Morgunblaðið - 20.01.2015, Page 13

Morgunblaðið - 20.01.2015, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2015 CRÉATIVE TECHNOLOGIE Frábær vinnuaðstaða með góðu aðgengi fyrir farm og farþega. 180° opnun á afturhurðum, rennihurð, þægileg hleðsluhæð, há sætisstaða og fjöldi geymsluhólfa. Öflug en sparneytin 90 hestafla dísilvél ásamt spólvörn og ESP stöðugleikakerfi gera Berlingo Van að öruggum og hagkvæmum kosti fyrir þinn rekstur. KOMDU OG PRÓFAÐU CITROËN BERLINGO VAN citroen.is • 3,3 M - 4,1 M HLEÐSLURÝMI • 850 KG BURÐARGETA • 3JA MANNA • SPARNEYTINN •3 3 Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. BETRI REKSTUR OG AUKIN ÞÆGINDI CITROËN BERLINGO VAN 1,6 HDi 90 hö dísil VERÐ FRÁ: 2.379.032 KR. ÁN VSK VERÐ FRÁ: 2.950.000 KR. MEÐ VSK Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Magnús Geir Þórðarson útvarps- stjóri segir að frá september 2013 til ársloka 2014 hafi starfsmönnum fækkað um 61. Fækkunin telur 36 stöðugildi. Þá hafi verktökum fækkað um 41 á tímabilinu. Páll Magnússon, fyrrverandi út- varpsstjóri, sagði í þættinum Eyjunni á Stöð 2 í fyrradag að fækka hefði þurft um 60 ársstörf hjá Ríkisútvarp- inu til að bregðast við niðurskurði á fjárframlögum ríkisins til fyrirtækis- ins. Ef það hefði verið gert væri rekstur RÚV nú kominn í jafnvægi. Páll telur að ekki hafi verið fækkað um nema þriðjung þess fjölda og því sé rekstur fyrirtækisins í uppnámi. „Þáverandi útvarpsstjóri og fram- kvæmdastjórn unnu og lögðu upp áætlun um niðurskurðaraðgerðir þar sem miðað var við að fækkað yrði um 60 starfsmenn. Stjórn veitti þeim á sínum tíma fullt umboð til að ljúka þeim aðgerðum í samræmi við þeirra tillögu og það umboð var aldrei dreg- ið til baka. Í lok nóvember 2013 hrintu þeir áætlun sinni í fram- kvæmd. Viku eftir aðgerðirnar stað- festi þáverandi útvarpsstjóri við stjórn að búið væri að ljúka aðgerð- um gagnvart 49 af þeim 60 starfs- mönnum sem áætlanir þeirra tóku til. Þessar aðgerðir miðuðu við uppsagn- ir 60 starfsmanna – en stöðugildin voru ekki svo mörg, enda voru marg- ir þeirra sem sagt var upp í hluta- störfum. Eftir að ný framkvæmdastjórn tók við félaginu síðastliðið vor var haldið áfram að hagræða í starfsemi félags- ins, fækka þurfti starfsfólki enn frek- ar en auk þess lögðum við áherslu á að fækka verktökum hjá félaginu og draga úr ýmsum öðrum kostnaði, sér í lagi við umgjörð, rekstur og tækni því við vildum verja dagskrána eins og kostur væri,“ sagði Magnús Geir í samtali við Morgunblaðið í gær. Magnús Geir segir að í dag séu starfsmenn 61 færri en fyrir rúmu ári en stöðugildum hefur fækkað um 36 og verktökum um 41 að auki. „Stjórn og ný framkvæmdastjórn Ríkis- útvarpsins hefur kappkostað að draga upp heildstæða mynd af stöðu félagsins og síðastliðið vor var m.a. staðfest í sjálfstæðri úttekt PwC að félagið er yfirskuldsett. Stjórn fé- lagsins hefur unnið að lausn vandans, m.a. með undirbúningi að sölu eigna til að létta af skuldum. Vinna með Reykjavíkurborg við skipulag lóðar félagsins við Efstaleiti til að hægt verði að selja lóðina er á lokametr- unum, sem og vinna við útleigu á efri hæðum hússins. Það sem við höfum bent á er að ef hagræða á frekar í starfsemi Ríkisútvarpsins er óhjá- kvæmilegt annað en að endurmeta hlutverk Ríkisútvarpsins og skerða þjónustuna með því að velja burt ákveðna þætti í starfseminni. Frá því ný framkvæmdastjórn tók við í félag- inu hefur rekstur verið í samræmi við áætlun og hefur barátta okkar gengið út á að tryggja að svo verði áfram. Nú er unnið að því að draga upp heild- stæða mynd af stöðu mála í dag, eftir samþykkt fjárlagafrumvarps, og móta sýn fyrir framtíðina í samráði við stjórnvöld.“ Óljóst hver árangurinn er Aðspurður hvort ekki vantaði enn mikið upp á að sú 500 milljóna króna hagræðing sem að var stefnt með nóvemberáætluninni 2013 hefði náðst sagði Magnús: „Þáverandi stjórnendur fengu um- boð til að ganga til aðgerða sam- kvæmt eigin áætlun sem þeir og gerðu í nóvember 2013. Þeirra mark- mið var að þær aðgerðir skiluðu hag- ræðingu upp á 500 milljónir króna. Ljóst má vera að aðgerðirnar skiluðu ekki því sem að var stefnt en að margra mati var undirbúningi ábóta- vant og þær illa ígrundaðar. Hins vegar var hagrætt umtalsvert til við- bótar eftir að ný framkvæmdastjórn tók til starfa síðastliðið vor og enn er unnið að því að leiða Ríkisútvarpið inn í bjartari tíma.“ Ríkisútvarpið sagði upp 49 starfs- mönnum í nóvemberlok 2013 og þremur vikum síðar hafði Páll látið af störfum, en sama stjórn og fram- kvæmdastjórn Ríkisútvarpsins sat áfram þar til í mars í fyrra. Í máli Páls í þættinum kom fram að samkvæmt því hagræðingarplani sem hann hóf að hrinda í framkvæmd með uppsögnunum hefði staðið til að fækka á næstu tólf mánuðum um aðra 20 starfsmenn, sem hann telur að ekki hafi gengið eftir. Þannig telur hann að ná hefði mátt þeirri 500 millj- óna króna hagræðingu sem að var stefnt strax í desemberbyrjun 2013. Telur fækkunina um 20 Orðrétt sagði Páll Magnússon m.a. í þættinum: „Einfaldast væri að spyrja núverandi stjórnendur Ríkis- útvarpsins: Er 60 ársstörfum færra núna hjá Ríkisútvarpinu heldur en var fyrir 12 mánuðum? Ef svo er þá er reksturinn kominn í jafnvægi og farinn að skila hagnaði. Ég leyfi mér að efast um það, ætli það sé ekki nær 20 ársverkum.“ Ársstörfum hjá RÚV fækkað um 36 Morgunblaðið/Ómar Ríkisútvarpið Núverandi og fyrrverandi útvarpsstjóra greinir á um hver fækkun starfsmanna Ríkisútvarpsins sl. 12 mánuði hefur verið. Magnús Geir Þórðarson Páll Magnússon  Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri segir að ávallt hafi verið talað um að fækka þyrfti um 60 starfs- menn hjá Ríkisútvarpinu til þess að ná fram þeirri hagræðingu sem að var stefnt, ekki stöðugildi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.