Morgunblaðið - 20.01.2015, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2015
Gunnar Dofri Ólafsson
Hólmfríður Gísladóttir
Egill Sigurðsson, oddviti Ásahrepps,
segir það óumdeilanlegt að Björgvin
G. Sigurðsson, fyrrverandi sveitar-
stjóri Ásahrepps, hafi dregið sér fé.
Björgvin G. sendi í gær frá sér til-
kynningu þar sem hann hafnar ásök-
unum sveitarstjórnar, en Egill segir
klárt að hann hafi ráðstafað al-
mannafé í eigin þágu.
Að sögn Egils er um að ræða alls
15 færslur. „Þar með talin þessi
dæmalausa færsla 20. nóvember yfir
á eigin reikning,“ segir Egill og vísar
í máli sínu til fyrirframgreiðslu launa
upp á 250.000 krónur, sem Björgvin
G. gengst við í yfirlýsingu frá í gær.
Sveitarsjóður Ásahrepps
er ekki banki starfsmanna
Að sögn Egils bjó Björgvin G.
sjálfur til lykilinn fyrirframgreiðsla
launa. „Sá lykill var ekki til hjá sveit-
arfélaginu en hann færir þetta undir
fyrirframgreiðslu launa. 20. nóvem-
ber færir hann þetta yfir á einka-
reikning, en sú greiðsla fór ekki í
gegnum gjaldkera sveitarfélagsins,
sem hefur borgað reikningana, held-
ur gerði hann þetta sjálfur og sá al-
veg um það og fékk enga heimild til
að gera það,“ segir Egill og bætir við
að sveitarsjóður Ásahrepps sé ekki
banki fyrir starfsmenn hreppsins.
Mistök að biðja ekki um leyfi
Í yfirlýsingu Björgvins G. til fjöl-
miðla segir hann að „[v]ið gerð sam-
komulags um starfslok mín á föstu-
daginn kom fram að skuld mín við
hreppinn nam einum mánaðarlaun-
um, að stærstum hluta vegna einnar
fyrirframgreiðslu upp á 250.000
krónur frá í nóvember í fyrra. Sú
greiðsla var rækilega merkt fyrir-
framgreidd laun til Björgvins og
fjarri lagi að tilraun hafi verið gerð
til að leyna henni með neinum
hætti“.
Þá segir Björgvin G. það hafa ver-
ið „mistök og rangt af [sér] að biðja
ekki um heimild frá oddvita vegna
fyrirframgreiddra launa og ákvarð-
ana um öll útgjöld. Því biðst ég af-
sökunar á, enda fór ég þar ekki að
reglum um útgjöld. Aldrei stóð ann-
að til en að þau útgjöld yrðu gerð
upp sem laun til mín, líkt og merking
á fyrirfram launagreiðslunni ber
með sér“, sagði hann í tilkynningu.
Í sömu yfirlýsingu nefnir Björgvin
G. einnig færslu sem varðaði kaup á
myndavél, ætlaða „til nota fyrir
heimasíðu og fleira“. Um þetta segir
Egill: „Það hefði þá verið betra að
þessi myndavél hefði fundist, en hún
hefur aldrei komið inn á borð sveit-
arfélagsins. Ég er með fylgiskjöl yfir
þetta allt saman og öll þessi gögn.
Hann er þarna að reyna að gera lítið
úr því að hafa misfarið með fé. Þetta
er óumdeilanlega fjárdráttur. Hann
er að ráðstafa þarna almannafé í eig-
in þágu. Það er bara fjárdráttur.“
Kæra til lögreglu ekki útilokuð
Egill segir að auk þess að hafa fyr-
irframgreitt sér laun hafi Björgvin
G. notað kort sveitarfélagsins í 14
skipti, m.a. til að kaupa mat milli jóla
og nýárs og til að greiða ferð út að
borða. Að sögn Egils verður byrjað á
því að skuldajafna fjármununum
sem um ræðir við það sem Björgvin
G. á inni hjá sveitarfélaginu, það eru
hálfsmánaðarlaun og uppsafnað or-
lof. Þá segir Egill að ekki hafi verið
útilokað að kæra brotin til lögreglu.
Fram kom á vefsíðu Herðubreiðar
í gær að Björgvin G. hefði ákveðið að
gangast undir meðferð vegna áfeng-
isneyslu og mun því ekki taka við
starfi ritstjóra Herðubreiðar líkt og
áformað hafði verið.
„Hluta þess sem nú er orðið að
fréttaefni má vitaskuld rekja til
dómgreindarbrests sem stafar án
efa af viðvarandi og óhóflegri áfeng-
isneyslu um nokkurra missera skeið.
Ég hafði ákveðið að leita aðstoðar á
göngudeild þar sem ég hafði óskað
eftir meðferð og hugðist sinna vinnu
meðfram því, en eftir áföll síðustu
daga er mér ljóst að ég þarf meiri
hjálpar við,“ er haft eftir Björgvini
G. á áðurnefndri síðu.
Þar kemur ennfremur fram að
hann hafi ákveðið að leita sér lækn-
ingar á Vogi frá og með morgundeg-
inum. „Ég hætti að drekka fyrir 10
árum og það gekk vel í nokkur ár, en
í róti síðustu ára fór ég að misnota
það aftur í vaxandi mæli,“ segir
Björgvin G. og bætir við að hann
hafni alfarið ásökunum um fjárdrátt
eða að um ásetningsbrot sé að ræða.
Neitar ásökunum um fjárdrátt
Hann er að ráðstafa þarna almannafé í eigin þágu, segir oddviti Ásahrepps Fyrrverandi sveitar-
stjóri Ásahrepps millifærði 250.000 krónur inn á eigin reikning án vitundar og samþykkis annarra
Björgvin G.
Sigurðsson
Egill
Sigurðsson
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
„Það hefur verið meira efni í höfn-
inni og það þarf að dýpka álíka mikið
og fyrir ári síðan, en ekki á sömu
stöðum,“ segir Sigurður Áss Grét-
arsson, forstöðumaður hafnasviðs
Vegagerðarinnar.
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins í
gær um það að sandurinn hafi aldrei
verið meiri í Landeyjahöfn. Sigurður
segir þetta ekki rétt, en samantekin
dýpkun sem þurfi til að Herjólfur
geti siglt inn höfnina sé ekki ósvipuð
og í fyrra.
Dýpið á rifinu og í hafnarminninu
er í grynnra laginu að sögn Sigurðar,
en annars staðar í höfninni er það
meira eða svipað og áður.
Dælurör á dýpkunarskipinu Dísu
skemmdist þegar verið var að dæla á
svæðinu, en Óttar Jónsson skipstjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að mjög erfitt væri að athafna
sig á svæðinu.
Dýpkað verður í höfninni þegar
veður leyfir, en dýpka þarf mest inn-
an hafnar í ár. Grunnristar ferjur
komast inn í höfnina eins og staðan
er núna, en það fer þó eftir sjávar-
stöðu og ölduhæð.
Dýpkunin ekki
ósvipuð og í fyrra
Meira efni hefur verið í höfninni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landeyjahöfn Dýpkað verður í höfninni þegar veður leyfir.
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
Komdu inn í hlýjuna
í súpu dagsins
Mundu eftir súpukortinu
FR
Í
súp
a d
ag
sin
s
Súpukort
hægt að fá súpu
í brauðkollu
eða í skál.
Verð kr. 945
Súpu dagsins sérðu á
Facebook síðunni okkar
Úthlutað var úr menningarsjóði Hlað-
varpans í síðasta skipti í gær, en hann
hefur styrkt menningarmál kvenna um
áttatíu milljónir króna á undanförnum
átta árum. Hæstu styrkina að þessu
sinni hlutu verkefni sem varða bókaút-
gáfu og leiklist. Var alls sex milljónum
króna úthlutað í formi 15 styrkja.
Þrjú verkefni hlutu styrk upp á
hálfa milljón: Þær Helga Gerður
Magnúsdóttir, Áslaug Thorlacius og
Svanhildur Óskarsdóttir hlutu styrk til
að gefa út bók og geisladisk um Þor-
gerði Ingólfsdóttur og kórastarf í
Menntaskólanum við Hamrahlíð, Leik-
listarkonur 50+ til verkefnisins „Kátar
konur í kústi“ í Iðnó og Safnasafnið til
að gefa út bók með sýnishornum af
bestu útsaumsverkum ónafngreindra
kvenna. Morgunblaðið/Ómar
Veitti 15
styrki í ár