Reykjalundur - 01.06.1952, Síða 26
og gróðurinn utan dyra. Þarna eru líka fram-
kvæmdar nýtízku skurðaðgerðir. Á árunum
1950—1952 gerðu þeir 200 lungnaskurði, þar
sem þeir tóku burtu lungað allt, lungna-
lappa eða aðeins sjúka hlutann. Af þessum
200 tilfellum dóu aðeins 4 eða 2%. Ég sá
þarna nokkra sjúklinga er nýlega höfðu
verið skornir upp. Þeir voru merkilega
hressir, sumir komnir á fætur, aðeins örfá-
um dögum eftir uppskurðinn.
★
Ferðin um 6 Evrópulönd á 14 dögum hafði
verið lærdómsrík en erfið. I loftinu á leið-
inni heim, gafst mér tóm til íhugunar um
ýmislegt það, er fyrir aug'u mín hafði borið.
Nýja berklalyfið Isoniazidið, eins og það nú
er kallað, virtist ætla að gefa þá raun, sem
fyrst var talið, — vera stór hjálp fárveiku
fólki og' gefa mörgum sjúklingum möguleika
til bata með hjálp skurðaðgerða, sem áður
virtust vonlaus tilfelli, en það var því miður
ekki lyfið sem útrýmir berklaveikinni. Það
var ekki lyfið, sem gat eytt bólgunum og
lokað sárunum á skömmum tíma, aðeins
enn eitt hjálpartækið í þeirri margþættu bar-
áttu, sem nú er háð til lækningar og útrým-
ingar berklaveikinni.
Þótt nýju lyfin séu merkur áfangi í berkla-
lækningunum, þá er sú bylting sem nú er
að verða í skurðaðgerðum við berklaveiki, ef
til vill engu ómerkari.
Ég minnist drauma og hugleiðing'a okkar
sjúkling'anna á Vífilsstöðum í gamla daga.
Hugleiðinganna um það, að ef til vill kæmu
þeir tímar, að berklaskemmdirnar yrðu
skornar burtu og þeim fleyg't, en eftir sæti
lungað gróið og heilt.
Líkur benda til þess að svo verði gert
hjá fjölda sjúklinga, bæði hér og' erlendis
innan skamms, en það er með þetta eins og
aðrar nýjungar, að tíminn einn getur skorið
úr um varanlegt gildi þeirra. Enginn vafi er
þó á því, að penecillinið, streptomycinið og
önnur sýklaeyðandi lyf, ásamt hinni stór-
bættu skurðlækningatækni nútímans, hafa
gert þá hluti mögulega, sem áður voru ófram-
kvæmanlegir.
DR. SVEIW BERGSVEIXSSON.
Kvöld í ágúst;
(Brot).
/ dag er ágúst.
Vindurínn þýtur
og vaggar krónum trjánna.
1 dag er kvöld.
Það fyllir mig trega,
Því að það minnir á haust.
1 dag er myrkur.
Það minnir á dauðann
og ieggst á sál mína eins og farg.
Lífið er fjársjóður þinn.
En þú veitir hann að gjöf
þeim sem þú elskar.
Leggistu fyrir að kveldi
og treystir ei liús þitt gegn þjófum
finnurðu skrínið tómt að morgni
Lifið var fjársjóður þinn.
Elskan þín gengur nú einmana
og grœtur horfna gjöf.
Snlleröd 8. ágiist 1945.
Sveinn Bergsveinsson.
24
RF.YKJALUNmiR