Morgunblaðið - 22.01.2015, Page 44
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 22. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Gústaf fannst líklega á öskuhaug
2. „Ég hef kveikt í mönnum“
3. Undirbúningur flugfreyjunnar
4. „Hið afbrigðilega og ófrjóa“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sýning á verkum Guðjóns Bjarna-
sonar, arkitekts og listamanns, verð-
ur opnuð í Lalit Kala-listaakademí-
unni í Nýju-Delí á laugardaginn, 24.
janúar. Verður það fyrsta sýning ís-
lensks listamanns í safninu sem er
eitt virtasta nútímalistasafn Ind-
lands. Sýningin nýtur stuðnings
Kynningarmiðstöðvar íslenskrar
myndlistar, sendiráðs Íslands í Nýju-
Delí, indversk-íslenska viðskiptaráðs-
ins og Lone Star Art Alliance í Texas.
Sýningin verður umfangsmikil og
verkin unnin í ýmsa miðla, verk sem
Guðjón vann á þúsund dögum, eins
og segir í tilkynningu. Sýningarstjóri
er Richard Vine, einn af ritstjórum
tímaritsins Art in America.
Morgunblaðið/Ómar
Sýnir fyrstu Íslend-
inga í Lalit Kala
Listrænir stjórnendur danshópsins
Shalala, Erna Ómarsdóttir og Valdi-
mar Jóhannsson, flytja sýninguna
Wonderings on Boarderline Musicals í
listasafninu Centre Pompidou í París
25. janúar næstkomandi. Sýningin er
samstarfsverkefni þriggja hátíða:
Hors Pistes-hátíðarinnar í París, Al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í
Reykjavík og Air d’Islande, íslenskrar
menningarhátíðar í París. Erna, Valdi-
mar og Pierre-Alain, samstarfsmaður
þeirra, hafa vinnuaðstöðu í Le Point
Ephémère í París og vinna að verkinu í
vikutíma áður en sýningin fer fram.
Sýningin er hluti af dagskrá Air d’Is-
lande sem fer fram dagana 23. janúar
til 8. febrúar í París. Ís-
lenskar stuttmyndir
verða einnig á dag-
skrá hátíðarinnar og
verða sýndar 5. febr-
úar á Cinematheque
Francaise, einni
elstu kvikmynda-
stofnun í heimi.
Sýna í Pompidou
Á föstudag Suðvestan og vestan 8-15 og él, en hægari og þurrt og
bjart norðan- og austanlands. Frost 0 til 9 stig.
Á laugardag Hæg vestlæg eða breytileg átt og él á stöku stað, en
gengur í suðaustan hvassviðri með snjókomu og síðar slyddu.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan og suðvestan 8-13 m/s og skúrir
eða él, en hægari og yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert.
VEÐUR
Maraþonhlauparinn Kári
Steinn Karlsson stefnir að því
að ná lágmarkinu fyrir heims-
meistaramótið í Peking þegar
hann keppir í Hamborgar-
maraþoninu í lok apríl. Hann
segir að möguleikarnir á að
ná því séu ágætir þar sem
margir bestu evrópsku
hlaupararnir séu skráðir til
leiks og hann fái því vænt-
anlega meiri samkeppni frá
svipuðum hlaupurum en oft
áður. »4
Kári stefnir á lág-
mark í Hamborg
Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðs-
fyrirliði í handknattleik, varar við því
að einblína bara á Filip Jicha, einn
besta handboltamann heims, þegar
Ísland og Tékkland mætast á heims-
meistaramótinu í Katar í kvöld. Ís-
lenska liðinu nægir stig til
að komast í sextán liða
úrslit keppninnar en
stigalausir Tékkar verða
að vinna leikinn til að
eiga möguleika á að fara
áfram. »1
Tékkneska liðið er ekki
bara Filip Jicha
Eggert Gunnþór Jónsson skrifaði í
gær undir samning við danska félagið
Vestsjælland og þar með leika nú
fimmtán íslenskir knattspyrnumenn í
úrvalsdeildinni í Danmörku, ásamt
því að Íslendingur þjálfar eitt liðanna.
Níu af tólf liðum í deildinni eru með
íslenskan leikmann, einn eða fleiri, í
sínum röðum, og fjórir hafa bæst við
núna í vetrarfríinu. »1
Fimmtán Íslendingar í
dönsku úrvalsdeildinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Trommuleikarinn Sigurður Karlsson,
sem sló í gegn með mörgum af bestu
hljómsveitum landsins á áttunda og
níunda áratug liðinnar aldar, hefur
tekið fram kjuðana á ný eftir að hafa
hvílt húðirnar í um aldarfjórðung.
Hann leikur með sveitinni Hátveiro
bestu lög Peters Gabriels og Genesis
á tónleikum í Háskólabíói 28. febrúar.
„Þetta er bara skemmtilegt,“ segir
trommarinn. „Að sumu leyti
skemmtilegra en áður því ég spila
bara tónlist sem ég hef yndi af og er
mjög krefjandi og reynir þar af leið-
andi á hæfileikana.“
Eins og hjá mörgum öðrum hófst
ferillinn hjá Sigurði í bílskúr. „Ég
byrjaði í Garðabænum fyrir um 45 ár-
um, var með bílskúrsböndum, og eftir
að mér var boðið í Ævintýri í kring-
um 1970 varð ekki aftur snúið,“ segir
tónlistarmaðurinn.
Vakti athygli í London
Á meðal annarra banda Sigurðar
má nefna Svanfríði, Celcíus, Bruna-
liðið, Íslenska kjötsúpu, Friðryk og
Stórsveit Gunnars Þórðarsonar að
ógleymdri sveitinni Change, sem
gerði garðinn frægan í Bretlandi um
miðjan áttunda áratuginn. „Þá vorum
við langt komnir með að verða þekkt
nafn í London,“ rifjar hann upp. „Við
vorum eiginlega brautryðjendur,
þegar við komum okkur á framfæri
erlendis, fluttum til London og bjugg-
um þar í tvö ár, fengum samning og
komum fram í bresku sjónvarpi, en
það vantaði herslumuninn. Ég held
að það hafi verið mjög erfitt að vera
Íslendingur þá og við vorum litnir
hornauga.“
Sigurður er fótaaðgerðafræðingur
eins og eiginkonan, Guðrún Svava
Svavarsdóttir, og reka þau fótaað-
gerðastofuna Fótatak á Laugavegi
163. Þau fluttu til Danmerkur 1999 og
opnuðu þar fótaaðgerðastofu. „Hún
gekk mjög vel en síðan fluttum við
aftur hingað í kreppuna, konan 2006
og ég 2008.“
Sigurður segir að það hafi verið
mjög erfitt að byrja aftur í tónlistinni.
„Það tók tíma að tengja saman hönd
og haus, en þetta er allt orðið eðli-
legra,“ segir hann. „Núna förum við
að spýta í lófana, æfa mikið fyrir tón-
leikana. Þetta er skorpuvinna.“
Sigurður kom fram með Svanfríði
á tónleikum í Austurbæ 2012 og svo
með Genesis-hópnum í Salnum í
Kópavogi fyrir um ári. „Eftir að við
tókum Austurbæ með stormi hefur
þetta undið upp á sig,“ segir Sigurður
og bætir við að fyrir utan tónleikana í
Háskólabíói sé ekkert ákveðið með
framhaldið á tónlistarsviðinu. „Ég
tek bara eitt verkefni fyrir í einu,“
segir hann.
Sigurður trommar á ný
Undirbýr með
öðrum tónleika
í Háskólabíói
Morgunblaðið/Eggert
Traustur Sigurður Karlsson, fótaaðgerðafræðingur og trommari með meiru, á fótaaðgerðastofunni í gær.
Trommarinn Sigurður Karlsson í bandinu Svanfríði.