Morgunblaðið - 02.01.2015, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2015
BRJÓTTU
BLAÐ
20. febrúar fær heppinn
áskrifandi Morgunblaðsins
Volkswagen e-Golf.
B
rjóttu
blaðið
þannig
að
örvarnar
m
ynditígul
Ingileif Friðriksdóttir
Davíð Már Stefánsson
Fyrsta barn hvers árs fær ætíð
mikla athygli en titilhafinn 2015
kom í heiminn á Landspítalanum
klukkan 3.54 á nýársnótt.
„Við erum alveg himinlifandi og
yfir okkur ástfangin af þessu fal-
lega kríli,“ segir Gróa Sif Jóels-
dóttir, sem er 26 ára og starfar í
ferðaþjónustu. Hún og unnusti
hennar, Sigurmon Hartmann Sig-
urðsson, 25 ára tónlistarmaður,
eignuðust sitt fyrsta barn þessa
nóttina en stúlkubarn þeirra vó
rúm þrjú kíló og var 49 sentímetr-
ar að lengd.
Heilbrigðið skiptir mestu máli
Gert var ráð fyrir því að barnið
kæmi í heiminn 6. janúar en sök-
um alvarlegrar meðgöngueitr-
unar var Gróa lögð inn 30. desem-
ber síðastliðinn. Hún var síðan
sett í gang klukkan 18 á gaml-
ársdag.
Foreldrarnir bjuggust ekki við
því að komast að fyrr en í gær
sökum þess hversu mikið var að
gera á gamlársdag en plássið losn-
aði og heilsast móður og barni vel.
Gróa segir jafnframt að fæðingin
sjálf hafi gengið rosalega hratt
fyrir sig. Þess má einnig geta að
Gróa Sif og Sigurmon vissu ekki
um hvort kynið væri að ræða fyrr
en stúlkubarnið kom í heiminn.
„Það sem skiptir mestu máli er
að fá heilbrigðan einstakling í
heiminn og hún er algjört yndi,“
segir Gróa að lokum, alsæl með
frumburðinn.
Morgunblaðið/Eggert
Barnalán Gróa Sif og Sigurmon Hartmann eignuðust stúlkubarn er vó rúm þrjú kíló og var 49 sentímetrar að lengd.
Eru alsæl með frumburðinn
Fyrsta barn
ársins kom í heim-
inn klukkan 3.54
Færri börn komu í heiminn árið
2014 en árið á undan, sem nemur
um 3%, samkvæmt upplýsingum frá
Landspítalanum. Tölurnar ná til 29.
desember 2014 og vantar því tvo
daga til að ná heildarfjölda fæðinga
ársins 2014. Árið 2013 fæddust
3.229 börn en fram til 29. desember
2014 höfðu fæðst 3.133 börn.
Gera má ráð fyrir að um 1.000
fæðingar séu annars staðar en á
Landspítalanum en um 73-75%
barnsfæðinga eru þar.
Færri stúlkur en drengir komu í
heiminn, sem er öfugt við síðustu
ár. Þá voru fjölburafæðingar fleiri
árið 2014 en árin á undan. Engin
þríburafæðing var á nýliðnu ári.
Fæðingar á árinu*
Heimild: Landspítali Íslands
2014 2013 2014
* Tölur ná til 29/12 2014
Fæðingar, þar af
keisaraskurðir
tvíburafæðingar
þríburafæðingar
fjöldi stúlkna
fjöldi drengja
Hlutfall fjölburafæðinga
Hlutfall keisaraskurða
Hlutfall fæðinga á LSH af
heildarfjölda fæðinga
3.133
533
65
0
1.551
1.647
2,1%
17,0%
73% 73%
3.229
565
60
3
1.668
1.627
2,0%
17,5%
-3%
-6%
8%
-100%
-7%
1%
6%
-3%
Færri börn fæddust á nýliðnu ári
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þetta er bara samningur sem rann
út og við höfum fundið annað stað,“
segir Árný Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, en frá og með 1. jan-
úar 2015 hafa lausagönguhundar í
Reykjavík ekki lengur athvarf á
Hundahótelinu Leirum líkt og síð-
astliðin átján ár.
„Samningurinn var orðinn nokk-
uð gamall og gerði ráð fyrir miklu
fleiri lausagönguhundum en þeim
hefur sem betur fer fækkað að
undanförnu. Við vorum þar af leið-
andi að leigja mjög mikið af búrum
sem við höfum ekki þörf fyrir leng-
ur. Við komumst ekki að sam-
komulagi við Hundahótelið Leirum
um það hvernig framhaldið ætti að
verða og það er bara eins og geng-
ur, það eru engin illindi,“ segir hún.
Nokkrir staðir koma til greina
„Hundaeftirlitið heyrir undir
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Samkvæmt samþykktinni um
hundahald þá er málum svo háttað
að ef hundar sleppa frá eigendum
sínum, þá á að sjálfsögðu að reyna
að finna eigendurna. Stundum
tekst það þó ekki. Þá þarf borgin
sem slík, og Heilbrigðiseftirlitið í
þessu tilviki, að taka þá í sínar
vörslur og koma þeim fyrir á góð-
um stað,“ segir hún. Árný segir
nokkra staði koma til greina þar
sem aðbúnaður dýra er vel tryggð-
ur.
Lausagöngu-
hundar á
nýjan stað
Átján ára samn-
ingur runninn út
„Það var eins og kjarnorkusprengju
hefði verið varpað hingað. Fólk lá í
götunni og börn grétu og hlupu í all-
ar áttir. Þetta var mjög dramatískt
augnablik og mikið sjokk,“ segir
Guðmundur Aðalsteinsson, íbúi á
Bergstaðastræti 29 í Reykjavík þar
sem mikil sprenging varð skömmu
áður en nýtt ár gekk í garð.
Um var að ræða gallaða skottertu
í eigu fjölskyldu Guðmundar. „Þetta
var bara venjuleg kaka og fyrstu
fimm skotin fóru upp eðlilega en svo
sprakk restin bara í einum hvelli.
Þetta voru örugglega hundrað skot
sem voru eftir og 38 kíló af púðri sem
fóru þarna í einum rykk,“ segir Guð-
mundur en sauma þurfti þrjú spor í
andlit hans þar sem hann fékk skurð
á andliti við sprenginguna. Sex rúður
í húsi Guðmundar, tvær í húsinu á
móti og ein í húsinu við hliðina brotn-
uðu.
Fjölskylda Guðmundar keypti
skottertuna af Leikni. „Þetta hefur
verið eitthvað mjög gallað og það
þarf að skoða öryggið í þessu. Við er-
um búin að tala við Leikni en höfum
svo sem ekkert heyrt meira í þeim
eða í tryggingafélaginu,“ segir hann
og veltir því upp hvort eðlilegt sé að
leyfa svo stórar tertur í íbúðarhverf-
um.
Þrjú önnur flugeldaslys
Þrjú önnur flugeldaslys urðu á
höfuðborgarsvæðinu. Þriggja ára
stúlka í Vesturbæ fékk flugeld í and-
litið, karlmaður hlaut áverka í andliti
þegar terta sprakk við Vallartröð í
Kópavogi og flugeldur fór í andlit
barns í Austurbænum á nýársdag.
Að öðru leyti var tíðindalítið á vett-
vangi lögreglu um áramótin.
„Börn grétu og hlupu“
Sprenging á Bergstaðastræti Þrjú önnur flugeldaslys
Morgunblaðið/Eggert
Sprenging Rúður brotnuðu í húsum
þegar gölluð skotterta sprakk.
Flugeldasala björgunarsveita fyrir
áramótin var svipuð eða ívið meiri
en salan á undanförnum árum.
Seldust flugeldar m.a. upp hjá
björgunarsveitinni Einingu á Breið-
dalsvík.
„Við þurftum að fara tvisvar og
ná í meira hjá sveitunum hér í
kring,“ segir Indriði Margeirsson
formaður.
Fyrirtækið Reykjavik Excursions
flutti um 900 erlenda ferðamenn að
brennu í Smárahverfi í Kópavogi
og á Skólavörðuholt fyrir miðnætti.
Voru þeir hæstánægðir að sögn
rekstrarstjóra fyrirtækisins.
Gamla árið kvatt með stæl
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gamlárskvöld Rútufyrirtækið Reykjavik Excursions fór með 900 ferða-
menn á brennu í Smárahverfi eða að Hallgrímskirkju á miðnætti.