Reykjalundur - 01.06.1952, Side 19

Reykjalundur - 01.06.1952, Side 19
8. þif?0 J5. T. B. $. Áttunda þing S. í. B. S. var haldið að Kristneshæli dagana 11. og 12. júlí í sumar. Forseti sambandsins, Maríus Helgason, setti þingið með ræðu. Bauð hann þingfulltrúa og gesti velkomna. — Minntist hann hins látna forseta Islands, hr. Sveins Björnssonar. Enn- fremur minntist hann þeirra félag'smanna, er látizt höfðu frá því er síðasta þing var haldið og bað þingheim votta virðingu sína með því að rísa úr sætum. Fulltrúar í miðstjórn Sambands berkla- sjúklinga á Norðurlöndum, D. N. T. C., voru viðstaddir þingsetninguna og bauð Steindór Steindórsson, menntaskólakennari, þá vel- komna. Urban Hansen flutti kveðju frá D. N. T. C. og einnig danska berklavarnasambandinu, Veikko Niemi flutti kveðju finnska sam- bandsins, Stein Vik norska sambandsins og Alfred Lindahl sænska sambandsins. Að lokinni ræðu foseta og hvers fulltrúa, var leikinn þjóðsöngur viðkomandi lands. Á þinginu voru mættir 72 fulltrúar frá 8 sambandsdeildum. Forseti þingsins var kjör- inn Steindór Steindórsson, 1. varaforseti Jónas Þorbergsson, 2. varaforseti Garðar Jó- hannesson. Forseti sambandsins, Maríus Helgason, flutti skýrslu sambandsstjórnar. Gat hann þess að liðin eru 14 ár frá stofnun S. í. B. S. Á þeim tíma hefur sambandið unn- ið að mörgum málum og byggt Reykja- lund, sem löngu er þjóðkunn stofnun, þótt enn vanti mikið á, að hann geti talizt full- byggður. Bygging hans mun því sitja í fyrir- rúmi, þótt mörg önnur verkefni bíði úrlausn- ar. Gjaldkeri S. I. B. S., Björn Guðmundsson, flutti skýrslu um fjármál sambandsins. Um áramót (1951—1952) hafði sambandið byggt fyrir kr. 8.606.652.85 og voru skuldir þá 1,3 millj. króna. Þórður Benediktsson flutti skýrslu D. N. T. C. — Norræna berklavarnasambandsins. Hann flutti einnig skýrslu Vöruhappdrætt- is S. í. B. S. fyrir árin 1950 og 1951. Tekjurn- ar urðu kr. 767.849.23, samanlagt bæði árin. Umboðsmenn happdrættisins eru 140, dreifð- ir víðsvegar um landið. Gunnlaugur Stefánsson flutti skýrslu um rekstur Vinnustofanna að Kristneshæli. Ár- ið 1950 voru unnin þar 1035 dagsverk, en árið 1951 1000 dagsverk. Formaður Hlífarsjóðs, Júlíus Baldvinsson, flutti skýrslu sjóðstjórnar. Olafur Björnsson og Oddur Ólafsson fluttu skýrslu stjórnar Vinnuheimilisins að Reykja- lundi. Árið 1950 vai’ð nokkuð tap á rekstri stofnunarinnar — 46 þús. krónur. — Árið 1951 varð hagnaður, 2 þúsund krónur. Heim- ilishaldið hefur ekki boi'ið sig, þótt kostnað- urinn hafi við athugun reynzt 30—40% lægri hjá Vinnuheimilinu en öðrum sambærileg- urn stofnunum. Hagnaðurinn, er orðið hefur á verkstæðunum, hefur því verið notaður til að giæiða þann halla. Fluttar voru skýrslur sambandsfélaga, en ekki eru tök á að rekja efni þeiri-a hér í blaðinu. Samþykkt var, að sambandsstjórn héldi áfram að aðstoða berklasjúklinga, ef hrepps eða bæjai-félög krefja þá, eða vandamenn þeirra, um fimmtargjald, sem skv. lögum er óheimilt, en nokkur hreppsfélög hafa að undanförnu gerzt sek um slíkt og valdið með því sjúklingunum erfiði og áhyggjum. Enn- fremur var samþykkt að hraða sem mest byggingu vinnuskála og öðrurn nauðsyn- R KYKJ AI.UMM it 17

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.