Morgunblaðið - 22.01.2015, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 22.01.2015, Qupperneq 35
Þar starfaði Ragna í kaffiverk- smiðju. Þau fluttu síðan til Jótlands 1983 þar sem Ragna vann á tann- læknastofu og var síðan dagmóðir með fimm börn í vistun. Þau fluttu heim í árslok 1986 og Ragna vann við bókhald og verslunarstörf, starf- aði hjá PWC, Fóðurverksmiðjunni Laxá en er nú skrifstofustjóri hjá Stórholti-Toyota á Akureyri. Hún hefur sótt ýmis starfstengd nám- skeið, nú síðast fjarnám frá Bifröst. Ragna var virk í foreldrastarfi hjá KA og Skíðafélagi Akureyrar á ár- um áður. Áhugamál Rögnu snúast um hreyfingu og útivist, hollan mat og prjónaskap en fyrst og síðan um fjöl- skylduna og barnabörnin: „Ég hef gengið á Esjuna, Súlur, Kaldbak, Þingmannaleið, Bíldsársskarð, Hvannadalshnjúk, Tindana 7 sem eru í Glerárdalshringnum og á fleiri skemmtilega staði. Ég fór með 10 vinkonum í göngu um Berninafjöllin auk þess sem við höfum bæði gengið og hjólað saman hér heima. Ég hef lengi notað reiðhjólið sem fararskjóta til og frá vinnu og til ferðalaga, innanlands og utan. Má þar nefna frábæra ferð um Mósel- dalinn ásamt eiginmanni, systur minni og mági. Við hjólum oft til Dalvíkur og víðar um Eyjafjörðinn. Ég hef gaman af gönguskíðum en vil þá gjarnan hefja og enda ferðina á skíðunum heima við hús. Við hjón- in eigum svo húsbíl og höfum farið margar ferðir á honum um landið en þá eru hjólin höfð með í för. Við höfum haft barnabörnin hjá okkur eina viku á ári, nánast frá fæðingu þeirra, og þá án foreldr- anna. Þetta eru sannkallaðar sælu- vikur en þá er farið í sund og í menn- ingar- og gönguferðir sem oft eru endalaus uppspretta ævintýra og fræðslu. Fjölskylda Ragna giftist 26.12. 1973 Jóhanni Gunnari Jóhannssyni, f. 9.1. 1954, bifvélavirkja, tæknifræðingi og plastbátasmið. Foreldrar hans: Guð- rún Halldórsdóttir Aspar, f. 2.1. 1922, d. 25.7. 2014, húsfreyja, og Jó- hann Júlíus Kristinsson f: 30.7. 1921, d. 21.11. 2004, framkvæmdastjóri. Börn Rögnu og Jóhanns Gunnars eru Ragna Kristín, f. 27.5. 1975, við- skiptafræðingur hjá ATP í Dan- mörku en maður hennar er Hlynur Tómasson, MBA, vinnur hjá Otacon og eru börn hennar Baldur Kári, f. 2000, Gunnar Tómas f. 2002, og Kristín Eva, f. 2009; og Egill, f. 9.6. 1982, iðnaðarverkfræðingur hjá HS orku á Íslandi, búsettur á höfuð- borgarsvæðinu og eru tvíburadætur hans Njála Rún og Agla Rut, 2006. Systkini Rögnu eru Oddur Árna- son, f. 11.4. 1941, prentari á Akur- eyri; Sigfríð Erla Ragnarsdóttir, f. 28.7.1943, húsfreyja á Egilsstöðum; Jón Þorsteins Ragnarsson, f. 16.6. 1946, verkamaður á Akureyri; Úlfar Ragnarsson, f. 27.12. 1949, húsa- smiður á Akureyri; Anna Ragnars- dóttir, f. 28.3.1952, skógarbóndi í Skagafirði; Sigríður Ragnarsdóttir, f. 16.3. 1958, stuðningsfulltrúi á Ak- ureyri, og Guðbjörg Inga Ragnars- dóttir, f. 18.8. 1959, skrifstofumaður á Dalvík. Foreldrar Rögnu voru Guðrún Oddsdóttir, f. 27.3. 1918, d. 28.3. 1995, húsfreyja, og Ragnar Stefáns- son, f. 1.5. 1923, d. 20.4. 2007, bif- reiðastjóri hjá Rafveitu Akureyrar. Úr frændgarði Rögnu Óskar Ragnarsdóttur Ragna Ósk Ragnarsdóttir Halldóra Jónsdóttir húsfr. í Tröllatungu Jón Jónsson form., söðlasm. og b í Bolungarvík og í Tröllatungu Sigríður Jónsdóttir húsfr. og b í Hlíð og á Glerá Oddur Lýðsson hreppstj. og b. í Hlíð í Strandas. og á Glerá við Akureyri Guðrún Oddsdóttir frá Glerá, húsmóðir Akureyri Anna Magnúsdóttir húsfr. í Skriðinsenni Lýður Jónsson b., hreppstj. og oddviti í Skriðinsenni í Strandasýslu Hólmfríður Jónsdóttir húsfr. á Végeirsstöðum Kristján Sigurðsson b. og hagleiksmaður á Végeirsstöðum Sigríður Friðrika Kristjánsdóttir húsfr. á Akureyri Stefán Marinó Steinþórsson landspóstur og b. á Akureyri Ragnar Stefánsson bifreiðastj. á Akureyri Helga Stefánsdóttir húsfr. á Hömrum Steinþór Þorsteinsson b. á Hömrum við Akureyri Á toppnum Hér er Ragna með ferðafélögum á Hvannadalshnjúki. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015 Ólafur Magnússon, bóndi oghreppstjóri á Sveinsstöðumí Sveinsstaðahreppi í Húnavatnssýslu, fæddist þar á bæ fyrir einni öld. Foreldrar hans voru Magnús Jónsson, hreppstjóri, og Jónsína Jónsdóttir, frá Hrísa- koti á Vatnsnesi. Magnús var sonur Jóns á Sveinsstöðum Ólafssonar, dbrm. Jónssonar, af Bólstaðarhlíðarætt. Allir voru þeir bændur á Sveins- stöðum. Ólafur, nú bóndi þar, son- arsonur Ólafs, er sá sjötti í beinan karllegg frá 1844. Ólafur átti fimm systkini en meðal þeirra var Jón Magnússon, lengi fréttastjóri ríkisútvarpsins. Eiginkona Ólafs var Hallbera, dóttir Eiríks Ásmundssonar, sjó- manns á Helgastöðum á Stokks- eyri, og Guðbjargar Jónsdóttur. Börn Ólafs og Hallberu eru Gyða, húsfreyja í Hafnarfirði; Magnús, fyrrv. bóndi á Sveins- stöðum; Ásrún, kennari í Reykja- vík; Þórdís, skrifstofumaður í Hafnarfirði; Jónsína, sjúkraliði á Akranesi, og Eiríkur, bæjarritari í Borgarnesi. Ólafur ólst upp á Sveinsstöðum, lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri 1937 og tók við búi á Sveinsstöðum 1943. Hann sat í hreppsnefnd 1938-58, var hreppstjóri 1942-85, sat í stjórn Sölufélags Austur- Húnvetninga 1956-72, var stjórn- arformaður Kaupfélags Húnvetn- inga 1972-81, sat í stjórn Veiði- félags Vatnsdalsár 1943-87, þar af formaður frá 1978, var formaður sóknarnefndar Þingeyrasóknar, umboðsmaður skattstjóra og end- urskoðandi ýmissa félaga og fé- lagasamtaka. Í minningarorðum um Ólaf sagði sr. Stína Gísladóttir: „Fáum hefur verið falin ábyrgð í stjórnum og nefndum á jafn mörgum sviðum og Ólafi. Rólegt og hógvært viðmót hans skapaði honum einstakt traust. Hann bjó yfir bæði ábyrgð- arkennd og áhuga, svo hann skor- aðist ekki undan, heldur leit á hlutverkin sem skyldustörf“. Ólafur lést 23.8. 1991. Merkir Íslendingar Ólafur Magnússon 95 ára Jón Þ. Sigurðsson 90 ára Ásgeir Björnsson Jóhanna Elíasdóttir 85 ára Helga Anna Guðjónsdóttir Kristján J. Wendel Ólöf Friðjónsdóttir 80 ára Guðný Halldóra Jónsdóttir Hulda Þormar Nanna Guðmundsdóttir Reimar Charlesson Sigríður Lýðsdóttir Sigrún Þorgeirsdóttir Snæbjörn Þ. Snæbjörnsson 75 ára Dagný A. Vernharðsdóttir Edda Arnholtz Jóhann B. Samper Jón Hallgríms Þórarinsson Jón Hjaltason Magnea Magnúsdóttir María I. Hagalínsdóttir Unnbjörg E. Sigurjónsdóttir 70 ára Auðbjörg Jónsdóttir Benedikt G. Sigurðsson Björk Kristófersdóttir Bryndís Gísladóttir Edvard Pétur Ólafsson Guðjóna Benediktsdóttir Hafdís Knudsen Hinrik L. Hinriksson Kristín Garðarsdóttir 60 ára Arndís Gísladóttir Björgvin Pálsson Jakob Skafti Magnússon Jóhanna S. Óskarsdóttir Jóhannes Pálmi Hinriksson Jón Sigurðsson Kristján Már Hannibalsson María K. Hermundsdóttir Rósa Ólöf Ólafíudóttir Sigríður Gunnarsdóttir Valdimar H. Sigþórsson Þórður Ragnarsson 50 ára Alda Stefánsdóttir Ása Björk Stefánsdóttir Elentínus Sverrisson Elísabet Anna Grytvik Guðlaugur Valgarðsson Hulda Dagmar Lárusdóttir Jón Lárus Helgason Kristín Jónsdóttir Linda Stefánsdóttir Soffía Waag Árnadóttir 40 ára Ari Hermann Oddsson Drífa Þöll Arnardóttir Elísabet H. Sigurjónsdóttir Eva Steinunn Sveinsdóttir Guðmundur Jón Fróðason Hrund E. Guðmundsdóttir Margrét Arnardóttir Margrét Ó. Richardsdóttir 30 ára Alfreð Brynjar Kristinsson Benedikt Víðisson Bjarni Bjarnason Davíð Örn Jónsson Gísli Einar Ragnarsson Gunnar Gíslason Gunnar Þór Pálsson Hulda Hrund Jónasdóttir Inga Lára Björnsdóttir Karen Sveinsdóttir Ólafur Páll Johnson Rebekka Óskarsdóttir Sigurður Ingi Einarsson Steingrímur E Jónsson Til hamingju með daginn 30 ára Tinna ólst upp í Reykjavík og er að ljúka um þessar mundir BS- prófi í bakarastjórnun við National Bakery School í London. Maki: Halldór Þór Helga- son, f. 1985, starfsmaður hjá Vodafone. Foreldrar: Svava Kristín Þorkelsdóttir, f. 1959, hjúkrunarfræðingur, og Halldór Þorgeirsson, f. 1960, kvikmyndagerðar- maður. Tinna Björk Halldórsdóttir 30 ára Snævar ólst upp á Siglufirði, býr í Reykjavík og stundar nám í guð- fræði við HÍ. Maki: Ása Þórhildur Þórðardóttir, f. 1985, lög- fræðingur. Dóttir: Arnfríður María Snævarsdóttir, f. 2013. Foreldrar: Jón Andrés Hinriksson, f. 1958, úti- bússtjóri Olís, og J. Brynja Gísladóttir, f. 1947, hús- freyja. Þau búa á Siglu- firði. Snævar Jón Andrésson 30 ára Stefanía ólst upp á Sauðárkróki, býr í Kópa- vogi, lauk BA-prófi í mark- aðsfræði frá IED í Barce- lona, starfar hjá Netgíró en er í fæðingarorlofi. Sonur: Ríkharður Björg- vin Vilhelmsson, f. 2014. Foreldrar: Margrét Björg Pétursdóttir, f. 1957, hár- greiðslumeistari, og Björgvin Margeir Guð- mundsson, f. 1954, raf- virki hjá Rarik. Þau búa á Sauðárkróki. Stefanía Fanney Björgvinsdóttir Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Hágæða flísar frá Ítalíu 60 x 60 cm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.