Reykjalundur - 01.06.1952, Qupperneq 11

Reykjalundur - 01.06.1952, Qupperneq 11
HALLDÖR STEFÁNSSON: T snlfli'bnsl;**. Klukkan var tíu. Tommi og Grímsi voru komnir inn í hið snotra herbergi sitt, þeir áttu að fara að sofa. Þegjandi tíndu þeir af sér spjarirnar og hengdu þær hvor upp á sinn snaga með tregðu, sem nálgaðist mótmæli, dunduðu við háttunina, eins og þeir væru að keppast um, hvor gæti orðið seinni að leggjast niður í hvítbúið rúmið. Þeir burstuðu í sér tennurn- ar í frussandi, þögulli vonzku, litu á víxl út um gluggann á logagyllt sólarlag og svört skip á hafinu, hlustuðu þollausri spenningu á blístur og hlátra stráka í næstu götu, haldn- ir sömu þjáningunni, en mæltust ekki við. — Þegar Tomma fannst hann ekki geta frest- að því lengur, fleygði hann sér upp í rúmið, kreisti sængina illskulega í hnefum sínum og geispaði til þess að forðast að stynja. Grímsi naut sigurs síns með því að ganga einu sinni enn að glugganum og spýta út um hann, síðan lagðist hann einnig til svefns. Tvö tólf ára gæfumenni undir sama þaki. Fyrir aðeins nokkrum mánuðum síðan voru þeir húsvilltir götustrákar. Faðir Tomma fór á Litla Hraun, og kerl- ingin, sem hann bjó með, móðir Grímsa, lenti við upplausn heimilisins á Kleppi, þar sem hún hefði alltaf átt að verá. Uppi stóðu ungmennin með reynslu fullharðnaðra manna, en neitun yfirvaldanna um að hag- nýta sér hana til framfærslu. Grímsi var sá, sem forystuna hafði á and- lega sviðinu, rauðhærður langhöfði, en Tommi hinn óttalausi hermaður, svartur og hnatthöfðaður, báðir voru stórir og sterkir eftir aldri. Gæfan birtist þessum munaðarlausu götu- Reykjalundur piltum og bæjarstjórninni í gervi kaupmanns- hjóna, sem buðust til að taka báða strákana meðlagslaust. Kaupmanninn vantaði vika- pilt og lét sig ekki muna um að hafa þá tvo, samkvæmt tillögum konu sinnar, þeir gátu til skiptis hjálpað til í búðinni og verið í sendiferðum. Hin fyrstu kynni líktust viðskiptum elds og vatns. Horaðir, skítugir strákar með hug- ann fullan af klækjum og hnefana reiðu- búna til slagsmála, orðbragð, sem hvergi fæst prentað, vanir óreglu og skorti í heim- ili, og fínt hús með gnægð matar, hreinlífi til orðs og æðis, ströngum reglum og siðferði, húsbændur með umhyggju og ábyrgðartil- finningu gagnvart slíku rekaldi, sem skjól- stæðingar þeirra voru. Strákarnir höfðu hugsað sér þennan nýja heim sem tækifæri til auðveldrar auðsöfn- unar og býlífis. Þeir hugðust að háma í sig krásunum á heimilinu og gera sér gott af hinni troðfullu verzlunarbúð, sem þeir gætu gengið um sem frjálsir menn að degi til, en þyrftu ekki að brjótast inn í á næturþeli, eins og komið hafði fyrir að þeir gerðu, áð- ur en augu gæfunnar sneru upp teningskasti þeirra. Þeir voru afhentir kaupmanninum í búð hans af risavöxnum lögregluþjóni. Djöfull, maður, hvíslaði Tommi að Grímsa á leiðinni gegnum búðina inn á hið tilvon- andi heimili þeirra. Og Grímsi skildi til fulls, hvað hann átti við og hvíslaði á móti: Maður, djöfull. Inni í stofunni tók við þeim fertug kona, svipblíð og fyrirferðarlítil og bauð þá vel- komna. Ég' er kaldur fyrir þessari, sagði Grímsi og 9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.