Morgunblaðið - 22.01.2015, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 22.01.2015, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015 HAFNARFJÖRÐUR H EI MS ÓKN Á HÖFUÐBO R G A R S V Æ Ð IÐ 2015 Hellisgerði heitir skrúðgarður Hafnfirðinga en hann varð til árið 1922 fyrir tilstuðlan Málfunda- félagsins Magna. Þar leynist Álfa- garðurinn, lítið fyrirtæki í eigu hjónanna Ragnhildar Jónsdóttur og Lárusar Vilhjálmssonar. „Við erum með aðstöðu í litlu gömlu húsi í garðinum en við köll- um þetta upplýsingamiðstöð um álfa,“ segir Ragnhildur kímin í samtali við Morgunblaðið. „Þar er- um við með listmuni og handverk til sölu, ásamt bókum og borð- spilum sem við höfum samið um álfa og huldufólk og gefið út.“ Hinar svokölluðu álfagöngur eru þó lykilhluti Álfagarðsins að sögn Ragnhildar og hafa frá upphafi not- ið mikilla vinsælda. „Þá leiði ég fólk um Hellisgerði og segi frá verunum sem hér búa. Um auðugan garð er að gresja þar sem hér má finna bæði álfakirkju og huldufólkshöll. Alls staðar, um allan heim, þar sem náttúran er óskemmd, þar eru hulduverur af einhverju tagi,“ segir Ragnhildur og bætir við að í garðinum finnist einnig óvenjulega sjaldgæf flóra. Má þar finna tegundirnar skóg- arbeyki, hrossakastaníu og dögl- ingsvið á meðal annarra trjáa. Þá þykir álfabyggðin þétt í garðinum. „Hér er eiginlega hálfgerð álfa- borg í miðjum bænum. Það er eitt- hvað við þetta hraun sem bærinn er byggður á, Búrfellshraunið, sem laðar að sér þessar verur. Hérna í gamla bænum er til að mynda mikið af álfum sem búa í görðum hjá fólki, eða kannski erum það við sem búum í garðinum hjá þeim. Þau voru jú hér á undan.“ sh@mbl.is Huldufólkshöllin í Hafnarfjarðarbæ Morgunblaðið/Golli Sumar Fjöldi álfa og huldufólks býr í Hellisgerði. Ragnhildur Jónsdóttir hefur haft af þeim góð kynni og stofnaði hún Álfagarðinn sumarið 2011. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hverdagsleikinn og verkefni hans geta verið púsluspil. Stundum er í raun alveg full vinna að láta kapalinn rekja sig; að koma strákunum í skól- ann, sinna vinnu, fara í búð og aðra snúninga og stilla útgjöldin þannig af að endar nái saman. Og svo verður fullorðið fólk, við hjónin, líka að finna eða búa lausar stundir til eð eiga saman. Það þurfa að vera eyður í stundatöflunni,“ segir Hrafnhildur Heiða Jónsdóttir í Hafnarfirði. Afborganir eru brekka Hið daglega líf er hér í brenni- depli. Hjarta samfélagsins slær í út- hverfunum og þar er framtíðin holdi klædd, ungt barnafólk sem er að skapa sér og sínum farsæla framtíð. Þetta er á þeim bæjum þar sem vekj- araklukkan glymur klukkan hálfsjö á morgnana. Þá er ræs og dagurinn bíður. Þéttskipuð dagskrá er fram- undan. Sjálfsagt þekkja allir þennan takt í daglegu lífi. Og hér er gerð að minnsta kosti tilraun til að fanga „hvernig okkar lífi í þessu landi/ er lifað og í raun og sann varið,“ eins og Þórarinn Eldjárn orti. Morgunblaðið/Kristinn Lestur Heimanám er samvinna og hér eru þau Hrafnhildur Heiða og Kristófer Andri í bókunum að læra að kveða að. Fullorðna fólkið þarf eyður í stundatöfluna  Svipmynd úr venjulegu hversdagslífi fjölskyldu á Völlunum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Leiðrétting stjórnvalda á verð- tryggðum húsnæðislánum hefur skapað mörgum svigrúm til að geta til dæmis stækkað við sig húsnæði eða gert annað sem þarf,“ segir Ei- ríkur Svanur Sigfússon, lögg. fast- eignasali á Fast- eignasölunni Ási í Hafnarfirði. „Ungt fólk sem keypti sína fyrstu eign kannski á ár- unum 2006 til 2008 og er komið með börn er stundum í þeirri stöðu að þurfa að stækka við sig. Skuldi það 20 til 25 milljónir króna er algengt að það fái með leiðrétt- ingunni lán sín niðurfærð um tvær milljónir og tæmist annað eins úr séreignarsjóðum. Með því getur fólk kannski farið úr tveggja her- bergja í þriggja til fjögurra her- bergja eign.“ Bærinn er fullur af húsum, sagði skáldið, og fólk er sífellt að færa sig milli staða. „Árið fer vel af stað og raunar hefur verið ágæt hreyfing á markaðnum síðastliðin tvö ár. Eðlilega hefur lítið verið byggt frá 2008 og því er framboðið á fjölbýlishúsaeignum orðið tilfinn- anlega lítið. Það finnum við núna þegar ungt fólk er að koma inn á markaðinn með sínum fyrstu kaup- um. Það skiptir ekki máli hvert Nýtt svigrúm hefur skapast á markaði  Miðbæjarlífið er aðdráttarafl bæjarins Morgunblaðið/Eggert Fasteignir Gömul hús í hrauninu. Eiríkur Svanur SigfússonÞegar þú vilt njóta hins besta – steik eins og steik á að bragðast Barónsstíg 11 101 Reykjavík argentina.is Borðapantanir 551 9555

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.