Ægir - 01.01.2014, Side 22
22
Ómengaður sjór opnar tækifæri
„Á undanförnum árum hafa
orðið miklar breytingar í fram-
leiðslu á niðursoðinni þorsklif-
ur. Á sínum tíma störfuðu mörg
fyrirtæki í þessum iðnaði í
löndunum við Eystrasalt en
með hertum kröfum Evrópu-
sambandsins, m.a. vegna dí-
oxínmengunar, hefur fram-
leiðslan á þessu svæði lagst af
og flust á norðlægari slóðir. Í
dag erum við stærst í þessari
framleiðslu en hana er líka að
finna í minna mæli í Norður-
Noregi og Rússlandi. Við getum
sagt að hér birtist í sinni tær-
ustu mynd þau tæki-
færi sem opnast
okkur
vegna
hreinleika sjávarins við Ísland
og þeirrar ímyndar sem við höf-
um. Ómengaður sjór er okkar
vopn,“ segir Rolf.
Gæsalifur hafsins
Eins og áður segir er Akraborg
stóriðja á sína vísu. Fyrirtækið
framleiðir 12-13 milljónir dósa
árlega af niðursoðnum afurð-
um og lang stærsti hlutinn er
niðursoðin þorsklifur. Auk
hennar framleiðir fyrirtækið
niðursoðna skötuselslifur í
litlum mæli, sem og
niðursoðna loðnu og svil.
Fyrir innanlandsmarkað
framleiðir Akraborg
niðursoðna þorsklifur,
þorsklifrarpaté og sælkera-
loðnu og eru það einu vöru-
flokkarnir sem fyrirtækið
markaðssetur undir eigin
vörumerki. Öll önnur fram-
leiðsla er fyrir erlenda kaupend-
ur og undir þeirra vörumerkj-
um.
„Aðalsmerki okkar er
þorsklifrin sem við framleiðum
fyrir viðskiptavini í Vestur-
Evrópu, t.d. í Frakklandi, Þýska-
landi og Hollandi en síðan fer
líka umtalsvert magn til Austur-
Evrópu. Í okkar viðskiptavina-
hópi eru smáir aðila sem stórir,
t.d. keðjur á borð við Tesco og
John West þannig að viðskipta-
vinahópurinn er fjölbreyttur.
Þetta er líka vara sem bæði
höfðar til almennra neytenda
og sælkeranna enda hefur
þorskalifrin oft verið kölluð Foie
Gras of the Sea, eða gæsalifur
hafsins. Í sögulegu samhengi er
það líka þannig að þorsklifrin
var notuð upp úr kreppuárun-
um þegar gæsalifur var illa fá-
anleg og dýr. Síðan er mjög
breytilegt milli landa hversu
mikil menning er fyrir notkun á
þorskalifrinni en hún er víða rík
og að sama skapi þá eru það
okkar sterkustu markaðir,“ segir
Rolf.
Gæðaeftirlitið er strangt enda kröfuharðir kaupendur og hörð samkeppni á mörkuðum.