Morgunblaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
Á fallegum og notalegum stað
á 5. hæð Perlunnar
Næg bílastæði
ERFIDRYKKJUR
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200
VIÐTAL
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Við höfum miklar áhyggjur af stöð-
unni en vísum á bug fullyrðingum um
að við séum með okkar útreikningum
að ráðast sérstaklega að láglaunafólki
eða leggja ábyrgðina í hendur til-
teknum hópum í
þjóðfélaginu.
Efnahagslegur
stöðugleiki er sam-
eiginleg ábyrgð
okkar allra. Þá er
mikilvægt að
launaþróun allra
hópa sé sambæri-
leg. Forysta
verkalýðshreyfing-
arinnar getur ekki
gefið sig ábyrgðarleysinu algjörlega á
vald, eins og virðist vera að gerast
núna. Afleiðingar tuga prósenta
launahækkana yrðu í okkar huga
skelfilegar,“ segir Þorsteinn Víg-
lundsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins (SA), um gagnrýni
verkalýðsleiðtoga á útreikninga SA á
áhrifum þess á verðbólgu ef laun á al-
mennum vinnumarkaði hækkuðu til
jafns við laun lækna.
Þar reiknuðu SA m.a. út að 30%
launahækkun myndi á tveimur árum
auka kaupmátt um 2% á meðan 3,5%
hækkun á ári myndi skila 4% kaup-
máttaraukningu. Þá var reiknað út að
verðbólgan færi í 27% og það myndi
hækka skuldir heimilanna um 500
milljarðar króna.
Sögulegt tækifæri
Þorsteinn segir í samtali við Morg-
unblaðið að sögulegt tækifæri sé til að
byggja upp lífskjör á grundvelli stöð-
ugleika eftir síðustu samninga við að-
ildarfélög ASÍ. Á undanförnum 12
mánuðum hafi verðbólga verið um 1%
og kaupmáttaraukning um 5%.
„Það er einn besti árangur sem við
höfum náð, án þess að það sé einhver
ofþensla í samfélaginu. Við höfum
aldrei upplifað slíka kaupmáttar-
aukningu á einu ári, að frátöldum ör-
fáum árum með efnahagslegri of-
þenslu. Það er sorglegt ef þessum
einstaka árangri verður glutrað nið-
ur,“ segir hann.
Þorsteinn telur tímabært að for-
ystumenn í verkalýðshreyfingunni
verði ábyrgari í yfirlýsingum.
„Í öllum nágrannaþjóðum okkar
hafa menn fyrir löngu gert sér grein
fyrir mikilvægi þess að launaþróun sé
í samræmi við forsendur stöðugs
verðlags, ef árangur í efnahags-
málum og raunveruleg kaupmáttar-
aukning á að nást. Deilur um hvort
hér á landi sé svigrúm til tuga pró-
senta launahækkana, eins og ítrekað
vakna í tengslum við kjaraviðræður,
er löngu búið að útkljá hjá öðrum
norrænum þjóðum. Þar er rætt um
að skipta svigrúmi sem liggur á bilinu
2-4% á ári. Annars staðar á Norður-
löndum dettur engum ábyrgum aðila
í hug að hægt sé að hækka laun í einni
svipan um tugi prósenta án þess að
það hafi veruleg áhrif á verðbólgu og
atvinnustig. Kröfur af því tagi eru
ekkert annað en kröfur um stóraukna
verðbólgu í þjóðfélaginu og hrinu
gjaldþrota. Það væri óhjákvæmileg
afleiðing slíkra kjarasamninga. Menn
verða þá að tala um áhrif þess alla leið
og reikna út afleiðingarnar fyrir allt
þjóðfélagið,“ segir Þorsteinn.
SA vöruðu við kröfum lækna
Hann segir að með tali um tuga
prósenta launahækkanir séu endur-
vaktar umræður sem fóru fram ára-
tugina fyrir þjóðarsáttina 1990.
„Lærdómurinn sem dreginn var af
þeirri þróun varð einmitt uppleggið
að þjóðarsáttinni, þar sem menn
komu einfaldlega uppgefnir eftir ára-
tuga óðaverðbólgu og sögðu einfald-
lega: Við getum þetta ekki lengur.
Við verðum að ná tökum á þessu
ástandi. Uppleggið í þeim samning-
um var að það yrði að semja um hóf-
legar launahækkanir til að hemja
verðbólguna. Það tókst og í kjölfarið
kom tímabil með stöðugu gengi, stöð-
ugu verðlagi, auknum kaupmætti og
mikilli framleiðniaukningu í atvinnu-
lífinu. Óstöðugleikinn hefur aldrei
fært okkur annað en lakari frammi-
stöðu í atvinnulífinu og þar af leiðandi
minna svigrúm til raunverulegra
kauphækkana. Við megum aldrei
missa sjónar á þeim lærdómi sem
draga má af aðdraganda þjóðarsátt-
arinnar. Það er í mínum huga enginn
kostur að endurvekja það þjóðar-
ástand sem þá var. Tjón í atvinnulíf-
inu yrði mikið og væri heldur ekki
uppskriftin að því að bæta samkeppn-
isstöðu okkar í samanburði við ná-
grannalöndin,“ segir Þorsteinn og
bendir á að SA hafi varað við þessu
fyrir nýgerða læknasamninga.
„Við stöndum áfram við þau varn-
aðarorð. Það er engin leið að hækka
laun um tugi prósenta öðruvísi en að
óðaverðbólga fylgi í kjölfarið. Með
okkar útreikningum erum við ekki að
ráðast á ákveðna hópa. Við sögðum
fyrirfram, fyrir gerð læknasamninga,
að þessar kröfur væru óraunhæfar og
það væri engin leið fyrir einn hóp í
samfélaginu að ætla að rífa sig svona
frá heildinni án þess að þeirra kröfur
eða samningar hefðu áhrif á það sem
á eftir kæmi. Ólgan vegna kennara-
samninga lá fyrir þegar samningur
við lækna var gerður.“
Þorsteinn segist hafa skilning á því
að fólki finnist það ekki réttlát skipt-
ing, að einn tekjuhæsti hópurinn fái
langmestu prósentuhækkunina.
„Það breytir því ekki að sömu
hækkanir yfir alla aðra hópa sem á
eftir koma þýðir einfaldlega verri
stöðu en ella. Það mun allt glatast í
óðaverðbólgu.“
Þorsteinn segir ákveðna galla vera
við núverandi vinnumarkaðslíkan. Sá
hópur sem hafi beittasta verkfalls-
vopnið hafi ávallt sigur í launaþróun,
óháð því hvort kröfurnar séu sann-
gjarnar eða viðkomandi hópur hafi
setið eftir í launaþróun eða ekki.
Köllum yfir okkur kollsteypu
„Það er umhugsunarefni þegar
engin krafa er um meðalhóf eða rétt-
lætisspurningu þegar kemur að verk-
fallsboðun, sé það sá hópur sem vald-
ið getur mestum skaða sem á
endanum sækir hæstu launabreyt-
ingarnar. Slíkt líkan mun aldrei skila
stöðugleika. Við verðum að fara í um-
bætur á umgjörð vinnumarkaðarins
og byggja þar á þeim grunni sem við
fórum af stað með í síðustu samn-
ingum, án þess að ganga á verkfalls-
rétt launamanna.“
Spurður hvort það takist að fara í
slíkar umbætur í komandi kjara-
viðræðum segir Þorsteinn:
„Við erum með mjög alvarlega
stöðu fyrir komandi viðræður. Sú
staða fer ekki frá okkur. Mikil tor-
tryggni ríkir gagnvart stjórnvöldum
og misræmi er í launaþróun einstakra
hópa, þar sem opinberi markaðurinn
hefur farið langt út fyrir þann ramma
sem mótaður var í síðustu samn-
ingum SA og aðildarfélaga ASÍ. Það
er erfitt að kljást við þetta en við
verðum að finna lausnina. Hinn val-
kosturinn, að velta miklum hækk-
unum yfir á vinnumarkaðinn, er ekki
kostur í mínum huga og leiðir til mik-
ils tjóns í okkar umhverfi og myndi
afmá þann árangur sem náðist í kjöl-
far síðasta hruns. Það er til mikils að
vinna að forðast þann skaða. Að öðr-
um kosti erum við að kalla yfir okkur
kollsteypu eins og varð hér 2008 og
2009.“
Telur hættu á óðaverðbólgu
Framkvæmdastjóri SA varar við áhrifum launahækkana um tugi prósenta
Segir stöðuna alvarlega Verkalýðsleiðtogar verði ábyrgari í yfirlýsingum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vinnumarkaður Allt stefnir í mikla hörku í kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði. Verkalýðsfélögin munu
taka mið af samningum við lækna og kennara. Samtök atvinnulífsins telja ekki innistæðu fyrir miklum hækkunum.
Þorsteinn
Víglundsson
Kröfugerðum skilað
» Samninganefnd Starfs-
greinasambands Íslands fundar
í dag þar sem móta á sameigin-
lega kröfugerð fyrir komandi
kjaraviðræður.
» Verður kröfugerðin lögð fyrir
Samtök atvinnulífsins (SA) í lok
þessa mánaðar.
» Þorsteinn Víglundsson segist
ekki vilja tjá sig um sjálfa kröfu-
gerðina fyrr en hún liggur fyrir.
„Skuldsett fyrir-
tæki eins og
RÚV, með skuld-
ir upp á eina 5,5
milljarða króna
er afskaplega við-
kvæmt fyrir verð-
bólguskotum.
Það sjá það allir
sem eru þokka-
lega fjármála-
læsir,“ segir
Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóri en á fundi Blaðamannafélags-
ins og Félags fréttamanna í fyrra-
kvöld um sviptingar á fjölmiðla-
markaði vék hann m.a. að fjár-
hagsstöðu RÚV. Hafði Magnús Geir
orð á því að RÚV myndi illa ráða við
frekari skuldsetningu, færi verð-
bólgan af stað.
Gamlar lífeyrissjóðsskuldbind-
ingar eru langstærsti hlutinn af
skuldum RÚV, eða um 65%. Magnús
Geir segir það hafa m.a. komið fram
í skýrslu PWC sl. vor um fjárhags-
stöðu RÚV að félagið væri yfir-
skuldsett og gæti ekki staðið við
skuldbindingar sínar. Jafnframt
væri það viðkvæmt fyrir aukinni
verðbólgu.
Verðbólgu-
skot færi
með RÚV
Miklar skuldir
Magnús Geir
Þórðarson
Á fundi bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar í gær var deiliskipulag
fyrir Ásvallabraut, veg sem tengir
saman Ásland og Velli, samþykkt.
„Ásvallabrautin er mikil sam-
göngubót, ekki bara fyrir akandi
heldur líka fyrir göngu- og hjól-
reiðafólk en samhliða brautinni
verða lagðir hjólastígar,“ er haft
eftir Ólafi Inga Tómassyni, for-
manni skipulags- og byggingaráðs
Hafnarfjarðar, í fréttatilkynn-
ingu.
Nú standa yfir viðræður við
Landsnet um færslur á rafmagns-
línum sem liggja í jaðri Valla-
hverfisins en sú tilfærsla gerir
kleift að hefja uppbyggingu á ný í
Skarðshlíðinni. 13 ár eru liðin síð-
an fyrsti íbúinn flutti inn í Valla-
hverfið. Hverfið hefur byggst
hratt upp og nú búa þar um 4.900
manns. Með tilkomu Ásvallabraut-
ar tengjast Vellirnir við Áslandið.
Brautin mun liggja frá Lindar-
torgi yfir hrygg milli Ásfjalls og
Vatnshlíðar og tengist Kaldársels-
vegi um gatnamót Brekkuáss.
„Með þessu tengjum við saman
tvö nýjustu hverfi bæjarins og er-
um komin með braut sem mun
þjóna byggingarsvæðum sem fyr-
irhuguð eru í framtíðinni,“ segir
Ólafur Ingi. Ásvallabraut verður
boðin út í vor. Áætluð verklok eru
2017.
Ásvallabraut sam-
þykkt í bæjarstjórn