Morgunblaðið - 22.01.2015, Síða 38

Morgunblaðið - 22.01.2015, Síða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Franska kvikmyndahátíðin hefst í Háskólabíói á morgun og er nú hald- in í fimmtánda sinn. Hátíðin stendur til 2. febrúar og verður einnig haldin í Borgarbíói á Akureyri, 26. janúar til 1. febrúar. Alliance française í Reykjavík, sendiráð Frakklands á Íslandi og Græna ljósið standa í sameiningu að hátíðinni með stuðningi frá kanadíska sendi- ráðinu og verða tíu myndir sýnd- ar að þessu sinni sem eiga það sameiginlegt að töluð er í þeim franska en eru frá ýmsum löndum, m.a. Frakklandi, Kanada og Fílabeinsströndinni. Markmið hátíðarinnar er að sýna fjölbreytni og frumleika í franskri og frönskumælandi kvikmyndagerð og í ár verða m.a. sýndar kvikmynd- ir sem notið hafa gríðarmikillar að- sóknar í Frakklandi. Ein slík er opn- unarmynd hátíðarinnar, Qu’est-ce qu’on a fait au Bon Dieu? eða Öm- urleg brúðkaup eins og hún heitir í íslenskri þýðingu. Um 12 milljónir manna sáu hana í Frakklandi og hef- ur engin frönsk kvikmynd þar í landi notið viðlíka aðsóknar frá því In- touchables sló þar öll met árið 2012. Önnur er La famille Bélier, Bélier- fjölskyldan, sem hlotið hefur mikið lof franskra gagnrýnenda sem spá því að þetta verði mynd ársins 2015. Tíu þúsund gestir að jafnaði Aðsóknin að hátíðinni í gegnum árin hefur verið góð, að jafnaði um tíu þúsund gestir árlega, að sögn Ír- isar Hrundar Þórarinsdóttur, vís- inda- og menningarfulltrúa hjá franska sendiráðinu. „Tíu þúsund manns á tíu myndir þykir nokkuð gott,“ segir hún og bendir á að hátíð- in sé í raun fyrsti stóri menningar- viðburður ársins í Reykjavík. Íris segir sendiráð Kanada styðja sérstaklega við hátíðina í ár en sýnd verður myndin Laurence Anyways eftir kanadíska leikstjórann Xavier Dolan. Hún segir áherslu lagða á að hafa ólík þemu í myndunum, á dag- skránni sé gaman og drama, tilfinn- ingarík sjónarspil, teiknimyndir og allt þar á milli. Þær séu flestir glæ- nýjar eða nýlegar en tvær gamlar og sígildar, Jules og Jim og Konung- urinn og hermikrákan, verði einnig sýndar þar sem um sé að ræða tvo merka stólpa í franskri kvikmynda- gerð. „Það er mikil áhersla á minni- hlutahópa,“ segir Íris þegar hún er spurð að því hvort myndirnar teng- ist að einhverju leyti hvað umfjöll- unarefni varðar. „Umfjöllunarefnin eru þó af öllu tagi svo áhorfendur munu klárlega hafa úr nógu að velja“. Fjölmenningarlegt samfélag Í Ömurlegum brúðkaupum er fjallað með gamansömum hætti um kaþólsk heldri hjón sem eiga erfitt með að kyngja því þegar dætur þeirra ganga að eiga Kínverja, gyð- ing og múslima. Spurð að því hvers vegna hún telji myndina hafa notið svo mikilla vinsælda í Frakklandi segir Íris ólíka menningu sameinast í Frakklandi og geti það skýrt áhug- ann. „Ég tel að margir tengi við Öm- urleg brúðkaup. Það er talað um að 20% giftinga í Frakklandi séu milli fólks af ólíkum uppruna þannig að fólk tengir sterkt við þetta. Þetta er svo fjölmenningarlegt land. Svo er myndin auðvitað bráðskemmtileg,“ segir Íris. Tveir af aðalleikurum myndarinnar verða sérstakir boðs- gestir á hátíðinni, þeir Noom Dia- wara og Medi Sadoun. Að lokum ber að geta þess að Ís- lendingar tengjast tveimur myndum hátíðarinnar því annars vegar verð- ur sýnd kvikmynd fransk-íslenska leikstjórans Sólveigar Anspach, Lulu femme nue, Lulu nakin, og hins vegar De toutes nos forces, Af öllum kröftum, sem Barði Jóhanns- son samdi tónlistina við. Sólveig mun svara spurningum gesta að lok- inni sýningu myndar sinnar annað kvöld og Barði á laugardagskvöldi að lokinni sýningu De toutes nos for- ces. Sýningarnar hefjast báðar kl. 18. Sýningartíma kvikmynda og nán- ari upplýsingar má finna á vefsíðu hátíðarinnar, www.fff.is „Mikil áhersla á minnihlutahópa“  Franska kvikmyndahátíðin haldin í fimmtánda sinn Brúðkaupsógleði? Úr gamanmyndinni Qu’est-ce qu’on a fait au bon dieu? eða Ömurleg brúðkaup, eins og hún er kölluð á íslensku. Íris Hrund Þórarinsdóttir Eftir að lögum af væntanlegri hljómplötu Bjarkar Guðmunds- dóttur, Vulnicura, var lekið á netið um helgina brást hún við með því að gefa hana út á iTunes í gær, sex vik- um fyrir fyrirhugaðan útgáfudag. Útgáfudagur plötunnar á geisladisk og vínyl er óbreyttur og helst í hend- ur við opnun sýningar Bjarkar í Mu- seum of Modern Art í New York 7. mars næstkomandi. Björk er síðust í röð listamanna sem lenda í því að óprúttnir aðilar brjóta á höfundarrétti þeirra með því að leka efninu í óleyfi á netið. Nýlega var lögum af nýrri plötu Ma- donna lekið og brást hún ókvæða við, talaði um listræna nauðgun. Tónleikaröð í New York Fjögur ár eru frá útgáfu síðustu plötu Bjarkar, Biophilia. Blaðamað- ur The Guardian sem hlýtt hafði á nýju plötuna lýsti henni í gær sem einskonar samtali við eða systur- plötu Vespertine sem kom út árið 2001. Vulnicura sé „andstæða bjartra vonanna á Vespertine“. Í til- kynningu frá Björk segir hún lögin á plötunni mörg fjalla um brostnar vonir í kjölfar sambandsslita. Hún vonar að lögin geti verið öðrum hjálp og sýni hve „líffræðilegt þetta ferli geti verið, sárið og lækning þess. Andlega og líkamlega.“ Björk segir ennfremur í tilkynn- ingunni sem fylgir útgáfu plötunnar á iTunes að listræn stefna verksins hafi tekið breytingum þegar upp- tökustjórinn Alejandro Ghersi, þekktur sem Arca, hafi komið til samstarfs við hana. Hann hefur meðal annars unnið með Kanye West and FKA Twigs. Í fyrradag tilkynnti Björk enn- fremur að hún kæmi fram á sex tón- leikum í New York í tengslum við sýninguna í MoMA. Þeir fyrstu verða í hinu sögufræga tónlistarhúsi Carnegie Hall að kvöldi opnunar- dagsins 7. mars. efi@mbl.is Listakonan Ný mynd af Björk birt- ist á samfélagssíðu hennar. Björk gaf Vulnicura út á iTunes eftir leka Ömurleg brúðkaup (Qu’est-ce qu’on a fait au Bon Dieu?) Virðuleg hjón eiga fjórar dætur sem komast á giftingaraldur hver á fætur annarri ... en tengdasyn- irnir eru þeim hjónakornunum ekki endilega að skapi. Laurence, hvernig sem er (Laurence Anyways) Laurence er transkona sem þarf að takast á við fjölskyldu sína og lífið. Þrátt fyrir að öðrum reynist erfitt að sætta sig við Laurence í sinni réttu mynd er hún eftir sem áður bara Laurence fyrir þeim sem þekktu hana fyrir leiðrétt- inguna. Konungurinn og hermikrákan (Le Roi et l’Oiseau) Teiknimynd lauslega byggð á ævintýri H.C. Andersens, Smalast- úlkunni og sótaranum. Konungur stjórnar ríki sínu harðri hendi, hef- ur óbeit á þegnum sínum og þeir á honum. Enginn þorir að standa uppi í hárinu á honum nema fugl sem kemur sér vel þegar kóng- urinn leggur ást á smalastúlku. Lyktin af okkur (The Smell of Us) Mynd sem fjallar um hóp ung- linga í París sem stunda hjóla- bretti, ástir og rokk en eiga sér hvert sína sögu. Af öllum kröftum (De toutes nos forces) Kvikmynd byggð á afrekum bandarísku feðganna Dicks og Ricks Hoyts. Julien er bundinn við hjólastól og á ekki hægt með að láta draumana rætast. Hann telur föður sinn á að keppa með sér í þríþraut og öll fjölskyldan leggst á eitt í þessari ótrúlegu áraun. Heimilislífið (La vie domestique) Juliette er húsmóðir í úthverfi Parísar. Lífið hjá henni líkt og flestum konum í hverfinu gengur út á að koma börnunum í skóla, útrétta, kaupa inn, elda mat og sækja börnin í skólann. Þetta er ekki lífið sem hana dreymdi um og bindur hún vonir við atvinnuviðtal hjá útgáfufyrirtæki. Jules og Jim (Jules et Jim) Sígild mynd François Truffaut, byggð á raunverulegum atburðum. Jules er austurrískur, Jim franskur. Báðir eru listhneigðir og með þeim tekst mikil vinátta sem ekkert haggar, hvorki Catherine, sem báð- ir elska, né styrjöldin, þar sem þeir berjast í andstæðum fylkingum. Eftir stríð endurnýja þau sam- bandið sem markast af vináttu, vonum, vonbrigðum og þrám. Aya de Yopougon (Aya frá borginni Yop) Teiknimynd frá Fílabeinsströnd- inni sem var tilnefnd til frönsku Sesar-kvikmyndaverðlaunanna. Í Yopougon hverfi í Abidjan, höf- uðborg Fílabeinsstrandar, búa Aya og vinkonur hennar tvær, 19 ára gamlar. Aya ætlar sér að verða læknir en vinkonur hennar lifa fyrir líðandi stund. Og mannlífið í kring- um þær er í fjölskrúðugasta lagi. Lulu nakin (Lulu femme nue) Lulu klúðrar atvinnuviðtali, missir viljandi af lestinni heim og tekur sér frí frá ráðríkum eig- inmanni og fjölskyldu. Hún kynnist sérkennilegu og skemmtilegu fólki á jöðrum samfélagsins og fær nýja sýn á tilveruna og sjálfa sig. Bélierfjölskyldan (La famille Bélier) Kennari ungrar sveitastúlku tek- ur eftir því að hún hefur einstaka söngrödd. Hann hvetur hana til að taka þátt í hæfileikakeppni en for- eldrar stúlkunnar og bróðir eru heyrnarlaus og hún er sú sem þau reiða sig á til að hafa samskipti við umheiminn. Hún verður að gera upp á milli fjölskyldu og frama- drauma … eða hvað? Fjölbreyttar hátíðarmyndir MYNDIRNAR TÍU SEM SÝNDAR VERÐA Á HÁTÍÐINNI Kraftur Úr kvikmyndinni De toutes nos forces, Af öllum kröftum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.