Morgunblaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 16
FLUTNINGAR TIL NORÐURLANDANNA EFTIR HRUN16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015 Ljósmynd/Johannes Jansson-norden.org Ljósmynd/Karin Beate Nøsterud-norden.org Ljósmynd/Eivind Sætre-norden.org Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Tveir námsmenn á Skáni í Svíþjóð segja betur búið að náms- mönnum þar í landi en hér. T.d. sé doktorsnám launað þar og mikil vinna með skóla, eins og al- gengt sé hér, tíðkist ekki. Litið sé á háskólanám sem fullt starf. Kristín Ósk Ingvarsdóttir er í doktorsnámi í hugfræði eða vits- munavísindum við háskólann í Lundi í Svíþjóð þar sem hún hefur verið búsett frá 2009. Greinin er ekki kennd hér á landi og var námið helsta ástæða flutninga Kristínar Óskar og sambýlismanns hennar. Áður hafði hún lokið meistaranámi í sömu grein í Lundi, en sá ekki mikla atvinnumöguleika á Íslandi og úr varð að hún ákvað að halda áfram námi. Kristín Ósk segir helsta muninn á því að vera námsmaður í Svíþjóð og á Íslandi vera að leiga á náms- mannaíbúðum sé lægri þar en hér. Þá vinni sænskir háskólanemar á öllum háskólastigum að jafnaði ekki eins mikið með skóla og þeir íslensku, enda fái þeir námsstyrk. „Við vorum yfirleitt í einu eða tveimur störfum með náminu heima. Þetta hefur auðvitað bæði kosti og galla, t.d. erum við með miklu meiri starfsreynslu en marg- ir Svíar á sama aldri. Aftur á móti er ekki gott að hlaða of miklu á sig því það getur bitnað á náminu og heilsunni.“ Einnig er ólíku saman að jafna varðandi kjör doktorsnema. „Á Ís- landi þurfa nemar að sækja um styrki sem eru fáir og eftirsóttir. Hér er doktorsnám aftur á móti launað, sem gerir það að auðveldari kosti,“ segir Kristín Ósk. Enn þörf á breytingum Hún segir að ástand mála á Ís- landi virðist að mörgu leyti hafa staðið í stað frá því hún flutti út fyr- ir rúmum fimm árum. Sem dæmi um það nefnir hún að hún hafi verið stödd á Íslandi í október þegar fyrstu mótmæli Jæja-hópsins undir forystu Svavars Knúts fóru fram. „Mér fannst eins og ég væri aftur komin í mótmælin í búsáhaldabylt- ingunni, fólkið var að krefjast þess sama og þá, hrópaði sömu slagorð. Það er því augljóst að það er ennþá þörf á breytingum.“ Vill starfa í Svíþjóð eftir nám Í Svíþjóð er gert ráð fyrir því að háskólanám sé full vinna sem sé stunduð á dagvinnutíma og að fólk eigi frítíma utan þess. Þetta segir Sigríður Dúna Sverrisdóttir sem er við nám í landslagsarkitektúr í landbúnaðarháskólanum í bænum Alnarp í Svíþjóð. Áður hafði hún tekið grunnnám í umhverf- isskipulagi í Bændaskólanum á Hvanneyri. Sigríður Dúna hefur verið búsett í bænum Lomma á Skáni í Svíþjóð frá haustinu 2012 ásamt sambýlis- manni sínum, sem starfar sem tæknifræðingur, og ungri dóttur þeirra. „Það er án efa auðveldara að lifa af námslánunum hérna en á Íslandi,“ segir Sigríður Dúna. „Það er meira framboð á ódýrari mat, leikskólagjöldin eru talsvert lægri og barnabæturnar margfalt hærri.“ Sigríður Dúna segir það hafa tek- ið sinn tíma að aðlagast samfélag- inu. „Tungumálið skiptir öllu máli í þessu sambandi; ef maður kann það verður maður meiri hluti af sam- félaginu. Annars finnst mér Svíar almennt taka vel á móti útlend- ingum.“ Sigríður Dúna segist fylgjast ágætlega með þjóðfélagsumræð- unni á Íslandi, sem sé ekki alltaf sérlega uppbyggileg. „Fjölmiðla- umfjöllunin er oft rosalega nei- kvæð, stundum finnst mér að það sé verið að gera of mikið úr hlutunum, það er oft ástæða til að segja frá því öllu því jákvæða sem er að gerast.“ Hún vinnur nú að lokaverkefni sínu í náminu þar sem hún fjallar um gönguumhverfi og hversu mik- ilvægt það sé að geta gengið úti sér til heilsubótar. „Ég er m.a. að fjalla um hvernig hægt sé að hanna um- hverfi sem ýtir undir það. Eftir út- skrift sé ég fyrir mér að sækja um starf hérna í Svíþjóð, markaðurinn fyrir mitt fag er lítill á Íslandi þann- ig að ég vil sækja mér reynslu hérna til að eiga meiri möguleika heima, ef ég færi þangað.“ Betur búið að námsmönnum Námsmenn Sigríður Dúna Sverrisdóttir og Kristín Ósk Ingvarsdóttir. VIÐTAL Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Það var bara ekki í boði fyrir iðnaðarmann og kennara að búa á Íslandi á þessum tíma, skömmu eftir hrun,“ segir Páll Þórir Jónsson dúklagningameist- ari sem hefur verið búsettur í Bergen í Noregi síðan í janúar 2009. Eiginkona hans, Sara Lind Gunnarsdóttir, flutti út nokkrum mánuðum síðar ásamt elsta barni þeirra Jóni sem þá var tveggja og hálfs árs. Síðan hefur fjölskyldan stækkað, tvö börn hafa bæst við; Kristín sem er fjögurra ára og Gunnar sem er tæplega tveggja ára, og dvölin sem átti að vera tímabundin hefur nú varað í sex ár. Brjálað að gera út 2008 Páll starfaði sjálfstætt við dúk- lagningar á Íslandi og segir að fljótlega upp úr áramótunum 2008-’09 hafi verkefnunum fækkað mikið. „Það var brjálað að gera út 2008, en þá breyttist staðan mjög fljótt. Skyndilega voru engin verk- efni framundan. Ég mat stöðuna þannig að ef ég vildi starfa áfram í mínu fagi yrði ég að gera það í öðru landi. Reyndar átti þetta bara að vera tímabundið, en hér erum við ennþá.“ Sara er markaðsfræðingur og kenndi í grunnskóla á þessum tíma samhliða því að vera í kennsluréttindanámi. Hún er nú móðurmálskennari íslenskra barna á Bergensvæðinu, fer á milli skóla og kennir þeim íslensku auk þess að styðja þau í námi sínu fyrstu árin. Starfinu hefur hún sinnt í nokkur ár og í byrjun voru ís- lensku börnin svo fá að ekki var um fullt starf að ræða. Þeim hefur fjölgað mikið síðan þá og nú sinna tveir íslenskir kennarar starfinu. Páll rekur eigið dúklagningafyr- irtæki og sinnir fjölbreyttum verkefnum, bæði á heimilum og fyrirtækjum. Hann segir mikið að gera, talsverður uppgangur sé í Bergen og mikið um framkvæmdir og nýbyggingar. Þetta er ekki auðvelt í byrjun Upplifið þið ykkur sem innflytj- endur? „Stundum og stundum ekki. Íslendingar eiga kannski auðveldara með að aðlagast sam- félaginu en fólk frá öðrum löndum því menningin er lík að mörgu leyti og tungumálið svipað,“ segir Sara. „En ég held að margir Ís- lendingar hafi ranghugmyndir um hvernig sé að búa í Noregi. Þú hoppar ekkert inn í gott starf hér, ekki frekar en á Íslandi. Það þarf að hafa fyrir því að aðlagast og þetta er ekkert auðvelt í byrjun.“ Talið berst að lífsstíl Norð- manna og Íslendinga og telja hjónin að daglegt líf sé talsvert af- slappaðra í Noregi en á Íslandi. „Það er ekki þessi sami asi hér og á Íslandi, lífið er rólegra og fjöl- skylduvænna. Fólk gerir meira saman sem fjölskylda, ég veit ekki af hverju það er, en við höfum oft velt því fyrir okkur. Kannski er það í menningunni,“ segir Páll. Spurður um hvers vegna Nor- egur hafi orðið fyrir valinu segir Páll það hafa verið vegna þess að þar bauðst honum vinna. Hefðuð þið flutt frá Íslandi ef þar hefði verið næga vinnu að fá? „Nei, lík- lega ekki,“ segir Sara. „Og mér finnst ekkert að því þegar fólk segist hafa flutt úr landi vegna at- vinnu eða fjárhags. Það virðist vera tabú hjá sumum að við- urkenna það, en auðvitað er mjög leiðinlegt að geta ekki búið á land- inu sínu vegna þess að maður fær ekki vinnu þar. Það á svo bara eft- ir að koma í ljós hvort við verðum hér áfram. Það þarf ýmislegt að breytast á Íslandi, t.d. húsnæðis- mál, lánafyrirkomulag og atvinnu- möguleikar, ef það á að koma til greina að flytja þangað aftur.“ Ísland var ekki í boði Sara og Páll Þau segja daglegt líf talsvert afslappaðra í Noregi en á Íslandi.  Þarf að hafa fyrir því að aðlagast og þetta er ekkert auðvelt í byrjun  Í byrjun árs 2009 voru skyndilega engin verkefni framundan  Hefðum líklega ekki flutt ef á Íslandi hefði verið næg vinna Morgunblaðið/Einar Falur Bergen Þar starfar Páll við dúklagningar og Sara starfar við kennslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.