Ægir - 01.01.2014, Blaðsíða 25
25
yfirförum marga þætti í búnaði
skipanna í þessum heimsókn-
um og síðan skipsskrokkana
sjálfa sem segja má að séu hvað
mikilsverðustu þættirnir. Í stál-
skipunum þykktarmælum við
stálið en ef rafútleiðsla verður í
skipunum getur stálið í botni
tærst á mjög skömmum tíma. Í
skoðununum er farið yfir botn-
loka og annan botnbúnað,
skrúfuöxla og margt fleira. Við
staðfestum að búnaður sé í lagi
eða að eitthvað þurfi að lag-
færa innan tiltekins tíma. Þriðji
valkosturinn, sem er sjaldgæfur
eins og áður segir, er að ástand
sé þannig að skip megi ekki
sigla,“ segir Stefán Hans.
Skoðað í höfnum um allt land
Skipaskoðanir fara þannig fram
að eigendur sjófara hafa sam-
band við Frumherja og panta
skoðanir. Eftir samkomulagi er
þeim síðan fundinn tími og fara
starfsmenn Frumherja um
landið og skoða skip og báta í
höfnum þar sem um er beðið.
„Við röðum því skoðunum
gjarnan saman þannig að ferð-
irnar nýtist vel og förum margar
slíkar á ári. Þetta fyrirkomulag
hefur reynst vel,“ segir Stefán
Hans.
Til skipaskoðana heyra bæði
stál-, tré- og plastskip. Frum-
herji annast einnig skoðanir og
eftirlit á nýjum skipum í smíð-
um hér á landi. Þetta á sérstak-
lega við um framleiðendur
smábáta en nokkur slík fyrirtæki
eru hér á landi.
„Í sumum tilfellum höfum
við með höndum eftirlit fyrir
kaupendur í viðkomandi lönd-
um til að tryggja að bátarnir
uppfylli allar þær kröfur sem
gerðar eru í viðkomandi landi.
Þá koma aðilar frá heimalandi
kaupanda hingað til að gera
lokaúttekt en í sumum tilvikum,
t.d. vegna báta sem fara á Nor-
egsmarkað, fylgjum við ferlinu
allt til loka og framkvæmum
lokaskoðun áður en bátarnir
fara til kaupenda. Okkar verk-
efni eru því fjölþætt og mikil-
vægt að hafa innanborðs starfs-
menn með sérþekkingu og
reynslu,“ segir Stefán Hans en í
dag eru fjórir fastir starfsmenn
á skipaskoðunarsviði Frumherja
og tveimur starfsmönnum er
bætt við á mestu álagstímum.
Stefán Hans Stephensen, sviðsstjóri skipaskoðunarsviðs Frumherja hf.
Nýir eigendur Frumherja
Um síðustu áramót lauk fjárhagslegri endurskipulagningu Frumherja hf.
þegar Íslandsbanki eignaðist 80% í félaginu en samhliða keyptu Orri Vignir
Hlöðversson framkvæmdastjóri og Ásgeir Baldurs stjórnarformaður 20% hlut
í félaginu. Áætlað er að í framhaldinu verði hlutur Íslandsbanka seldur og er
áformað að hefja söluferlið á næstu 12 mánuðum.
Í heild starfa um 110 manns hjá Frumherja hf. og dreifist starfsemin um allt
land. Orri segist hafa mikla trú á framtíðarmöguleikum félagsins. „Áfram eru aðal áherslur okkar á bifreiðaskoðun, skipaskoðun, fast-
eignaskoðun, löggildingar mælitækja, rafmagnsskoðanir og umsýslu með orkusölumælum ásamt fleiri þáttum eins og framkvæmd
ökuprófa fyrir Samgöngustofu. Við höfum samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu unnið að ákveðinni endurskoðun á starf-
seminni og lítum björtum augum til framtíðar, nú þegar áföngum er náð í þessari vinnu,“ segir Orri.