Ægir - 01.01.2014, Blaðsíða 26
26
„Það má segja að ég sé með
þessu að setjast hinum megin
borðsins, að taka þátt í að
framkvæma stefnu sem ég hef
haft að aðalstarfi að móta í
ráðgjafastarfi mínu síðustu ár-
in. Óhætt er að segja að þetta
sé líflegt og í mörg horn að líta
enda er Promens að framleiða
vörur sem þekktar eru út um
allan heim,“ segir Hólmar
Svansson, iðnaðarverkfræðing-
ur MBA, sem nýverið tók við
starfi sölu- og markaðsstjóra
kerjasölu Promens í Evrópu.
Síðustu sjö ár hefur hann starf-
að sem stjórnunarráðgjafi hjá
Capacent en þar áður var hann
m.a. framkvæmdastjóri hjá At-
vinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar.
Hólmar stýrir sölu- og markaðs-
starfi Promenskerja á Evrópu-
markaði en því tilheyra verk-
smiðjur Promens á Dalvík, á
Spáni, og vöruhús í Álasundi í
Noregi. Hólmar segir áfram
unnið að endurskipulagningu á
sölukerfi Promens kerja í
Evrópu.
„Við höfum á undanförnum
misserum ráðið eigin sölumenn
í stað umboðsmannanets sem
áður var alls ráðandi. Með því
móti fáum við betri innsýn í
markaðinn og höfum betri
tækifæri til að koma með sér-
hæfðar lausnir í samstarfi við
viðskiptavini okkar. Mikil
áhersla er lögð á heimsóknir og
þekkingaröflun um markaðinn
Hólmar Svansson í verksmiðjusal Promens á Dalvík. Hann segir erlenda markaði að rétta úr
kútnum. „Þegar komið er að fjárfestingu í nýjum verksmiðjum og búnaði er okkur mikill styrk-
leiki í Sæplast vörumerkinu sem er þekkt fyrir góða hönnun og endingu beggja vegin Atlants-
hafsins bæði í sjávarútvegi og kjötiðnaði. Þessi jákvæða ímynd verður seint fullmetin.“
M
a
rk
a
ðsm
á
l