Morgunblaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 21
þinginu. Frammámenn í flokknum
hafa verið ákærðir fyrir morð, ólög-
lega vopnaeign og fleiri lögbrot en
þeir segja ákærurnar af pólitískum
rótum runnar. Enginn af helstu
stjórnmálaflokkum landsins hefur léð
máls á stjórnarsamstarfi við Gullna
dögun.
Kommúnistaflokkurinn (KKE)
hefur mælst með svipað fylgi, eða 4 til
5%. Hann fékk 6% atkvæðanna í
kosningunum til Evrópuþingsins í
maí.
Hægriflokki sem nefnist Óháðir
Grikkir (ANEL) er spáð um 3% at-
kvæðanna og hann gæti því komist á
þingið. Þingmaðurinn Panos Kam-
enos stofnaði flokkinn í febrúar 2012
eftir að honum var vikið úr Nýju lýð-
ræði fyrir að greiða atkvæði gegn
samsteypustjórn landsins í atkvæða-
greiðslu sem varð til þess að hún féll.
Óháðir Grikkir vonast til þess að eiga
aðild að stjórn undir forystu Syriza
eftir kosningarnar en ekki er víst að
vinstriflokkurinn vilji það.
Áttundi flokkurinn, To Kinima
(Jafnaðarmannahreyfingin), var
stofnaður í síðasta mánuði. Stofnandi
hans er George Papandreou, sem var
forsætisráðherra stjórnar Pasok þeg-
ar skuldavandi landsins kom í ljós ár-
ið 2010 og hann neyddist til að óska
eftir aðstoð Evrópusambandsins og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. To Kinima
hefur fengið nokkra af frammámönn-
um Pasok til liðs við sig en ekki er víst
að flokkurinn fái þingsæti því fylgi
hans er aðeins um 2%, ef marka má
kannanirnar.
Heimildir: Alþjóðabankinn, OECD, Eurostat, QuotaProject, Deutsche Bank og NSSG
Landið er að kikna undan miklum skuldum og þær eru helsta hitamálið fyrir kosningarnar á sunnudag
Grikkland
Verg landsframleiðsla
182,4 milljarðar evra
á mann: 16.500 evrur (2,5 millj. kr.)
Íbúafjöldi
Grikkland
Hagvöxtur varð að samdrætti
% af landsframleiðslu
Opinberar skuldir
Spilling skv. lista Transparency Int.
Fjárlagahalli
% af landsframleiðslu
Skuldir á gjalddaga á ári
milljarðar evra
Helstu lánardrottnar
milljarðar evra
% af landsframleiðslu
69
Frakkland
26
Danmörk
1
Chile
21
Mexíkó
103
Argentína
107
Venesúela
161
Mikil
spilling
Ítalía
Brasilía
69
AÞENA
Krít
TY
R
K
LA
N
D
Jóna-
haf
Eyjahaf
Saloniki
Konur á
þingi 21%
KarlmennKonur
83,4 78
Lífslíkur
Atvinnuleysi
%
319,1
26
Evrópska
stöðugleika-
kerfið
Einka-
fjárfestar
Opinberir
fjárfestar
(ríkisskuldabréf )
Lán
AGS
42%
21
11
-3,9
-8,9
-6,6
5,8
-5,4
-0,4
175,1%
-12,2
107,8
-6,1
-9,9
-8,6
-15,2
20
15
10
5
225,3
264,6
355,9
2014 2025 2035 2045 2057
9 7,8
12,7
24,5
27,5%
(2013)
11,1 milljón
2006 0807 1009 11 12 2013
2006 0807 1009 11 12 2013
2006 0807 1009 11 12 2013 2006 2008 2010 2012 2013
Patras
A
LB
A
N
ÍA MAK.
BÚLGARÍA
120 km
ár ár
Of þung skuldabyrði?
» Sumir stjórnmálaskýrendur
telja að ESB þurfi að breyta
skilmálum aðstoðarinnar við
Grikkland og minnka skulda-
byrði landsins. Þeir segja að
opinberar skuldir Grikkja séu
alltof háar, eða um 175% af
landsframleiðslunni.
» Aðrir eru á öðru máli, segja
að afborganir og vextir Grikk-
lands hafi lækkað verulega þar
sem önnur evrulönd eigi nú
60% af skuldum Grikkja og hafi
samþykkt að lækka vaxta-
greiðslur og lengja endur-
greiðslutímann til ársins 2054.
» Vaxtagreiðslur Grikkja eru
4% af landsframleiðslu og
minni en nokkurra annarra
landa. T.a.m. eru vaxtagreiðslur
Portúgals 5% af framleiðslunni,
Ítalíu 4,8% og Írlands 4,4%.
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
Ljósmynd af
Lutz Bachmann,
stofnanda þýsku
mótmælahreyf-
ingarinnar
PEGIDA, vakti
athygli þýskra
fjölmiðla í gær.
PEGIDA er öfga-
hreyfing sem
berst gegn meintum íslömskum
áhrifum í Evrópu.
Á myndinni má sjá Bachmann
skarta yfirvaraskeggi eins og Adolf
Hitler og með sömu hárgreiðslu.
Bachmann birti myndina á sam-
félagsmiðlum og segist hafa tekið
hana sjálfur um það leyti sem háðs-
ádeiluhljóðbók um Hitler, „He’s
Back“, kom út. Að sögn þýskra fjöl-
miðla birti Bachmann myndina
löngu áður en hann varð þekktur í
Þýskalandi.
Sögð vera „brandari“
PEGIDA hefur haldið næstum því
vikulegar mótmælagöngur í Dres-
den síðustu mánuði gegn íslam og
hælisleitendum.
Þýski miðillinn MOPO 24 heldur
því fram að Bachmann hafi síðustu
ár tjáð sig um hælisleitendur á sam-
félagsmiðlum og kallað þá „skepnur“
og „óþverra“.
Þýska dagblaðið Bild hefur eftir
talskonu hreyfingarinnar, Kathrin
Oertel, að myndin hafi aðeins verið
„brandari“.
PEGIDA-foringi klæddi
sig upp sem Adolf Hitler
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 105.622
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 124.262
Meira en bara
blandari!
Rafrænt eftirlit - Hvað má og hvað ekki?
Persónuvernd í samvinnu við Mannréttindastofnun Háskóla Íslands efnir til
málþings á evrópska persónuverndardaginn, miðvikudaginn 28. janúar 2015
Dagskrá:
Kl. 13:30 Rafrænt eftirlit og friðhelgi einkalífs – hvar liggja mörkin?
Alma Tryggvadóttir, lögfræðingur hjá Persónuvernd
Kl. 13:45 Umkvörtunarefni starfsmanna sem sæta rafrænni
vöktun í störfum sínum
Bryndís Guðnadóttir, sérfræðingur
á kjaramálasviði VR
Kl. 14:00 Rafræn vöktun með augum verslunarinnar
Lárus M.K. Ólafsson, lögfræðingur hjá
Samtökum verslunar og þjónustu
Kl. 14:15 Nýir skilmálar Facebook - persónuverndarsjónarmið
Ævar Einarsson, liðsstjóri UT-ráðgjafar hjá Deloitte
Kl. 14:30 Fyrirspurnir og umræður
Kl. 15:00 Kaffihlé
Kl. 15:15 Myndavélaeftirlit lögreglu á almannafæri – hver er ávinningurinn
með eftirlitinu og hvers má vænta í þágu almennings?
Hjálmar Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn Ríkislögreglustjóra
Kl. 15:30 Reynsla og framkvæmd sveitarfélags af rafrænu eftirliti
Gunnar Lúðvíksson, fjármálastjóri Seltjarnarnesbæjar
Kl. 15:45 „Drónar“ – tækifæri og ógnir
Richard Yeo, hópstjóri fjarkönnunar hjá Veðurstofu Íslands
Kl. 16:00 Fyrirspurnir og umræður
Málþingið verður haldið í sal Þjóðminjasafns Íslands,
Suðurgötu 41, 101 Reykjavík og er opið öllum.
Fundarstjóri verður Björg Thorarensen, formaður stjórnar
Persónuverndar og prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands.
MANNRÉTTINDASTOFNUN
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Persónuvernd