Ægir - 01.01.2014, Síða 27
27
samhliða beinu sölustarfi. Þetta
á sér einnig stað á vörusýning-
um en við tökum þátt í 12-14
vörusýningum út um Evrópu í
ár. Starfið er því mjög líflegt og
mörg spennandi verkefni að
takast á við og því þurfti ég ekki
að hugsa mig lengi um þegar
þetta tækifæri bauðst,“ segir
Hólmar.
Horft til kjötiðnaðarins
Sjávarútvegur hefur frá upphafi
verið þungamiðjan í kerjafram-
leiðslu Promens. Hólmar segir
að sá markaður verði áfram
mjög mikilvægur fyrirtækinu en
sóknartækifæri séu í kjötfram-
leiðslu og t.d. aukaafurða-
vinnslu í kjöt- og fiskiðnaði.
„Þróun í þessum greinum
hefur áhrif á okkur og til dæmis
eru meiri tækifæri fyrir okkur
fólgin í þeirri þróun að hærra
hlutfall fiskvinnslunnar færist úr
sjófrystingu yfir í landvinnslu.
Eftir sem áður fer stærstur hluti
kerjaframleiðslu verksmiðjunn-
ar hér á Dalvík til viðskiptavina
erlendis,“ segir Hólmar.
Sífelld þróun
Í verksmiðju Promens á Dalvík
hefur verið unnið að ýmsum
þróunarverkefnum síðustu
misseri sem litið hafa dagsins
ljós, m.a. ker með innbyggðum
nema sem móðurstöðvar hafa
samband við og safna upplýs-
ingum um staðsetningu og
hitastig. Hólmar segist verða
var við áhuga fyrirtækjanna á
þessu Mind kerfi því kröfur eru
sífellt að harðna og matvælafyr-
irtækin stöðugt að verða betur í
stakk búin að vinna með slíkar
upplýsingar og sýna fram á
rekjanleika og órofna kælikeðju
frá veiðum í verslun. Slíkar upp-
lýsingar koma til móts við kröf-
ur markaðarins um aukið
geymsluþol villtra sjávarafurða
án aukaefna „Þróunin er ekki
einungis í kerjunum okkar held-
ur ekki síður í framleiðsluað-
ferðum. Í fyrra tók verksmiðja
okkar á Dalvík í notkun raf-
knúinn hverfisteypuofn, þann
fyrsta sinnar tegundar í heimin-
um og er reynslan af honum
góð. Út frá umhverfislegu sjón-
armiði er einnig gott að geta
haldið á lofti að hluti kerjafram-
leiðslunnar sé knúinn endurnýj-
anlegum innlendum orku-
gjafa,“ segir Hólmar
„Síðan erum við stöðugt að
vinna að þróun öryggisþátta,
hvernig kerin eru hönnuð út frá
öryggi í stöflun, viðgerðum,
löndunum og fleira mætti
nefna. Allt skiptir þetta við-
skiptavini okkar miklu máli,“
segir Hólmar.
Afmælisár og aukin bjartsýni á
mörkuðum
Hafið er 30 ára afmælisár fram-
leiðslu Sæplastkerjanna á
Dalvík og því verður fagnað
með viðeigandi hætti. Útflutn-
ingur kerjanna frá Sæplasti
hófst strax á fyrstu árum fram-
leiðslunnar á Dalvík og verk-
smiðjan skipaði sér fljótt á bekk
með öflugustu útflutningsfyrir-
tækjum í iðnaði á Íslandi. Hólm-
ar segir vörumerkið Sæplast
mjög sterkt erlendis og hann
segist skynja aukna bjartsýni í
Evrópu.
„Já, ég finn fyrir aukinni
bjartsýni á meginlandi Evrópu
og áhugi á fjárfestingum er að
aukast. Jafnvel á mörkuðum í
Suður-Evrópu, þvert á það sem
margir kynnu að halda. Ég hef
trú á að þetta ár verði talsvert
betra en þau síðustu og að
botni hins efnahagslega öldu-
dals sé á vissan hátt náð. Þegar
komið er að fjárfestingu í nýjum
verksmiðjum og búnaði er okk-
ur mikill styrkleiki í Sæplast
vörumerkinu sem er þekkt fyrir
góða hönnun og endingu
beggja vegna Atlantshafsins
bæði í sjávarútvegi og kjöt-
iðnaði. Þessi jákvæða ímynd
verður seint fullmetin,“ segir
Hólmar.
Hólmar Svansson, nýr sölu- og markaðsstjóri hjá Promens Dalvík hf.:
Úr ráðgjöf í
markaðsstjórnun
Hólmar Svansson í verksmiðjusal Promens á Dalvík. Hann segir erlenda markaði að rétta úr
kútnum. „Þegar komið er að fjárfestingu í nýjum verksmiðjum og búnaði er okkur mikill styrk-
leiki í Sæplast vörumerkinu sem er þekkt fyrir góða hönnun og endingu beggja vegin Atlants-
hafsins bæði í sjávarútvegi og kjötiðnaði. Þessi jákvæða ímynd verður seint fullmetin.“