Reykjalundur - 01.06.1952, Side 5

Reykjalundur - 01.06.1952, Side 5
var boðið að skoða heilsu- og vinnuheimilið að Reykjalundi nú fyrir skömmu á sólbjört- um sumardegi. Það er þungur örlagadómur að verða fyrir heilsuleysi á bezta skeiði ævinnar. En þótt sárt sé að verða fyrir slíkum dómi, er engin ástæða til þess að örvænta. Lækna- vísindin hafa miklu góðu til vegar komið og þar sem góð læknishjálp, heilbrigt líf og viljafesta sjúklingsins sjálfs haldast í hendur má allt af vænta góðs bata, enda hafa margir langt leiddir berklasjúklingar fengið fullan bata og orðið hinir nýtustu menn í þjóðfé- laginu. Reykjalundur er tvímælalaust ein merki- legasta stofnunin, sem við eigum hér á landi. Þangað geta sjúklingarnir leitað, þegar þeir koma frá heilsuhælunum, nokkurn vegin heilir heilsu, en þurfa að eiga góða aðbúð og búa við heilbrigð lífsskilyrði og hafa að- stöðu til starfa við sitt hæfi. Samtök íslenzkra berklasjúklinga og litla borgin að Reykjalundi er eins og ævintýri, eitt fegursta ævintýrið í íslenzku þjóðlífi. Þetta er borg, sem ekki fær duhzt, hún hefur verið reist á trúnni á sigur hins góða og hún er einn fegursti votturinn um hjálpsemi og bræðralagsanda hinnar íslenzku þjóðar. Reykjalundur er einskonar viti, sem lýsir til samstarfs og samhjálpar í góðum málum. Við höfum nóg af sundurlyndi í þjóðlífinu og því er það óendanlega mikilsvert að eiga þau mál, er ná að sameina fólkið. Ég ætla ekki hér að fara að lýsa Reykja- lundi og starfinu þar í einstökum atriðum, það hefur svo oft verið gert. En þó að menn hafi heyrt margt lofsamlegt um þetta starf, þá er þó sjón sögu ríkari og enginn getur annað en dáðst að litlu borginni, sem þavna hefur risið upp, þeim veglegu mannvirkjum, sem þarna er að sjá og þeirri góðu umgengni, sem hvarvetna blasir við augum. Það dylst heldur ekki þeim, er þangað koma, að ánægja ríkir meðal vistmannanna, meira að segja hafa sumir þeirra ef til vill aldrei átt betri daga, svona undarlegir eru stundum örlaga- þræðir lífsins, og þeir eru þjóðinni þakklátir fyrir að hafa veitt þeim hjálp, til þess að koma upp þessu heimili. En ennþá eru mörg verkefni sem leysa þarf, til þess að efla starfsémina að Reykja- lundi. Vinnuskálarnir eru flestir að falli komnir og ný verksmiðjuhús þarf að reisa. Þá er eitt af framtíðarverkefnunum að koma upp góðu og myndarlegu búi að Reykjalundi. Landrými er mikið, sem býður eftir að hægt sé að hefja ræktunarframkvæmdir og fleiri aðkallandi verkefni mætti telja upp. Þeir, sem koma að Reykjalundi og stutt hafa starfsemi S. í. B. S., þeir hljóta að gleðj- ast, þegar þeir sjá, hvemig því fé hefur verið varið, sem þeir hafa lagt af mörkum, en þeir, sem lítt hafa stutt þessa starfsemi hljóta að fá samvizkubit, að hafa ekki verið meira með í svo ágætu starfi. Ef einhver skyldi vera svartsýnn á sigur góðra málefna, þá ætti sá hinn sami að skreppa upp að Reykjalundi og sjá hvað þar hefur áunnizt. Þar er vissulega borg, sem ekki fær dulizt og hvetur til bjartsýni og góðra verka. Allur stuðningur við Reykjalund og S. I. B. S. er hjálp til sjálfshjálpar við meðbróður, sem orðið hefur hart úti í lífsbaráttunni. ☆ Ég er þakklátur fyrir þessa kyrrlátu og fögru dagsstund á Reykjalundi og fyrir gest- risni og fræðslu um þessa merkilegu stofn- un. Mér var það ljósara en nokkru sinni áður, að með Guðs hjálp og góðum vilja er hægt að breyta hinu sárasta böli í ham- ingju og lífsgleði. En þetta er þó því aðeins hægt að starfað sé saman í einlægni og kærleika. Guð blessi starfsemi Reykjalundar og S. I. B. S. í nútíð og framtíð. Óskar J. Þorláksson. Reykjalunduk

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.