Morgunblaðið - 02.01.2015, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 02.01.2015, Qupperneq 19
Einræðisherra Norður Kóreu, Kim Jong-un, sagði í áramóta- ávarpi sínu að hann væri, að vissum skil- yrðum upp- fylltum, tilbúinn til að ræða við forseta Suður- Kóreu. Ryoo Kihl-jae, sem fer með sam- starfsmál við Norður-Kóreu í rík- isstjórn Suður-Kóreu, sagði eftir að stjórnvöld í Suður-Kóreu væru tilbúin til að halda leiðtogafund í Seúl, Pyongyang eða annars staðar á Kóreuskaganum. Kim Jong-un vill bætt samskipti á Kóreuskaga Kim Jong-un KÓREA Maður vopnaður riffli ruddist inn í nýársfagnað í smábænum St. Catherine í Frakklandi og skaut þrjá gesti til bana. Meðal þeirra myrtu var fyrverandi kær- asta mannsins en lögreglan á svæðinu segir að mað- urinn hafi talið sig eiga eitthvað sökótt við þá sem voru í samkvæm- inu, sem hann var sjálfur í. Hann hafi þá farið og sótt byssu og skotið á fólkið. Lögreglan umkringdi manninn á bílastæði við sjúkrahús stuttu síðar en hann framdi sjálfs- víg áður en tókst að handsama hann. Þrír myrtir í nýárs- fagnaði í Frakklandi Morð á nýársnótt. FRAKKLAND FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2015 Hjá Parka færðu flottar flísar í hæsta gæða- flokki frá þekktum ítölskum framleiðendum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Dalvegi 10-14 • Kópavogi Full búð af flottum flísum Íslendingar eru ekki þeir einu sem skjóta upp flugeldum um áramót. Í München í Þýskalandi var skotið upp flugeldum af öllum stærðum og gerðum til að kveðja liðið ár og fagna komu þess nýja. AFP Flugeldar í München Þjóðverjar kveðja gamla árið og fagna því nýja Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, lá ekki á skoðunum sín- um í áramóta- ávarpi þegar hún gagnrýndi harðlega þjóð- ernishreyfingar sem mótmælt hafa stefnu þýskra stjórnvalda í innflytjenda- málum. Þá varaði Merkel fólk við að taka þátt í fjöldafundum öfga- samtaka sem byggjast á for- dómum og hatri í garð þeirra sem eru af öðrum litarhætti eða ann- arrar trúar. Merkel sagði það skyldu Þjóðverja að taka á móti fólki frá stríðshrjáðum löndum. Kanslarinn varar við fordómum og hatri Angela Merkel. ÞÝSKALAND Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Lögreglan í Uppsölum í Svíþjóð leit- ar nú árásarmanns sem grunaður er um að standa á bak við þriðju árásina á mosku í Svíþjóð í vikunni. Talsmað- ur lögreglunnar, Torsten Hemlin, sagði á blaðamannafundi að vegfar- endur hefðu orðið vitni að því þegar maður kastaði brennandi hlut að moskunni. Þá hefði maðurinn skrifað niðrandi orð á húsið. Enginn var inni í byggingunni þegar árásin var gerð. Alls hafa þrettán árásir verið gerðar á moskur í Svíþjóð á árinu en í bænum Eslövs hefur ítrekað verið gerð atlaga að mosku bæjarins. Rúð- ur í kjallara hennar hafa verið brotn- ar, skilti eyðilögð og eldur borinn að henni. Þá slösuðust fimm manns þegar eldsprengju var kastað í gegn- um glugga mosku í Eskilstuna á jóla- dag. Töluvert hefur borið á músl- imaandúð í Svíþjóð upp á síðkastið en Svíþjóðardemókratarnir, sem kenna sig við þjóðernisjafnaðar- stefnu, stórjuku fylgi sitt í þingkosn- ingunum í september. Talsmenn múslima í Svíþjóð segja vanþekk- ingu og ótta ráða för öfgahópa og árásarmanna. Enn ein árásin á mosku í Svíþjóð Andúð Segja árásir byggjast á ótta.  Sænska lögreglan leitar manns sem kastaði eldsprengju að mosku í Uppsölum Þrír karlmenn létust í flug- eldaslysum í Danmörku á gamlárs- kvöld og liggja tveir til á sjúkrahúsi viðbótar alvarlega slasaðir. Danska lögreglan telur að ólög- legir flugeldar og skottertur hafi valdið slysunum. Slysin tvö áttu sér stað í Skjellerup og Assens á Norð- ur-Jótlandi. Í Assens lést 37 ára maður og tveir menn um þrítugt létust í Skjellerup. Danska lög- reglan rannsakar málin. Þrír dóu í flugelda- slysum í Danmörku DANMÖRK AFP Áramót Slys vegna ólöglegra flugelda. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Hátt í fimmtíu einstaklingar slösuð- ust og þrjátíu og sex létu lífið þegar þeir tróðust undir á nýársfagnaði í Shanghaí í Kína á nýársnótt.. Flestir hinna látnu eru ungir námsmenn, þar af tuttugu og fimm konur. Slysið varð á Chenyi-torgi, sem er í mið- borg Shanghaí, en þar höfðu komið saman mörg þúsund manns. Talið er að troðningurinn hafi haf- ist þegar fölsuðum peningaseðlum var kastað fram af svölum nætur- klúbbs í borginni. Xi Jinping, forseti Kína, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann myndi sjá til þess að ítarleg rannsókn færi fram á því sem gerðist á torginu en yfirvöld í borginni hafa verið gagn- rýnd fyrir að hafa of fáa lögreglu- menn við eftirlit og mannfjölda- stjórnun á svæðinu. BBC hefur eftir Rebekku Thom- as, ferðamanni frá Manchester, að ástandið hafi verið skelfilegt. Hún sá fjölda líka á torginu og fólk í örvænt- ingu að reyna að bjarga ástvinum sínum. Thomas gagnrýnir viðbrögð lögreglunnar sem hafi lítið gert til að aðstoða þá sem voru í lífshættu. Ekki er vitað með vissu hversu margir komu saman á torginu en kínversk stjórnvöld segja árleg há- tíðarhöld á torginu fara vaxandi og að um 300 þúsund manns hafi sótt torgið í fyrra. AFP Troðningur Fjöldi einstaklinga liggur slasaður og 36 manns eru látnir eftir mikinn troðning á Chenyi-torgi, sem er í miðborg Shanghaí. Tugir tróðust undir í Kína  Mikill mannfjöldi á nýársfagnaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.