Reykjalundur - 01.06.1952, Blaðsíða 28
?. fundur D.X.T.C.
FULLTRUAR A ÞINGI D. N. T. C.
Frá vinstri uinlwerfis borÖiÖ: Arni Einarsson fulllrúi frá íslandi. — Henry Albtek, Danmörku. —
Stein Vik, Noregi, — Einar Hiller, Sviþjóð, — Urban Hansen, Danmörku, — Alfred Lindahl, Sviþjóö, —
Harald Niissling, Finnlandi, — Veikko Niemi, Finnlandi, — Þórður Benediktsson, íslandi.
“1 ÍS
*
Fundur miðstjórnar landsambanda berkla-
sjúklinga á Norðurlöndum (D. N. T. C.) var
haldinn að Reykjalundi dagana 16.—17.
ágúst s. 1.
Fundinn sátu eftirtaldir stjórnarmeðlimir:
Einar Hiller og Alfred Lindahl frá Svíþjóð,
Stein Vik frá Noregi, Urban Hansen og
Henry Albæk frá Danmörku, Veikko Niemi
og Harald Nássling frá Finnlandi og Árni
Einarsson og Þórður Benediktsson frá Is-
landi.
Áður en fundir hófust sátu hinir erlendu
fulltrúar 8. þing S. í. B. S., sem haldið var
að Kristneshæli 11. til 13. ágúst. Gafst þeim
því tækifæri til að sjá nokkur fögur héröð
og kynnast mörgu fólki.
Aðalmál fundarins var starfsskýrslur
landssambandanna og umræður um þær,
nokkur erindi frá fulltrúunum um breyting-
ar og nýmæli á félagsmálalöggjöf á Norður-
löndum. Undir þeim dagskrárlið flutti Kjart-
an Guðnason, starfsmaður hjá Tryggingar-
stofnun ríkisins, ýtarlegt erindi um íslenzk
tryggingarmál.
26
Reykjalundur