á landi.
Gjörbreyting á vinnunni í lest
Í framleiðslu búnaðar fyrir skip
og báta hefur fyrirtækið alla tíð
lagt áherslu á að bæta öryggi
og vinnuaðstöðu sjómanna.
Jafnframt er horft til þess að
búnaðurinn bæti meðferð afl-
ans og auki þannig aflaverð-
mæti. Meðal nýjunga sem fyrir-
tækið hefur komið með nýlega
er svokallað snúningslestar-
band sem, eins og nafnið gefur
til kynna, er flutningsfæriband
fyrir lestar skipa. Færibandið er
á snúningshring í lestarloftinu
og auðveldlega er hægt að
færa bandið til þannig að aflinn
fari beint á þann stað í lestinni
sem honum er ætlað að fara
hverju sinni, hvort heldur er úti
í síðum eða fyrir miðri lest.
Lestarband af þessari tegund
var valið þegar frystitogara HB
Granda, Helgu Maríu, var breytt
fyrir skömmu í sérútbúið ísfisk-
skip. Búnaðurinn auðveldar
vinnu fyrir þá sem ganga frá afl-
anum í ker í lestunum, jafn-
framt bættri aflameðferð. „Nú
er slegist um að vera í lestinni,“
segja framleiðendurnir hjá Þór.
Af öðrum verkefnum Þórs
má nefna aðgerðarkerfi og
lestarband í togskipið Þórunni
Sveinsdóttur VE. Verkefni fyrir-
tækisins eru fjölbreytt og má
þar nefna smíði á færiböndum,
krapakerjum til kælingar á fiski
um borð í skipum, tækjabúnað
fyrir loðnuhrognavinnslu, tanka
fyrir repjuolíu, hlífar fyrir
aflanema og fleira mætti nefna.
Mikil þörf á iðnmenntuðu ungu
fólki
Forsvarsmenn Þórs segja tæki-
færi í sjávarútvegi og þegar vel
gangi í sjávarútvegi verði áhrif-
anna strax vart í verkefnum fyr-
irtækisins. Það sem helst standi
í vegi fyrir frekari vexti fyrirtæk-
isins sé hversu fáir velja að fara í
vélsmíði/vélvirkjun og renni-
smíði. „Greinin er að eldast – ef
svo má segja. Nauðsynlegt er
að fjölga nemendum í iðnnámi,
enda er það spennandi val-
kostur og greinin er orðin
tækni- og tölvuvædd, öflug
teikniforrit eru notuð í að teikna
upp hluti, tölvustýrðir renni-
bekkir og fleira,“ segja forsvars-
menn Vélaverkstæðisins Þórs í
Vestmannaeyjum.
Vélaverkstæðið Þór í Vestmannaeyjum:
Nýtt snúingsband
gjörbreytir vinnu
í lestum skipa
18
Lestarband frá Vélaverkstæðinu Þór komið upp í ísfisktogaran-
um Helgu Maríu sl. haust. Mikil bylting er á vinnu í lest skipanna
með tilkomu lestarbandsins því auðvelt er snúa færibandinu og
stýra þannig aflanum þangað sem hann á að fara í lestina.
T
æ
k
n
i