Reykjalundur - 01.06.1952, Blaðsíða 29
Stjórn Sjálfsvarnar Kristneshæli.
Aftari röð frd vinstri: Garðar Jóhannesson, /oimaður, Bjarni Símonarson, Einar Sigurðsson. — Fremri
röð: Karl Sigfússon, Guðrún Sveinsdóttir og Haukur Frímannsson.
Formaður sambandsins Sigfrid Jonsson,
ríkisdagsmaður frá Svíþjóð, gat ekki mætt á
fundinum og lét jafnframt af formannsstöðu.
Við stöðunni tók varamaður hans Alfred
Lindahl. Urban Hansen var fundarstjóri.
Ákveðið var að halda næsta stjórnarfund
í Danmörku á næsta ári.
í fundarlok ræddu fréttamenn frá Ríkisút-
varpi og dagblöðum í Reykjavík við fulltrú-
ana. Frásögn af fundinum ásamt ályktunar-
orðum hans birtust síðán í blöðum og út-
varpi.
Eins og mörgum er kunnugt, var.-D._-N.
T. C. stofnað að Reykjalundi í ágústmánuði
1948, á 10 ára afmæli S. í. B. S., og var það
gjört í þeim tilgangi að efla samstarf fé-
laga berklasjúklinga í ofangreindum lönd-
um, kynnast starfsháttum og miðla af reynslu
hvers annars. Þessum tilgangi hefur að mörgu
leyti verið náð.
Fyrir stofnun sambandsins höfðu lands-
sambönd berklasjúklinga á Norðurlöndum
Revkjalundur
harla litla vitneskju um líf og starf hvers
annars. Nú er breyting á orðin. Landssam-
böndin hafa nú í höndum hinar nákvæm-
ustu skýrslur um allt, er gerist meðal bræðra-
félaganna. Þau hafa auðgazt af reynslu og
starfshæfni. Þau geta forðast starfsaðferðir,
sem miður hafa reynst og tekið sér til eftir-
breytni allt það, sem góðan árangur hefur
borið með öðrum félögum. Keppnin um
framtakssemi hefur greinilega komið í Ijós,
nýjar hugmyndir fæðzt og landssambönd-
in vaxið að atgjörvi og bjartsýni. I mikils-
verðum málum geta nú félög berklasjúkl-
inga á Norðurlöndum komið fram sem einn
aðili í gervi miðstjórnar D. N. T. C. og beitt
öflugu áhrifavaldi. D. N. T. C. er því líklegra
til stórræða en hvert landssamband um sig
gæti nokkurntíma orðið eitt sér og óstutt.
Vonandi verður því afli beitt til hagsbóta
fyrir berklasjúklinga og í framtíðinni til
árangursríkrar baráttu fyrir útrýmingu
berklaveikinnar á Norðurlöndum. Þ.B—Á.E.
27