Morgunblaðið - 20.01.2015, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2015
Kvikmyndin Unbroken erfyrsta stórmyndin semAngelina Jolie leikstýriren frumraun hennar
kom árið 2011 með kvikmyndinni
In the Land of Blood and Honey
sem fékk heldur dræmar viðtökur.
Í nýju afurðinni fékk Jolie hina
margreyndu kvikmyndagerðar-
menn Joel og Ethan Coen til liðs
við sig, auk þess sem handritshöf-
undurinn William Nicholson tók
þátt í gerð handritsins, og var
stefnan greinilega sett á Óskarinn.
Samvinna reynslubolta
Sagan segir frá lífshlaupi Louis
Zamperinis (Jack O’Connell), allt
frá því hann snýr sér ungur að
frjálsíþróttum og þar til hann er
frelsaður úr fangabúðum Japana
við lok síðari heimsstyrjaldar.
Kappinn hefur þá gengið í gegnum
hverja þrekraunina á fætur ann-
arri og meðal annars lifað af fjöru-
tíu og sjö daga úti á rúmsjó, ásamt
tveimur öðrum, eftir að herflugvél
þeirra fórst í Kyrrahafi.
Sagan er að sjálfsögðu hálfgerð
ævisaga og eins og með margar
slíkar er um einkar einhliða frá-
sögn að ræða. Japönum er stillt
upp sem vonda aflinu í kvikmynd-
inni, með Mutsuhiro „The Bird“
Watanabe (Miyavi) í fararbroddi, á
meðan Bandamenn eru upphafnir.
Lítið sem ekkert frumlegt í þeirri
uppsetningu á baráttu góðs og ills.
O’Connell leysir þó hlutverk sitt af
stakri prýði og Miyavi er nokkuð
sannfærandi sem illur lostakvalari.
Framvinda sögunnar er að
mestu línuleg þrátt fyrir að flakk-
að sé eilítið fram og aftur í tíma.
Útfærsla sú er þó auðmeltanleg og
rennur vel. Kvikmyndatakan er að
sama skapi mjög góð en reynslu-
boltinn Roger Deakins, sem hefur
til að mynda margoft unnið með
Coen-bræðrum áður, stígur ekki
feilspor. Sviðsmynd kvikmyndar-
innar er einnig vel gerð og sann-
færandi. Ákvörðun Jolie að styðj-
ast við ákveðnar samklippur
verður þó að teljast fremur und-
arleg en á stöku stað bregður til
að mynda andliti Zamparinis fyrir
á milli dramatískra atriða. Útkom-
an er heldur klisjukennd og væm-
in.
Vantar ákveðinn brodd
Kvikmyndin er nær laus við alla
rómantík og er ástarsögu ekki
troðið inn í söguþráðinn, enda
væri sannleikur hennar þá eflaust
í hættu. Það er ágætis tilbreyting
enda nær ógerningur að sjá Holly-
wood-kvikmynd sem er laus við
hið staðlaða ástarsamband. Það
vantar þó ákveðinn brodd í kvik-
myndina og er hún fremur flöt.
Það má velta því fyrir sér hvort
svo sé vegna þess hversu margir
stórlaxar komu að gerð hennar.
Það er í raun eins og kvikmyndin
hafi verið unnin af nefnd og lítil
sem engin áhætta tekin.
Lífshlaup Zamperinis er vissu-
lega áhugavert en kvikmyndin
bætir litlu sem engu við frásögn-
ina og tekst illa að hreyfa við
manni. Eins og áður segir er þó
eitt og annað gott við hana enda
dýr kvikmynd á ferð. Á döfinni hjá
Angelinu Jolie er kvikmyndin By
the Sea, sem á að koma út á þessu
ári, en þar mun hún skrifa og leik-
stýra sjálfri sér og eiginmanni sín-
um, Brad Pitt. Hver veit nema
meiri áhætta verði tekin í því
verki.
Áhugaverð ævisaga unnin af nefnd
Lífshlaup Saga Zamperinis, lengst til hægri, er sögð og er hún mjög svo viðburðarík. Kvikmyndin bætir þó litlu við.
Sambíóin Álfabakka
Unbroken bbmnn
Leikstjórn: Angelina Jolie. Handrit: Joel
Coen, Ethan Coen, Richard LaGrave-
nese og William Nicholson. Aðal-
hlutverk: Jack O’Connell, Domhnall
Gleeson, Miyavi, Garrett Hedlund og
Finn Wittrock. 137 mín. Bandaríkin,
2014.
DAVÍÐ MÁR
STEFÁNSSON
KVIKMYNDIR
American Sniper, nýjasta kvikmynd
leikstjórans Clints Eastwoods, var
frumsýnd fyrir helgi í Bandaríkj-
unum og námu miðasölutekjur af
henni 90,2 milljónum dollara, jafn-
virði um 11,9 milljarða króna. Engin
kvikmynda Eastwoods hefur aflað
viðlíka miðasölutekna og þessi sem
fjallar um skæðustu leyniskyttu
Bandaríkjahers fyrr og síðar. Ekki
er nóg með að myndin hafi slegið
persónulegt met Eastwoods heldur
er hún einnig tekjuhæsta kvikmynd
sem frumsýnd hefur verið í janúar í
Bandaríkjunum frá upphafi mælinga
og tekjuhæsta dramatíska kvik-
myndin, að því er fram kemur á vef
dagblaðsins Guardian. Í gær var al-
mennur frídagur í Bandaríkjunum,
tileinkaður Martin Luther King Jr.
og stefndi allt í að miðasölutekjur að
honum meðtöldum yrðu um 105
milljónir dollara. Fyrra met átti
Avatar, 68,5 milljónir dollara.
Skytta American Sniper fjallar um leyniskyttuna Chris Kyle sem felldi 160
menn í Íraksstríðinu. Bradley Cooper fer með hlutverk hans í myndinni.
Nýjasta mynd Eastwoods
sló met í Bandaríkjunum
Kvartett gít-
arleikarans Ás-
geirs Ásgeirs-
sonar kemur
fram í kvöld á
djasskvöldi Kex
Hostels og leikur
djassstandarda í
bland við frum-
samið efni eftir
Ásgeir. Auk Ás-
geirs eru í kvart-
ettinum Snorri Sigurðarson sem
leikur á trompet, Gunnar Hrafns-
son á kontrabassa og Scott McLe-
more á trommur. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 20.30 og er aðgangur að
þeim ókeypis.
Kvartett Ásgeirs
djassar á Kex
Ásgeir
Ásgeirsson
Boyhood, kvik-
mynd bandaríska
leikstjórans
Richard Linkla-
ter, hlaut þrenn
verðlaun sam-
taka kvikmynda-
gagnrýnenda í
Lundúnum um
liðna helgi, Lond-
on Critics’ Circle
Film Awards.
Verðlaunin hlaut hún fyrir bestu
kvikmynd og leikstjóra ársins 2014
og fyrir bestu leikkonu í aukahlut-
verki, Patriciu Arquette, sem hlaut
í byrjun árs Golden Globe verðlaun-
in fyrir sama hlutverk.
Boyhood hlaut
þrenn verðlaun
Patricia
Arquette
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
48
RAMMA
STÆRSTA OPNUNARHELGI
ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
E.F.I -MBL
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS
- bara lúxus