Morgunblaðið - 02.01.2015, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2015
Hefðbundin orðuveiting tilæðstu embættismanna virk-
ar eins og nýir ráðherrabílar á
sumt fólk. Sami háttur er þó hafð-
ur á um víða veröld. Vandvirkum
bloggara þótti ekki tilefni til að
gera mikið úr, á hvorugan veg, og
sjálfsögð kurteisi
að þiggja þess hátt-
ar virðingarvott,
sem engan skaðar.
Bloggarinn bentiá að fundið
hefði verið að hinni
tilteknu orðuveit-
ingu „í nýlegum leiðara í Frétta-
blaðinu.
Hægt er að heiðra fólk með
ýmsum hætti. Þegar ég las Frétta-
blaðsleiðarann rifjaðist upp fyrir
mér að fyrir sjö árum valdi fylgi-
rit Fréttablaðsins, Markaðurinn,
viðskiptamann ársins.
Fyrir valinu varð Jón ÁsgeirJóhannesson. Fréttin um val
Jóns Ásgeirs var á forsíðu
Fréttablaðsins. Forsíða fylgirits-
ins skartaði risastórri mynd af
viðskiptamanni ársins og inni í
því var margra síðna viðtal við
hann en svo skemmtilega vildi til,
að Jón þessi Ásgeir átti bæði
þessi blöð og á að því ég best veit
enn.
Margt hnyttilegt kemur fram íviðtalinu. Meðal annars spyr
blaðið eiganda sinn, sem það hef-
ur nýlega útnefnt viðskiptamann
ársins, hvort það væri satt, að
hann ætti hundrað milljarða.
Og viðskiptamaður ársins 2007
svarar blaðinu sínu:
„Veistu, ég er löngu hættur að
telja.“
Þess má einnig geta að þetta
sama ár lét Markaðurinn, fylgirit
Fréttablaðsins, ekki nægja að
velja viðskiptamann ársins heldur
útnefndi það líka bestu viðskipti
ársins. Fyrir valinu urðu Icesave-
innlánsreikningar Landsbank-
ans …“.
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Hver telur
STAKSTEINAR
Brynjólfur Þorkelsson
Framkvæmdastjóri
binni@remax.is
Sylvía Walthers
Löggiltur fasteignasali
sylvia@remax.is
Vilt þú vita
hvers virði
eignin þín
er í dag?
Pantaðu frítt
söluverðmat án
skuldbindinga!
Skeifunni 17
„...virkilega vönduð, lipur og góð
þjónusta. Allt sem þau sögðu
stóðst. Auðvelt að mæla
með Remax Alpha!“
Áslaug og Benni
HRINGDU NÚNA
820 8080
Veður víða um heim 1.1., kl. 18.00
Reykjavík 0 skýjað
Bolungarvík -1 snjókoma
Akureyri -1 snjókoma
Nuuk -7 alskýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 2 alskýjað
Kaupmannahöfn 5 þoka
Stokkhólmur 7 alskýjað
Helsinki 2 alskýjað
Lúxemborg -2 þoka
Brussel 3 heiðskírt
Dublin 12 skúrir
Glasgow 12 skúrir
London 10 skýjað
París 2 heiðskírt
Amsterdam 3 heiðskírt
Hamborg 3 heiðskírt
Berlín 3 heiðskírt
Vín 2 skýjað
Moskva 0 þoka
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 11 heiðskírt
Barcelona 11 heiðskírt
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 7 heiðskírt
Aþena 3 skýjað
Winnipeg -18 léttskýjað
Montreal -3 snjóél
New York 0 heiðskírt
Chicago -5 skýjað
Orlando 18 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:19 15:46
ÍSAFJÖRÐUR 12:01 15:13
SIGLUFJÖRÐUR 11:45 14:55
DJÚPIVOGUR 10:57 15:07
www.volkswagen.is
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Fundað verður hjá ríkissáttasemj-
ara í dag vegna kjaradeilu Lækna-
félags Íslands og Skurðlæknafélags
Íslands við ríkið. Þorbjörn Jónsson,
formaður Læknafélagsins, segir enn
töluvert bil á milli samningsaðila.
„Við höfum verið að varpa hug-
myndum á milli okkar og það skýrist
vonandi betur eftir fundinn hjá rík-
issáttasemjara hvar við stöndum.“
Formaður Skurðlæknafélagsins,
Helgi Kjartan Sigurðsson, er heldur
bjartsýnni en tekur þó í sama streng
og Þorbjörn og segir erfitt að tjá sig
um stöðuna fyrr en eftir fundinn í
dag. Hann segir þó síðasta fund hafa
verið góðan.
„Ég vona að kjaradeilan leysist
fljótlega en það veltur dálítið á
næsta fundi hvort lausn er í sjón-
máli.“
Skurðlæknar funda hjá Ríkissátt-
semjara klukkan 15 í dag.
Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra sagði eftir ríkisstjórn-
arfund á þriðjudag að tilboð ríkisins
fæli í sér verulegar kjarabætur en
benti einnig á að samninganefnd
ríkisins gæti ekki teygt sig nær
kröfum lækna og vafasamt væri
hvort ríkið gæti staðið við það sem
nú þegar væri búið að leggja á borð-
ið.
Fundað í læknadeilunni í dag
Formaður Læknafélags Íslands segir enn langt á milli
aðila Síðasti fundur með skurðlæknum var góður
Ráðist var í um-
fangsmiklar end-
urbætur á örygg-
isþáttum
Hvalfjarðargang-
anna árið 2007
sem stóð til ársins
2013 í því skyni að
uppfylla staðla um
öryggismál í veg-
göngum frá Evr-
ópusambandinu.
Vegfarendur eru nú tvöfalt öruggari
að aka um Hvalfjarðargöngin en áður
en ráðist var í framkvæmdirnar.
Þetta er niðurstaða úttektar verk-
fræði- og ráðgjafarfyrirtækisins
Mannvits fyrir Spöl, sem á og rekur
Hvalfjarðargöng. Jafnframt kemur
þar fram að tölfræðilega sé nú fimm-
tán sinnum öruggara að aka um
göngin en fyrir Hvalfjörð.
Framkvæmdir Spalar í umferð-
aröryggismálum á sex ára tímabili
fólust meðal annars í því að auka lýs-
ingu, setja upp sívöktunarkerfi og yf-
ir 80 myndavélar. Þá var komið fyrir
nýjum neyðarljósum í lofti, flóttaljós
sett á veggi ef rafmagn fer af göng-
unum, slökkvitækjum fjölgað o.fl. í
þeim dúr.
Hvalfjarðar-
göng tvöfalt
öruggari
Uppfylla veg-
gangastaðla ESB
Hvalfjarðargöngin.