Ægir - 01.01.2014, Síða 23
23
Nýtingarhugsunin hefur aukist
Sú viðhorfsbreyting að auka
nýtingu sjávarfangs og auka-
afurða hefur komið sér vel fyrir
Akraborg. Reglugerð, sem sett
var fyrir fáum árum um að kom-
ið skuli með lifur að landi, skipti
líka miklu máli fyrir fyrirtækið
og nú er hráefnisframboðið
jafnara yfir árið. Það segir Rolf
mikilvægt.
„Á fáum árum höfum við séð
mjög mikla framför í hugsun og
fólk hefur áttað sig á því að
þorsklifur er verðmæt matvara
en ekki bara hráefni í bræðslu.
Við fáum lifur frá stórum sem
smáum fyrirtækjum, smábátum
jafnt sem stærri skipum og
slægingarfyrirtækjum. Grund-
vallaratriði í meðhöndlun á lifr-
inni er það sama og með annað
sjávarfang, þ.e. að flokka lifrina
og ganga strax vel frá henni í
kælingu. Það tryggir gæðin alla
leið til okkar. Hér byrjum við á
að handsnyrta lifrina en hún er
flokkuð og heitreykt áður en
hún er sett í dósir og soðin. Í
stærstan hluta framleiðslunnar
er aðeins notað lítið af salti
þannig að segja má að þetta sé
vara sem er eins náttúruleg og
frekast getur verið,“ segir Rolf.
Keppni við annað niðursoðið
sjávarfang
Þrátt fyrir að Akraborg hafi
sterka stöðu sem framleiðandi
á þorsklifur segir Rolf að fyrir-
tækið sé fjarri því að vera án
samkeppni á mörkuðum. Er-
lendis snúi hún að framleiðend-
um annarra niðursoðinna sjáv-
arafurða.
„Hér á Íslandi erum við ekki
með mikið úrval í þessum flokk-
um í matvöruverslunum en
myndin er allt önnur í búðum
erlendis. Þar eru jafnvel tugir
vöruflokka niðursoðinna sjávar-
afurða í sömu verslun sem
keppa um hylli neytenda
þannig að við þurfum að
standa okkur í þeirri
samkeppni. Við höfum á
undanförnum árum þurft að
mæta hækkandi hráefnisverði
hér heima sem við ekki höfum
getað velt út í verðlagið á er-
lendum mörkuðum þannig að
þetta er hörð samkeppni.“
Rolf Hákon Arnarson, framkvæmdastjóri Akraborgar. Einar Víglundsson verskmiðjustjóri fylgist með framleiðsluvörunum streyma í
gegnum vinnsluna.
Allt til línuveiða
www.isfell.is
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is