Reykjalundur - 01.06.1952, Qupperneq 25

Reykjalundur - 01.06.1952, Qupperneq 25
komst upp á einn stólinn, náði annarri hendi í súlu og hinni upp í loftið, þá opnaðist leik- sviðið í allri sinni dýrð. í þessum stellingum horfði ég á frumsýningu í Scala, þótt allir aðgöngumiðar hefðu verið uppseldir vikum fyrir sýningu. Þótt aðstæður væru óhægar, hafði ég mikla ánægju af þessari leikhúsför, ekki sízt að geta nú bæði séð hljómsveit Scala óperunnar í Milano og hlustað á leik hennar. ★ Ég fór til London frá Milano og var þar tvo daga í viðskiptaerindum fyrir Vinnu- heimilið að Reykjalundi. Þaðan fór ég til Hollands. — Mig hafði lengi langað til að skoða og kynna mér Berg en Bosh hælið í Hollandi. Berg en Bosh er meðal stærstu og þekktustu hæla Hollands, auk þess er það eitt af elztu vinnuheimilum, sem til eru. Hælið rúmar 500 sjúklinga, en vinnuheimilið 50. Þar er reglan sú, að flestir, sem útskrifast af hælum, dvelja á vinnuheimilum nokkra mánuði, þó aldrei lengur en 6 mánuði. Þeir vinna frá 3—7 stundir daglega og vinna aðal- lega að framleiðslu tréleikfanga, einnig nokk- uð að léttri málmsmíði, þeir fá ekki greitt kaup, en fá sjálfir umráð yfir hluta þess sem Reykjalundur þeir framleiða. Þeir búa í smákofum, ekki ósvipuðum garðhúsunum hér í nágrenni Reykjavíkur, en hafa eitt sameiginlegt hús. Þar er eldhús, borðstofa, dagstofa, baðher- bergi, WC o. fl. Dr. Bronkherst, sem hefir stjórnað þessu vinnuheimili frá upphafi, læt- ur eftir langa reynslu mjög vel af árangrin- um. Telur hann heilsu þeirra, er fara að vinnuþjálfuninni lokinni, ólíkt öruggari, en hinna, sem fara beint út í lífið. Auk þess leggur hann mikla áherzlu á kennslu í stund- vísi og iðni við vinnu. Berg en Bosh fram- leiðslan þykir vönduð og góð, þeir höfðu sérstaka sýningardeild á vörusýningu, er ég sá í Utrecht. Berg en Bosh er merkilegt sambland gamla og nýja tímans. Þar eru strangar reglur, langur legukúr með full- komnum þagnartímum, þegar ekki einu sinni má heyrast í útvarpstæki. Þar liggja sjúkl- ingarnir á 12 manna stofum, og er einn vegg- urinn aðeins gluggar, sem jafnvel eru tekn- ir úr á sumrin. Gróðri utan glugganna er hag- að eftir því, sem talið er þægilegast og mest tilbreyting í fyrir sjúkhngana. Mismunandi blóm og tré eru fyrir framan glugga hverr- ar deildar og síðan eru sjúklingarnir fluttir á milli deilda eftir hegðun og bata. Málverk og breytilegir litir veggja miða að því sama 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.