Morgunblaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015 Ég bý í Vesturbænum og á oft leið út á Granda eða um Geirsgötuna. Þar er mikið líf og fjör og fjölgar veitingastöðum þar jafnt og þétt, þetta er orðið eitt skemmtilegasta svæði borgarinnar. Vesturbæingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Líf við höfnina Slippurinn Mikið líf er gjarnan á hafnarsvæðinu í Reykjavík nú orðið. Morgunblaðið/Golli - með morgunkaffinu Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 11-15 ÚTSALA 20-70% afsláttur SÉRBLAÐ Meðal efnis í blaðinu verður leikföng og afmælisgjafir, kökur, skreytingar, þemu, skemmtikraftar, spariföt og margt fleira. –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Anna María Benediktsdóttir Sími: 569 1309 maja@mbl.is Morgunblaðið gefur út sérblað um barnaafmæli föstudaginn 30. janúar BARNAAFMÆLI Áramótabrennan logaði glatt í blíðviðr- inu á milli Bjólfs og Strandatinds. Hún lýsti vel upp fjalla- hringinn þegar gefið var á bálið. Skoteldar og blys flóðlýstu him- ininn þegar nýtt ár gekk í garð og berg- mál fjallanna kallaðist á við upplýstan himin. Mögnuð sjón og upp- haf á nýju ári. Ljósaskiltið í rótum Bjólfs sem lýsir allt árið breyttist kl. 12. í „Seyðisfjörður 120 ára“. Minnir okkur á að 120 ár eru liðin frá því að Seyðisfjörður fékk kaup- staðarréttindi árið 1885. Þá einn fjögurra kaupstaða á Íslandi. Afmælishátíð verður haldin dag- ana 26.-28. júní. Til þess kjörin af- mælisnefnd hefur boðið til fagnaðar síðustu helgi júnímánaðar til að minnast afmælisins. Þegar kaup- staðurinn varð 100 ára 1995 var haldin vegleg afmælishátíð þessa sömu helgi. Hún stóð í fjóra daga. Nú er blásið til veislu á ný þar sem bæjarbúar, brottfluttir og gestir koma saman og minnast tímamót- anna og skemmta sér saman í firð- inum fagra. Búist er við fjölmenni til að fagna með afmælisbarninu. Seyðfirðingar blóta þorra laug- ardaginn 24. janúar. Það er alltaf vel sótt og fjöldi brottfluttra mætir á blótið, étur vel og skemmtir sér með heimamönnum. Stórsöngvarinn Matti Matt og Rokkabíllibandið mæta á svæðið. Þorrablótsnefndin undir styrkri stjórn Sigrúnar Ólafs blóts- stjóra dregur fram í lifandi dagskrá það helsta sem minnisstætt er frá liðnu ári. Kennir þar margra grasa sem hreyfir vel við við- stöddum. Norræna siglir sem aldrei fyrr Hún kom sína fyrstu ferð á nýju ári 6. jan- úar sl. Flutningur sjáv- arafurða með ferjunni er stöðugt að aukast og síðasta ferð var metferð. Fátt er um farþega á þessum árstíma. Á nýliðnu ári mætti hún vikulega til hafnar allt árið án þess að niður félli ferð. Bók- anir fyrir sumarið lofa góðu. Skömmu fyrir áramót keypti Síld- arvinnslan útgerðarfyrirtækið Gull- berg ehf. og Fiskvinnsluhús Brim- bergs ehf. Gullberg, sem er rótgróið fjölskyldufyrirtæki, hefur í 55 ár verið ein helsta kjölfestan hér í at- vinnulífinu. „Fjársjóður fyrirtæk- isins er starfsfólkið okkar,“ sagði eigandinn. Öllum gylliboðum var hafnað. Tryggð fyrri eigenda við staðinn og fólkið sem hér býr, þ.e. athafnamannsins Ólafs M. Ólafs- sonar og Jóns Pálssonar við stýrið ásamt framkvæmdastjóra, Adolfs Guðmundssonar, ber sérstaklega að þakka um leið og nýir eigendur eru boðnir velkomnir til samstarfs. Til að undirstrika vilja forveranna reka nýir eigendur fyrirtækið áfram í nafni Gullbergs og styrkja und- irstöðuna með fiskvinnslu í eigin húsnæði. Fyrir eiga þeir fullkomna fiskimjölsverksmiðju á Seyðisfirði og þekkja því vel allar aðstæður á staðnum. Fyrstu skrefin lofa góðu þar sem togarinn Gullberg fær auknar heimildir til veiða, vinnsla í frystihúsinu er aukin og meiri út- flutningur með Norrænu sem gefur ný tækifæri. Heyrst hefur að hugað verði fljótlega að endurbótum á hús- næði vinnslunnar sem komið er til ára sinna. Listalýðháskóli, sá fyrsti á Ís- landi, starfaði sína fyrstu önn í haust með 12 nemendum. Sjálfstæð menntastofnun, athygliverð viðbót við núverandi staðlað skólakerfi. Nemendur koma víða að úr heim- inum og setja þeir skemmtilegan svip á samfélagið okkar hér meðan á dvöl þeirra stendur. Skólinn legg- ur áherslu á sjálfsskoðun í gegnum listir og skapandi vinnu. Nú er vor- önn nýhafin með svipuðum fjölda nemenda. Mikil eftirvænting er hjá þeim að takast á við veturinn og verkefnin í nýju spennandi um- hverfi. Ársþing Lionsklúbba verður haldið hér helgina 15.-17. maí. Lkl Seyðisfjarðar og Múli Lkl Egils- stöðum sjá um undirbúning og framkvæmd. Gunnar Sverrisson Lkl Sf. hefur borið þungann og hit- ann af öllu skipulagi og kallar nú til liðs við sig vaska sveit félaga sem vinna nú hörðum höndum að því að hafa allt klárt á réttum tíma. Búist er við miklum fjölda félaga og gesta í bæinn og allt gistirými löngu upp pantað. Síðastliðið sumar komu aðeins 10 skemmtiferðaskip til Seyðisfjarðar- hafnar. Nú bregður hins vegar svo við að bókaðar hafa verið komur 27 skipa á komandi sumri og níu hafa þegar bókað komu sína sumarið 2016. Seyðfirðingar fagna aukinni umferð ferðafólks og vöruflutninga um höfnina á nýju ári. Skíðasvæðið í Stafdal var opnað milli jóla og nýárs. Snjó hefur vant- að en reynt er að hafa barnalyftu og neðri lyftu opna þegar gefur. Kennsla er í fjallinu og „krílaskól- inn“ tekinn til starfa. Allir eru vel- komnir í Stafdalinn. Sjáumst í fjall- inu. Skaftfell – menningarmiðstöð myndlistar á Austurlandi Fjöldi innlendra og erlendra lista- manna dvelur um lengri eða skemmri tíma á Seyðisfirði m.a. í tengslum við miðstöðina. Sýningar þeirra margra eru fjölbreyttar og spanna litrófið allt í lifandi túlkun og framsetningu. Sjón er sögu rík- ari. Í fjárlögum ríkisins í ár er fjár- magn til að klára rannsóknir á Seyðisfjarðargöngum undir Fjarð- arheiði. Þá verða munnastæðin end- anlega valin báðum megin heiðar- innar. Næsta skref verður að hanna göngin og gera klár í útboð. Stefnan verður sett á að framkvæmdir við göngin hefjist strax að loknum Norðfjarðargöngum. Seyðfirðingar bjartsýnir á nýju ári Eftir Þorvald Jóhannsson »Nú er blásið til veislu á ný þar sem bæjar- búar, brottfluttir og gestir koma saman og minnast tímamótanna og skemmta sér saman í firðinum fagra. Þorvaldur Jóhannsson Höfundur er fyrrv. bæjarstjóri, nú eldri borgari á Seyðisfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.