Morgunblaðið - 22.01.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
Þeir í Samfylkingunni virðasteiga einhverjar óuppgerðar
sakir við Jón Sigurðsson. Þá er ekki
átt við þann sem lengi hefur verið
innsti koppur í búrinu á þeim bæ,
heldur Jón, sóma Íslands, sverð
þess og skjöld.
Jóhanna Sigurð-ardóttir til-
kynnti óvænt á
Austurvelli, á fæð-
ingardegi Jóns,
færslu fæðingar-
staðar hans á milli
fjarða. Skýring var
ekki gefin, en hún
talin tengjast nýjum
reglum um útreikn-
ing húsaleigubóta.
Nú leggur DagurB. Eggertsson
til að 17. júní þessa árs verði hald-
inn hátíðlegur 19. júní. Dagur und-
irstrikar að sá dagur sé ekki valinn
af því að hann, þ.e. Dagur með
stórum staf, eigi sjálfur afmæli
hinn 19. júní en ekki 17. júní, eins
og Jón. Það sé hrein tilviljun. Skýr-
ingin á því að færa verði til 204. af-
mælisdag Jóns Sigurðssonar virðist
vera tilfallandi pópúlismi sem þarf
að nudda sér utan í með þessum ný-
stárlega hætti.
Samfylkingin hefur bitið það í sigað Ísland sé glatað verði ekki
drýgstum hluta fullveldis þess fórn-
að fyrir aðild að ESB. Getur verið
að pirringurinn út í Jón Sigurðsson
sé vegna eftirfarandi orða hans:
Sérhverri þjóð vegnar vel semhefur lag á að sjá kosti lands
síns“. Getur það verið?
En má þá ekki til sátta biðja þauDag og Jóhönnu að syngja
Jóni Sigurðssyni afmælissöng hinn
18. júní nk. í hlutlausum firði, að
eigin vali, austan lands eða vestan?
Dagur B.
Eggertsson
Fæðingarstaður þá
fæðingarDagur nú
STAKSTEINAR
Jóhanna
Sigurðardóttir
Veður víða um heim 21.1., kl. 18.00
Reykjavík 3 rigning
Bolungarvík 1 léttskýjað
Akureyri -2 léttskýjað
Nuuk -8 snjókoma
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló -2 snjókoma
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Stokkhólmur 0 snjókoma
Helsinki -5 skýjað
Lúxemborg 1 skýjað
Brussel 1 heiðskírt
Dublin 5 skýjað
Glasgow 0 þoka
London 2 skýjað
París 2 alskýjað
Amsterdam 1 heiðskírt
Hamborg -2 þoka
Berlín 1 skýjað
Vín 3 alskýjað
Moskva -12 þoka
Algarve 12 skýjað
Madríd 6 léttskýjað
Barcelona 8 léttskýjað
Mallorca 8 skúrir
Róm 11 léttskýjað
Aþena 15 léttskýjað
Winnipeg -16 skýjað
Montreal -16 léttskýjað
New York -1 skýjað
Chicago 1 alskýjað
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:38 16:42
ÍSAFJÖRÐUR 11:05 16:24
SIGLUFJÖRÐUR 10:49 16:06
DJÚPIVOGUR 10:13 16:06
Yfirborð Láxár í Aðaldal hefur hækkað nokkuð
vegna klakastíflna neðan Laxárvirkjunar. Áhrifa
þess gætir einna helst þegar vatn flæðir vestur um
Aðaldalshraun og vestur að Garðsnúp. Að sögn
Harðar Jónassonar, vegfaranda sem átti leið hjá
bæjunum Tjörn og Garði, sem liggja við ána, er
yfirborðið einungis um 35 sentimetrum frá veg-
brún á þjóðvegi 85 sem liggur þar um. Eitt ræsi
hleypir vatni undir veginn og telur Hörður að
brýnt sé að setja annað ræsi þar undir til þess að
koma í veg fyrir tjón á veginum. „Núna eru góð
veður og engin úrkoma en það getur allt flætt ef
stórhríð verður,“ segir Hörður.
Hann segir að fordæmi séu fyrir því að vatn fari
yfir veginn við slíkar aðstæður. „Ef vegurinn
lokast er aðeins ein leið milli Akureyrar og Húsa-
víkur, þ.e. um Reykjadal og Fljótsheiði,“ segir
Hörður og bendir á að sú leið sé gjarnan ófær að
vetri til. Að auki sé hætt við því að drjúgt flóð gæti
valdið stórtjóni á veginum sjálfum. vidar@mbl.is
Yfirborðið nærri vegbrún vegna klakastíflna
Ljösmynd/Hörður Jónasson
Laxá í Aðaldal Yfirborð árinnar hefur hækkað nokkuð vegna klakastíflna.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam-
þykkti samhljóða sameiginlega bók-
un þar sem Strætó Bs. er hvatt til
þess að endurskoða starfsmanna-
stefnu sína í ljósi
uppsagna starfs-
manna. „Í ljósi
frétta af upp-
sögnum starfs-
manna Strætó
Bs. við yfirfærslu
akstursþjónustu
fatlaðs fólks
áréttar bæjar-
stjórn Hafnar-
fjarðar mikilvægi
þess að hæfileik-
ar allra séu virkjaðir og réttur allra
til virkrar þátttöku í samfélaginu sé
tryggður. Sérstaklega er brýnt að
sveitarfélög og fyrirtæki í eigu
þeirra fari fram með góðu fordæmi í
atvinnumálum fatlaðs fólks og setji
sér skýr markmið um að vinna gegn
allri mismunun vegna fötlunar, með-
al annars með því að tryggja fram-
boð starfa sem henta fólki með
skerta starfsgetu.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar beinir
því til stjórnar Strætó Bs. að hún
taki til endurskoðunar starfsmanna-
stefnu fyrirtækisins og láti fara fram
heildstæða endurskoðun á starfsemi
þess, þjónustu og fyrirkomulagi
starfsmannamála, með það að mark-
miði að tryggja að ákvæði samnings
Sameinuðu þjóðanna um réttindi
fatlaðs fólks séu uppfyllt,“ segir þar.
Þjónustan verði ekki dýrari
Fram kom tillaga á fundi bæjar-
stjórnar í gær þess efnis að gjöld
fatlaðs fólks sem nýtir sér aksturs-
þjónustu Strætó verði ekki í neinum
tilvikum dýrari en þjónusta hefð-
bundinna strætisvagna. „Notendum
akstursþjónustunnar gefist þar af
leiðandi kostur á að kaupa tímabils-
kort og ferðast út á þau eins oft og
þeir þurfa og kæra sig um, líkt og
gildir um aðra notendur almenn-
ingssamgangna á höfuðborgarsvæð-
inu,“ segir í tillögunni. Afgreiðslu
hennar var frestað og hún send til
umfjöllunar í fjölskylduráði.
Skora á strætó að
endurskoða stefnu
Samhljóða bókun bæjarstjórnar
Hafnarfjörður
Bókunin var sam-
þykkt samhljóða.
Ragna Bjarnadóttir
andaðist á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni hinn
20. janúar 2015.
Ragna var eiginkona
Ólafs G. Einarssonar,
fyrrverandi ráðherra
og forseta alþingis.
Ragna fæddist á
Patreksfirði 21. nóv-
ember 1931. For-
eldrar hennar voru
hjónin Bjarni Bjarna-
son söðlasmiður,
fæddur á Skerðings-
stöðum í Dalasýslu,
og Guðfinna Guðna-
dóttir, fædd í Skálmholtshrauni í
Árnessýslu. Ragna átti fjögur al-
systkini og tvö hálfsystkini og var
yngst í þeim hópi.
Ragna stundaði nám við barna-
skólann á Patreksfirði, síðan var
hún tvo vetur við nám í Lauga-
skóla í Reykjadal og svo einn vet-
ur við Húsmæðraskólann á Ísa-
firði.
Hún vann á Raforkumálaskrif-
stofunni fyrstu hjúskaparárin,
síðan var hún einkaritari dr.
Benjamíns Eiríkssonar, banka-
stjóra Framkvæmdabankans, um
nokkurra ára skeið.
Eftir það starfaði
hún á skattstofu
Reykjanesumdæmis í
Hafnarfirði nokkur
ár. Hún lauk svo sín-
um starfsferli utan
heimilis sem starfs-
maður á Bókasafni
Garðabæjar.
Ragna og Ólafur
gengu í hjónaband
hinn 24. desember
1955 í Akureyrar-
kirkju. Fyrstu hjú-
skaparárin bjuggu
þau hjón í Reykjavík.
Árið 1963 fluttu þau á Stekkjar-
flöt 14 í Garðabæ, þá Garða-
hreppi, en þar var Ólafur sveit-
arstjóri 1960-1972, síðan oddviti
og forseti bæjarstjórnar til 1978.
Þar átti Ragna sitt lögheimili
alla tíð frá 1963.
Hún dvaldi á Sóltúni frá 17.
maí 2005 og til dánardags, eða
tæp 10 ár, en hafði áður dvalið
um hálfs árs skeið á Grensásdeild
eftir að hún fékk heilablæðingu
2004.
Ragna skilur eftir sig eigin-
mann, dóttur og þrjú barnabörn.
Andlát
Ragna Bjarnadóttir