Morgunblaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015 ✝ Sigríður Þórð-ardóttir fædd- ist 13. nóvember 1918 á Norðfirði. Hún lést 3. janúar 2015. Sigríður var af Dagsbrúnarætt og foreldrar hennar voru þau Þórður Björnsson skipstjóri og Stefanía Hall- dóra Ármanns- dóttir. Bræður Sigríðar voru Ei- ríkur og Herbert. Hálfsystir Sigríðar, dóttir Þórðar Björns- sonar, var Svava Þórðardóttir. Sigríður flutti frá Austfjörðum heimili að Miðtúni 24 í Reykjavík, en þar bjuggu þau í nærri 40 ár. Þau áttu þrjú börn saman, þau Kolbrúnu, Auði Stefaníu og Sig- urð Rúnar. Áður átti Sæmundur Ingu Rúnu en hún flutti ung á heimilið og var ætíð eitt af börn- um Sigríðar og Sæmundar. Inga Rúna á þrjá syni með Helga Hrafni Helgasyni, Kolbrún er gift Birni Árdal og eiga þau þrjár dætur, Auður Stefanía á dóttur með Hermanni Sveinbjörnssyni og Sigurður Rúnar er í sambúð með Nönnu Hákonardóttur og á son og dóttur af fyrra hjónabandi með Önnu Maríu Steindórs- dóttur. Barnabörn þeirra eru níu og barnabarnabörnin 15. Alls eru afkomendur Sigríðar og Sæ- mundar því 28. Útför Sigríðar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 22. janúar 2015, kl. 13. til Reykjavíkur níu ára gömul. Hún tók Verzlunarskólapróf og vann í Laugaveg- sapóteki, á Fræðslu- skrifstofu Reykja- víkur og í mennta- málaráðuneytinu. Hún var ætíð mikið náttúrubarn og unnandi handverks og lista. Sem ung stúlka iðkaði hún íþróttir og ferðalög um náttúru Íslands. Sumarið 1941 giftist Sigríður, Sæmundi Sigurðssyni málara- meistara og bjuggu þau sér Hún mamma var smávaxin og fíngerð, en samt einhvern veginn svo stór. Börn hændust að henni og hlýjunni sem hún bjó yfir, enda var hún uppfinn- ingasöm og skemmtileg. Hún bar virðingu fyrir stórum sem smáum, naut þess að gefa smá- fuglunum að borða og fylgdist með þeim út um gluggann með bros á vör. Mamma var heil- steypt kona og einstök mann- eskja. Mamma hafði unun af öllu handverki og þá skipti ekki máli hvort um var að ræða sauma- skap, prjóna, útsaum eða postu- línsmálun. Allt bókstaflega lék í höndunum á henni og víða liggja gullfalleg verk eftir hana. Þau pabbi nutu þess að mála saman á postulín og þau kenndu áhugasömum nemendum í mörg ár. Virðing, natni og hlýja var í hávegum höfð. Kaffisopa og kræsingar bar mamma svo fram þegar nemendurnir góðu þurftu að teygja úr sér. Hún var dugleg að skrásetja minningar sem við börnin áttum með henni og pabba, bæði í orð- um og myndum. Vinum okkar systkinanna þótti afar eftir- sóknarvert að koma í Miðtúnið og taka þátt í þeim ævintýrum sem þau sköpuðu fyrir okkur systkinin. Yndislegt dæmi um það er þegar í afmæli Kollu systur var haldin skírnarathöfn, en þá var lítill og sætur kett- lingur skírður og auðvitað var hann í skírnarkjól sem mamma hafði saumað. Afmælisgestur brá sér í hlutverk prests í hempu, undirleikari fullkomnaði athöfnina og gestir sungu sálm. Svona voru mamma og pabbi, þvílík gæfa að hafa átt þau sem foreldra. Ég var hamingjusamt barn sem bjó við ást og öryggi. Ég naut þess að mamma var heimavinnandi og var alltaf til staðar. Ég fékk ómældan tíma, athygli og umhyggju, og þegar vinkonur voru í heimsókn komu þau óumbeðin með bakka með kræsingum. Fyrir eitt afmælið mitt saumaði mamma indíána- tjald sem pabbi skreytti og allir afmælisgestir fengu indíána- band um ennið, búið til af þeim. Piparkökuhús voru ekki aðeins um jól, heldur líka á afmælum og þá bættust við hestakerrur og furðuverur, allt fagurskreytt. Það var mömmu þungbært að flytja úr fallegu litlu íbúðinni sinni í Brekkubænum sem hún hafði búið í sem ekkja í 14 ár. Hún var hamingjusöm þar í ná- býli við Sigurð Rúnar son sinn, Önnu Maríu og þeirra fjöl- skyldu. Hún hafði stóran pall sem hún nýtti til fullnustu, enda mikill sóldýrkandi. Hún fór í langar göngur um Elliðaárdal- inn og stutt var í sund. Mamma þáði sjaldan hjálp frá nokkrum, hún var allt of sjálfstæð og stór- brotin kona til að gera slíkt. Hún fór ein út í stórhríð og endaði svo jafnvel haldandi dauðahaldi í ljósastaur svo þessi litla og létta kona fyki ekki út í buskann. Minningarnar streyma fram, nú þegar mamma hefur fengið hvíldina sem hún hafði svo lengi þráð. Það er erfitt að horfa á eftir henni en á margan hátt ljúfsárt og hughreystandi þegar löngu og gjöfulu lífshlaupi er lokið, hvíldin ljúf að loknu góðu dagsverki. Víst er að mamma skilur eftir sig spor í hjarta mínu svo ég verð aldrei söm og áður. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Þín dóttir, Auður Stefanía. Það er komið að kveðjustund. Minningar um einstaka konu líða um hugann. Smávaxna, fal- lega, fluggreinda konu, sem var mér kær vinkona í yfir 30 ár. Fagurkera og náttúruunnanda sem alltaf tókst að gera um- hverfi sitt ævintýralegt og hlý- legt. Eiginlega var hún Sigríður mín fjöllistakona. Mér fannst hún geta allt. Hún var sem að- alpersónan í ævintýri sem hún skapaði fjölskyldu sinni og sam- ferðafólki. Hún málaði postulín með blómum og jólasveinum af mikilli snilld, saumaði út, prjón- aði, heklaði, batt inn bækur, bjó til myndabækur fyrir börnin mín, þurrkaði blóm sem hún skreytti kort með og svo margt fleira. Það sem hún tók sér fyr- ir hendur var unnið af natni, al- úð og kærleika. Aldrei var valin einfaldasta og fljótlegasta leið- in, heldur frekar sú sem gæfi bestu og vönduðustu útkomuna. Minningar um Miðtúnið nota- lega hjá Sigríði og Sæmundi, Ferjuvoginn fína og síðan kjall- arann hennar hjá okkur í Brekkubænum. Ævintýraheimar með postulínsherbergi sem ang- aði af olíumálningu og sköpunar- gleði, fallegum málverkum og listaverkum út um allt, spiladós- um í tugatali og dúkkum af öll- um stærðum og gerðum. Enda- laus hlýja. Minningar um konu sem var snillingur í að hrósa fólki og laða fram það besta í því með hlýju sinni og skarpskyggni. Minningar um rólega og ljúfa konu sem samt var ákveðin og kröfuhörð. Minningar um mikinn húm- orista sem gaman var að hlæja með en líka konu sem hafði svo góða nærveru að maður gat átt með henni notalegar stundir þar sem báðum leið vel í þögn- inni. Minningar um náttúrubarnið Sigríði sem laðaði að sér smá- fugla í hópum hvar sem hún bjó. Sigríði sem ræktaði rósir, gulrætur og jarðaber. Náttúru- barnið sem gat gleymt sér í berjamó lengur en nokkur ann- ar, runnið saman við berjalyng- ið ein með mjólkurbrúsann sinn. Ég held að hún hafi í rauninni verið lífrænt ræktuð stelpa frá Austfjörðum. Það er auðvelt að sjá hana fyrir sér á unga aldri trítlandi um í berjamó um aust- firskar heiðarnar sínar. Minningar um ævintýralega ömmu sem skapaði einstakan ævintýraheim fyrir börnin mín. Varðeldur með Sæma afa niðri í fjöru, mála saman á postulín, jólasveinar, álfar og huldufólk. Minningar um bóngóða konu sem alltaf var til taks til að spjalla eða aðstoða. Takk fyrir samveruna, kæra vinkona, ég er rík að hafa átt þig að. Ég veit að þú varst tilbúin að yfirgefa þessa jarð- vist og það er gott að þú hefur öðlast hvíld. Þín Anna María. Amma mín. Ég á svo margar fallegar minningar um Sigríði ömmu mína sem var mér svo of- boðslega kær. Minningar um ömmu sem hlýjaði mér á hönd- unum í hvert einasta sinn sem við hittumst, ömmu sem bakaði karamellukökur, ömmu sem borðaði súrt hlaup og gretti sig, ömmu sem leysti krossgátur, ömmu sem naut náttúrunnar jafn vel og lítill skógarþröstur, ömmu sem sendi tyggjó- fingurkoss, ömmu sem var ynd- isleg. Ég heyri hláturinn hennar ömmu. Mig langar að vera 12 ára, fara niður til ömmu minn- ar, spila við hana rommý og borða með henni hnetutopp, það væri toppkvöld. Ég geri það í huganum. Þessar venjulegu stundir með ömmu minni eru mér svo dýrmætar. Það er ynd- islegt og einstakt að hafa getað, í tæp 15 ár, skotist niður til ömmu og átt stutta eða langa stund saman, talandi eða þegj- andi, borðandi eða fastandi, horfandi eða dottandi. Mér þyk- ir svo vænt um ömmu mína sem er farin úr litla líkamanum sín- um. Hún er ekki farin frá mér. Amma verður alltaf hjá mér og ég sé til þess að fleiri litlir af- komendur hennar fái að heyra um hana í framtíðinni. Í Skorradalnum er brekka sem heitir í okkar huga Ömmu- brekka. Þar tíndum við saman bláber en enginn hafði eins mikla þolinmæði fyrir og nautn af tínslunni og Sigríður amma. Hún tíndi bláber heilu dagana í hvaða veðri sem er, marga lítra af berjum í hverri ferð. Svo var hlegið þegar við fundum ömmu, mörgum klukkustundum eftir að við gáfumst upp á tínslunni, með hendurnar undir girðingu að tína ber af næstu lóð, því að sjálfsögðu er grasið alltaf grænna hinumegin við girð- inguna. Einhvern veginn finnst mér svo skrítið að vera að skrifa minningarorð um Sigríði ömmu sem hélt sjálf að hún væri ódauðleg. Ég hélt hún yrði elsta kona í heimi. Það var sama hvað kom fyrir og hvað hún gekk í gegnum, hvort hún væri níræð og lærbrotin eða með gat á hausnum, alltaf reis hún upp af krafti. Hún sagðist sjálf ekki skilja hvernig maður færi nú að því að drepast, hún væri nú bú- in að lenda í ýmsu og ekkert virkaði. Morguninn sem amma mín skildi við litla líkamann sinn var himinninn svo fallegur. Það var heiðskírt og bjart, himinninn var alveg blár, ljósblár. Ég er viss um að afi hafi verið að und- irbúa komu hennar, þess vegna var himinninn bara blár, hann hafði ekki tíma til að mála. Amma var alveg tilbúin í ferðalagið til afa, hún var búin að pakka í blómatöskuna sína, fara í ljósbláu úlpuna sína og setja á sig flíshattinn. Það er ég viss um. Hún var tilbúin að falla saman við náttúruna, verða sjálf að náttúrunni. Sigríður amma kvaddi mig með orðunum „það er enginn skemmtilegri en við“. Það eru, held ég, bestu orð sem hægt er að kveðja með, enda orð að sönnu, það er enginn skemmti- legri en við. Elsku amma mín, ég hlakka til að hitta þig aftur. Þín Tinna. „Hún amma þín er svo ynd- islega mikið krútt,“ fékk ég oft að heyra, eftir að fólk mér tengt hafði hitt hana. Já, hún var lítil, pen, sæt og ofurljúf, en það var bara brot af því sem amma var. Hún var hlý, með mýkstu hend- ur sem ég hef fengið að strjúka og eins nett og hún var, þá hafði hún að geyma stóra per- sónu og mikla manngæsku sem hún sparaði hvergi. Hún hafði húmor fyrir lífinu og undanfarið hef ég staðið sjálfa mig að því að hlæja með sjálfri mér að gráglettnum athugasemdum hennar og dillandi hlátrinum sem ég heyri núna svo ótrúlega vel. Sem barn var ég svo lánsöm að búa nálægt ömmu og afa í Miðtúni og þar lifa ótal minn- ingar sem yndislegt er að ylja sér við. Amma og afi voru natin og einstaklega uppfinningasöm og í Miðtúninu var bæði skemmtilegt og gott að vera. Leikir og gleði og lífið löguðu þau að ungviðinu svo okkur leið eins og við værum mikilvæg- ustu manneskjur í heimi. Ilmur af ristuðu brauði með „riffluðum osti“ minnir mig allt- af á ykkur og sömuleiðis ynd- islega lyktin af olíunni sem við hrærðum og blönduðum postu- línslitina með. Heimabökuð pitsa með indíánablóði á föstu- dagskvöldum og Prúðuleikar- arnir. Þið voruð dásamlegt fólk. Vá, hvað ég er rík, og við öll, að hafa átt allar þessar ljúfu og skemmtilegu stundir með ykkur afa. Menntskælingurinn ég var ekki í vafa hvaða skóli yrði fyrir valinu, auðvitað sá sem þið bjugguð við hliðina á. Fleiri stundir, meiri hlýja og dásam- legar minningar úr Ferjuvog- inum. Þreytta námsstelpan, sem laumaði sér inn hjá ykkur í morgunsárið þegar sófinn og samvera með ykkur freistaði meira en skólabækurnar, rumskaði iðulega við að annað hvort ykkar var ljúflega að pakka mér inn í teppi og strjúka kinn. Þið lifið sterkt áfram, elsku amma mín og afi. Molunum mínum þremur er pakkað inn í teppi á sama hátt og þið gerðuð, þeir fá örlátlega af hlýju, koss- um og blíðum strokum á kinn. Til þeirra eru gerðar kröfur um fallegt og gott mál og þeir læra að segja bless en ekki bæ bæ. Hér er grjónagrautur eldaður reglulega, piparkökur skreyttar á aðventu og eldhúsgólfið þríf ég á fjórum fótum með tusku og bakka út, rétt eins og þú gerðir, og enginn má vera fyrir. Ég kemst þó ekki með tærnar þar sem þið höfðuð hælana í uppá- tækjum og skemmtilegheitum. Árin sem við bjuggum hlið Sigríður Þórðardóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR húsfreyja, Ingjaldsstöðum, Þingeyjarsveit, sem lést laugardaginn 17. janúar, verður jarðsungin frá Þorgeirskirkju laugardaginn 24. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík. . Atli Sigurðsson, Elma Atladóttir, Þráinn Óskarsson, Ragna Atladóttir, Sigurður Atlason, Berglind Gunnarsdóttir og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA KRISTÍN ÞÓRARINSDÓTTIR, Forsæti II, Flóahreppi, andaðist á Fossheimum Selfossi sunnudaginn 11. janúar. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 24. janúar kl. 13.00. Jarðsett verður í Villingaholtskirkjugarði. Þeir sem vildu minnast hinnar látnu vinsamlegast láti Vinafélag Ljósheima og Fossheima njóta þess. Guðbjörg Þ. Gestsdóttir, Þráinn Elíasson, Kristján Gestsson, Anna Guðbergsdóttir, María Gestsdóttir, Böðvar Sverrisson, Valgerður Gestsdóttir, Bjarki Reynisson, Lárus Gestsson, Elísabet Pálsdóttir og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STURLA EIRÍKSSON framkvæmdastjóri, lést mánudaginn 19. janúar. . Solveig Thorarensen, Ingunn Ósk Sturludóttir, Björn Baldursson, Rósa Sturludóttir, Óskar Sturluson, Þorgerður Jörundsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Móðir okkar, amma og langamma, ODDNÝ ÞÓRARINSDÓTTIR, Kleppsvegi 132, frá Starmýri, Álftafirði, er látin á 98. aldursári. Útförin auglýst síðar. Sigríður Hermannsdóttir, Stefán Ingi Hermannsson, barnabörn og langömmubörn. ✝ Ástkær sonur minn og bróðir okkar, STEFÁN ÞÓR JÓNSSON Hamraborg 34, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Fossvog mánudaginn 19. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Inge Löwner Valentínusson og systkini. ✝ Okkar ástkæri SIGTRYGGUR JÓNSSON, Austurbyggð 17, Akureyri, frá Samkomugerði í Eyjafjarðarsveit, lést föstudaginn 16. janúar. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 26. janúar kl. 13.30. Halldóra J. Jónsdóttir, Halla Lilja Jónsdóttir, Sigfús Jónsson og Ólafur Jóhann Borgþórsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.