Morgunblaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
Í átta vikna ferðalagi blaðamanna Morgunblaðsins um
hverfin í Reykjavík og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu
er fjallað ummannlíf og menningu, atvinnulíf og opinbera
þjónustu, útivist og umhverfi og skóla og skipulag með
sérstakri áherslu á það sem einkennir hvern stað.
„Kópavogur var áfangastað-
urinn þegar ég flutti suður fyrir tíu
árum. Þá var ég að elta vinkonur
mínar og slíta naflastrenginn,“ segir
Hrafnhildur. „Eitt leiddi svo af öðru í
flutningunum, mér bauðst vinna á
leikskóla í Hafnarfirði og daginn eftir
að gengið var frá vinnu var auglýst í
Mogganum lítil og þægileg íbúð í
Hvömmunum sem við fengum. Okk-
ur var greinilega ætlað að flytja í
Fjörðinn fagra. Það var svo 2012 sem
við fluttum hingað á Vellina og svo
árið eftir hingað í ágæta fjögurra
herbergja íbúð sem er í húsi við
Drekavelli. Gáfum fyrir 29 milljónir
króna svo þetta er svolítil brekka í af-
borgunum til að byrja með.“
Leitum ekki til ömmu og afa
Hrafnhildur og Jóhann Thor-
leifsson, maður hennar, eiga tvo syni;
Kristófer Andra sem er sex ára og
Andra Breka sem er tveggja ára.
Þeir eru báðir í Hraunvallaskóla, sá
eldri í 1. bekk grunnskólans en sá
yngri í leikskóladeild. Og hér er allt í
sama pakkanum ef svo má segja, því
Hrafnhildur starfar við skólann þar
sem hún er stuðningsfulltrúi nem-
enda í 2. bekk. Jóhann, sem vinnur
aftur á móti á bílaverkstæði Heklu
inni í Reykjavík, á fyrir þrjú eldri
börn.
„Við erum bæði utan af landi,
maðurinn minn frá Akureyri og ég
frá Egilsstöðum. Já, og eðlilega gerir
það hlutina stundum snúna að flest af
okkar fólki býr úti á landi. Við leitum
því ekkert til ömmu og afa ef þarf að
redda pössun. Höfum hins vegar
stóran hóp vina sem má leita til og
þetta gengur því alltaf upp. Þó það
nú væri.“
Hamrað á í lestrarnámi
Hraunvallaskóli er einn fjöl-
mennasti barnaskóli landsins, enda í
hverfi sem er til þess að gera nýtt og
er að byggjast upp. Þarna eru um
830 nemendur, á leik- og gunn-
skólastigi. Á hefðbundnum starfs-
degi er skólinn nærri því 1.000
manna samfélag. Og þetta er næsta
bygging við fjölbýlishúsið við Dreka-
vellina þar sem Hrafnhildur og henn-
ar fólk búa.
„Nálægðin er þægindin ein. Mér
finnst líka vel staðið að starfinu í
skólanum. Það er vel haldið utan um
þá krakka sem einhvers meira þurfa
með, í því meðal annars felst starf
mitt sem stuðningsfulltrúi. Hjá eldri
stráknum er lestrarnámið mál mál-
anna, hann er núna með bókina Dúf-
ur í Dalabæ og gengur vel. Dúfur,
sagði, gaman, dósin, kofinn og dösuð
– þetta eru orðin sem við mæðginin
höfum hamrað á í lestrarnáminu að
undanförnu,“ segir Hrafnhildur sem
líkar vel sá háttur sem hafður er á
samstarfi heimila og skóla. For-
eldrum sé haldið vel upplýstum um
áherslur, árangur og náms-
framvindu.
„Frá kennurum koma nokkrir
tölvupóstar í hverri viku. Þetta held-
ur fólki vel við efnið,“ segir Hrafn-
hildur.
Bærinn mæti barnafólki
Hafnarfjarðarbær gerir vel við
fólkið sitt, að mati Hrafnhildar.
Hlekkir keðjunnar eru sterkir og
kerfið virkar. En mörgu má bæta úr.
Bærinn má til dæmis koma betur til
móts við barnafólk. „Yngri strák-
urinn okkar er í leikskóla sex klukku-
stundir á dag og fyrir það borgum við
27.176 krónur á mánuði. Það mætti
líka hækka tómstundastyrk krakk-
anna. Fleira svona gæti ég talið
áfram,“ segir Hrafnhildur um hvers-
dagslífið á Völlum.
„Góð íþróttaaðstaða skiptir fólk
miklu máli. Fyrir fjölskyldufólk er
frábært að hafa sundlaug hér í Ás-
vallahverfinu, þar er innilaug sem er
vinsæl meðal barnafólks og svo eru
hér gönguleiðir um allt. Fyrir lands-
byggðarstelpu eins og mig er fínt að
vera á Völlunum. Hér hef ég fundið
mig heima. Hverfið er að verða gróin
heildstæð byggð þó að auðvitað sé
svipur þess allt annar er skóganna
austur á Fljótsdalshéraði þar sem ég
ólst upp. Nú finn ég mig hins vegar
eiga heima í Hafnarfirði .“
Húsverk Jóhann og synirnir tína hið daglega brauð upp úr Bónuspokunum. Cheerios er sígildur morgunmatur.
Samvera Góð fjölskyldustund að kvöldi eftir langan vinnudag, Hrafnhildur Heiða og Jóhann með synina sína tvo.
hverfið er, allar íbúðir í Hafnarfirði
sem eru tveggja til fimm herbergja
fara mjög fljótt. Verð er yfirleitt
mjög svipað hvar sem borið er nið-
ur í bæ,“ segir Eiríkur Svanur.
Vinnur með sölu
og eflir hverfin
En víkjum sérstaklega að Völl-
unum. „Vel þykir staðið að öllu í
Hraunvallaskóla, íþróttastarfinu
hjá Haukum og þá er lágvöruverðs-
verslun þarna. Svona allt vinnur
með sölu og eflir hverfin,“ segir Ei-
ríkur. Hvað áhrærir eldri hverfin í
bænum segir Eiríkur þau almennt
halda gildi sínu. Setbergshverfið
sem byggt var fyrir rúmum ald-
arfjórðungi sé vinsælt; vel afmark-
að og sé nánast eyja í bænum.
„Eignir þar eru yfirleitt stórar, eru
250 til 300 fermetrar og kosta
stundum öðrum hvoru megin við 60
milljónir króna. Það tekur stundum
tíma að selja slíkar eignir, en þær
fara alltaf á endanum.“
Aðrir sem starfa á fast-
eignamarkaði sem Morgunblaðið
ræddi við segja Hafnarfjörð vera að
styrkjast í sessi. Þess séu dæmi frá
síðustu misserum að fólk til dæmis
flytji úr litlum eignum í eldri hverf-
um Reykjavíkur og fari í Fjörðinn.
Fái þar stærri eignir fyrir sama
verð og séu áfram í iðandi miðbæj-
arlífi.
Morgunblaðið/Eggert
Hafnarfjörður Horft af Hamrinum. Austurgata, Fríkirkja og Hellisgerði.
3 ára ábyrgð
Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
Tölvur og fylgihlutir
In Win
tölvur eru
áreiðanlegar,
öflugar og
endingagóðar
Sendum hvert á land sem er
In Win Gamer Pro
• Örgjörvi: AMD AM3+ X6 FX 6300 3.5 GHz
• Vinnsluminni: 8 GB DDR3 1600 MHz
• Skjákort: Sapphire AMD Radeon R9 280 3 GB OC
• Harður diskur: Samsung 840 EVO 250 GB SATA
• Stýrikerfi: Windows 8.1 64ra bita
• Netkort: 1 Gbit kapaltengt og Wireless-N þráðlaust
Verð 149.900 kr.
In Win Gamer
• Örgjörvi: Intel i3-4150 3.5 GHz 3M Haswell
• Vinnsluminni: 4 GB DDR3 1600 MHz
• Skjákort: EVGA nVidia GeForce GTX750 1 GB
• Harður diskur: Kingston V300 SSD 120 GB
• Stýrikerfi: Windows 8.1 64ra bita
• Netkort: 1 Gbit kapaltengt og Wireless-N þráðlaust
Verð 109.900 kr.
Þriggja ára
ábyrgð til bæð
i
fyrirtækja og
einstaklinga