Morgunblaðið - 02.01.2015, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 02.01.2015, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 2. J A N Ú A R 2 0 1 5 Stofnað 1913  1. tölublað  103. árgangur  INNBLÁSIN AF ÍSLENSKRI NÁTTÚRU FANTASÍUR FYRIR EIN- LEIKSFLAUTU FYRSTA BARN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2015 MELKORKA ÓLAFSDÓTTIR 41 STÚLKA Í REYKJAVÍK 6SPUNASÖNGSVEIT 38 Í dag bjóðum við ykkur að brjóta upp á hversdaginn á fleiri en einn veg. Við sýnum nýja fleti á fréttum og fjöllum um mál frá öllum hliðum en handan við blaðhornið er auk þess bráðsnjall e-Golf Volkswagen sem heppinn áskrifandi Morgunblaðsins hlýtur að launum. Takk fyrir að brjóta blað! Og nú getur heppinn áskrifandi unnið VW e-Golf 20. febrúar! Mörgum þykir nauðsynlegt að baða sig í sjón- um á fyrsta degi nýs árs. Á bilinu þrjú til fjög- ur hundruð sundgarpar komu á Ylströndina í Nauthólsvík í Reykjavík á nýársdag þegar Sjó- sundfélagið stóð fyrir árlegu búningasundi og mættu margir í skrautlegum búningum. Ótt- arr Hrafnkelsson, deildarstjóri í Nauthólsvík, segir skemmtilegt hversu mikil breidd hafi verið í hópnum en þar var fólk á öllum aldri og einnig slógust erlendir ferðamenn í hópinn. Eftir sundsprettinn hópaðist fólk í heita pott- inn og sótti sér yl fyrir komandi ár. Erlendir ferðamenn létu að sér kveða með Íslendingunum í árlegu búningasundi Sjósundfélagsins Morgunblaðið/Eggert Búningaþema í köldum sjó og heitum potti á fyrsta degi árs Guðni Einarsson Gunnar Dofri Ólafsson Vinna við átaksverkefni við ljósleið- aravæðingu í dreifbýli hefst á þessu ári. Reiknað er með að fyrsta verk- efnið verði við hringtengingu ljósleið- ara á Vestfjörðum og síðan á utan- verðu Snæfellsnesi. Þá á að tengja þéttbýlisstaði eins og Drangsnes, Kópasker og Raufarhöfn. Á fjárlögum eru 300 milljónir til fyrsta áfanga í fyrirhugaðri fjar- skiptaáætlun til fjögurra ára. Starfs- hópur um alþjónustu í fjarskiptum stefnir að því að skila tillögum til inn- anríkisráðherra um miðjan janúar, að sögn Haraldar Benediktssonar, al- þingismanns og formanns starfshóps- ins. Í framhaldi af því verður lokið við framkvæmdaáætlun fjarskiptaáætl- unar. Jón Ríkharð Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Mílu, segir 300 milljón- ir vera dropa í hafið miðað við heild- arkostnað verkefnisins. Hann segir verkefnið stórt og að margir þurfi að koma að því. „Við höfum skotið gróft á að til þess að ná 90-95% tengingu í dreifbýli þurfi um fimm milljarða króna,“ sagði Jón. Þá er miðað við að erfiðustu og afskekktustu staðirnir verði ekki ljós- leiðaratengdir. Þegar hafa 90% heim- ila í þéttbýli aðgang að háhraðateng- ingu samkvæmt skilgreiningu Póst- og fjarskiptastofnunar. Ljósleiðari í dreifbýlið  Hringtenging ljósleiðara á Vestfjörðum fyrst á dagskrá  Heildarkostnaður ljósleiðaravæðingar er um 5 milljarðar MÁtak í ljósleiðaravæðingu »7  Á árinu 2014 voru 1.269 hross flutt frá landinu til 20 landa. Er þetta svipaður fjöldi og und- anfarin ár. Hrossin fara flest til Evrópu, einkum Þýska- lands og Norður- landanna. Þá voru fjögur íslensk hross seld til Ástralíu. Hrossin sem flutt eru út eru fyl- fullar merar, dýrir keppnishestar, stóðhestar, reiðhestar og allt þar á milli. »12 Hross seld til 20 landa í fyrra 1.269 hestar voru seldir til útlanda.  Gert er ráð fyrir því, í drögum að nýrri þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda, að vægi móðurmáls- kennslu verði aukið hjá nemendum í leik-, grunn-, og framhalds- skólum. Einnig er fjallað um að efla gæði íslenskukennslu fyrir innflytj- endur. Eygló Harðardóttir velferð- arráðherra segir að góð kunnátta í móðurmáli sé mikilvæg þegar kem- ur að því að læra önnur tungumál, þar á meðal íslensku. Lagt sé til að börn innflytjenda fái stuðning við að ná góðum tökum á sínu móð- urmáli. »12 Vægi móðurmáls innflytjenda aukið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.