Morgunblaðið - 02.01.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.01.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2015 Think Blue. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Framlög til félagsmála hafa aldrei verið jafn há og 2015. Þetta kom fram í áramótaávarpi Sig- mundar Davíðs Gunnlaugs- sonar forsætisráðherra. Eygló Harðardóttir félags- málaráðherra sagði að aukin framlög til félagsmála skýrðust fyrst og fremst af hækkun bóta vegna fé- lagslegrar aðstoðar um 13% frá 2013 þar til nú og hækk- un framlaga til lífeyris- trygginga um 21% á sama tíma. Hún sagði að framlög til bóta, samkvæmt lögum um félagslega að- stoð, yrðu samkvæmt fjárlagafrumvarpi tæp- lega 13,8 milljarðar og til lífeyristrygginga tæp- ir 74,9 milljarðar. „Langmesta aukningin er til lífeyristrygg- inga, tæpir 13 milljarðar á tveimur árum,“ sagði Eygló. Hún sagði að mikil áhersla hefði verið lögð á að afnema skerðingar sem gerðar voru á örorku- og lífeyrisbótum í júní 2009 og það hefði verið gert að fullu. „Það endurspeglast í þessum auknu framlögum. Eins hefur þeim fjölgað sem þiggja greiðslur frá Tryggingastofnun.“ Bæði forseti Íslands og forsætisráðherra nefndu fátæktina í áramótaávarpi sínu. Á að styðja þá meira sem standa höllum fæti? „Þegar við berum okkur saman við aðrar þjóð- ir þá er fátækt á Íslandi með því minnsta sem þekkist. Þetta sést í Félagsvísum sem nýlega voru kynntir,“ sagði Eygló. Hún sagði skilaboðin vera skýr, bæði frá forseta og forsætisráðherra, að við gætum ekki sætt okkur við fátækt. Eygló sagði að þegar hún skipaði nýja Vel- ferðarvakt hefði vaktinni verið falið sérstaklega að huga að þeim sem byggju við allra mesta fá- tækt. „Ég bíð eftir tillögum frá Velferðarvakt- inni um aðgerðir,“ sagði Eygló. Hún skipaði einnig verkefnisstjórn um fjöl- skyldustefnu og verkefnisstjórnin hefur hugað sérstaklega að þeim sem standa höllustum fæti. „Það kemur skýrt fram í Félagsvísunum að það eru ekki síst einstæðir foreldrar. Þar er hús- næðiskostnaður mjög íþyngjandi og hefur verið horft til tillagna varðandi húsnæðismálin. Menn telja að það muni skipta miklu að auka stuðning við fólk á leigumarkaði. Það eru fyrst og fremst leigjendur með eina fyrirvinnu sem búa við mestu fátæktina. Okkur er ekki síst umhugað um börn sem búa við fátækt.“ Aldrei jafn há framlög til félagsmála  Bætur vegna félagslegrar aðstoðar hafa hækkað um 13% frá 2013 og framlög til lífeyristrygginga um 21% á sama tíma  Velferðarvaktin skoðar málefni fátækra  Mikilvægt að auka stuðning við leigjendur Eygló Harðardóttir Ráðamenn um fátækt » „Nú þegar vöxtur er í flestum grein- um, glíman við hrunið að mestu að baki, ættum við að sameinast um það sjálf- sagða markmið að enginn Íslendingur þurfi að búa við fátækt.“ Ólafur Ragnar Grímsson » „Þannig segir sú staðreynd að á Ís- landi sé lægst hlutfall fátæktar í Evrópu okkur ekki að við eigum að sætta okkur við það hlutfall, hún segir okkur að fá- tækt eigi ekki að þurfa að vera til á Ís- landi.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson MÁramótaávörp »14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.